Fréttablaðið - 09.12.2002, Side 18
18 9. desember 2002 MÁNUDAGURSIGURVEGARI
Úkraínumaðurinn Vladimir Klitschko fagnar
sigri sínum gegn Bandaríkjamanninum
Jameel McCline í einvígi um WBO-titilinn í
þungavigt í fyrrakvöld. Heimsmeistarinn
Lennox Lewis mætir Vitali, bróður
Klitschko, í mars á næsta ári í einvígi um
WBC-titilinn.
Áttu frípunkta?
fieir renna út um áramótin!
Líður ekki eins
og 36 ára
Gianfranco Zola hefur leikið frábærlega með Chelsea á leiktíðinni.
Hann er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni ásamt Thierry Henry,
leikmanni Arsenal, og hefur í hyggju að leika eitt ár í viðbót.
FÓTBOLTI Ítalinn smái en knái í liði
Chelsea, Gianfranco Zola, hefur
leikið frábærlega í ensku úrvals-
deildinni það sem af er leiktíðar.
Þrátt fyrir að vera orðinn 36 ára
gamall hleypur hann ennþá um
völlinn eins og unglamb. Hann er
markahæsti leikmaður deildarinn-
ar ásamt Thierry Henry, Frakkan-
um í liði Arsenal, með níu mörk.
Zola hafði lýst því yfir að hann
ætlaði að leggja skóna á hilluna
eftir þessa leiktíð en segist nú
íhuga að spila eitt ár til viðbótar.
„Þegar maður leikur eins og í dag
og nýtur þess svona mikið fær það
mann til að hugsa um að halda
áfram,“ sagði hann eftir 4:1 sigur-
leik gegn Everton í deildarbikarn-
um í síðustu viku, þar sem hann
lagði upp tvö mörk. „Ég er virki-
lega ánægður með spilamennsku
mína og ég vona að ég geti spilað
svona þegar ég verð 37 ára,“ sagði
hann aðspurður hversu lengi hann
gæti haldið áfram. „Mér líður ekki
eins og ég sé 36 ára. Ég kem jafn-
vel sjálfum mér á óvart þegar ég
hleyp upp og niður völlinn alveg
eins og hinir leikmennirnir og verð
ekkert þreyttari en þeir.“
Gianfranco Zola vakti fyrst at-
hygli með ítalska liðinu Napoli. Á
árunum 1989 til 1993 vann liðið
m.a. ítalska meistaratitilinn tvis-
var sinnum með Diego Maradona
í fararbroddi. Eftir að hafa
lengstum staðið í skugganum af
argentínska snillingnum átti Zola
að taka við af honum sem besti
leikmaður liðsins. Þrátt fyrir að
hafa staðið sig prýðilega með
Napoli var hann seldur til Parma
árið 1993. Þremur árum síðar
gekk hann síðan til liðs við Chel-
sea þar sem hann hefur leikið all-
ar götur síðan við góðan orðstír.
Þegar Maradona var 36 ára
gamall var hann aðeins skugginn
af sjálfum sér og þjáðist af eitur-
lyfjafíkn og offitu. Ferill hans
var í rúst. Á sama aldri er Zola,
fyrrverandi lærlingur hans hjá
Napoli, að leika frábærlega í
einni erfiðustu atvinnumanna-
deild heimsins og vonast til að
endurtaka leikinn á næstu leik-
tíð.
freyr@frettabladid.is
ZOLA
Auk þess að eiga auðvelt með að setja boltann í netið hefur Gianfranco Zola gott auga fyrir sendingum og leggur upp mörg mörk fyrir
félaga sína. Eftir að hafa verið á varamannabekknum megnið af síðustu leiktíð ákvað Zola að gera eitthvað í málunum. Hann æfði eins
og brjálæðingur í sumar og það hefur heldur betur skilað sér.
FERILL GIANFRANCO ZOLA
Ítalska landsliðið (1996-2000) 7 mörk í 35 leikjum
Chelsea (1996-?): 54 mörk í 207 deildarleikjum
Parma (1993-96): 49 mörk í 102 deildarleikjum
Napoli (1989-93): 32 mörk í 105 deildarleikjum
Torres (1986-89): 21 mark í 88 deildarleikjum
Nuorese (1984-86): 10 mörk í 31 deildarleik
FÓTBOLTI Farið er að hitna óbæri-
lega mikið undir Terry Venables,
framkvæmdastjóra Leeds. Liðið
er í 16. sæti deildarinnar og hefur
tapað 10 af síðustu 17 leikjum.
Eftir 1-0 tap gegn Fulham á
laugardaginn sungu stuðnings-
menn Leeds: „Terry, tími til að
fara, Terry, Terry tími til að fara.“
Frakkinn Olivier Dacourt hef-
ur gagnrýnt Venables harðlega,
ekki síst fyrir að leyfa sér ekki að
spila. Venables hefur alls ekki
verið sáttur við ummæli Dacourt
um liðið í fjölmiðlum og sagði að
leikmaðurinn hefði verið að reyna
að finna sér nýtt lið allt síðastliðið
ár.
„Ef hann vill fara til Ítalíu og
ef eitthvað lið þar hefur áhuga á
honum þá skal ég sjálfur keyra
hann þangað,“ sagði Venables. ■
FÓTBOLTI Manchester United vann
mikilvægan sigur á Arsenal með
tveimur mörkum gegn engu um
helgina. Veron og Scholes skoruðu
mörkin. Liðið er nú aðeins þremur
stigum á eftir Arsenal, efsta liði
deildarinnar. Þetta var í fyrsta
sinn í 56 leikjum sem Arsenal
skorar ekki mark.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, sagði að United
væri komið af fullum krafti í bar-
áttuna um enska meistaratitilinn
ásamt Liverpool og Chelsea. „Ég
get ekki verið ánægður. United-
menn voru mun ákveðnari og úr-
slitin voru sanngjörn. Þeir vildu
sigra meira en við.“ Alex Fergu-
son, stjóri United, var himinlifandi
eftir leikinn. „Þetta var afar mikil-
vægt. Mér fannst við vera betri að-
ilinn í leiknum. Andinn í hópnum
síðustu vikur hefur verið ótrúleg-
ur,“ sagði Ferguson.
Chelsea vann Everton, 3:1, og er
komið í annað sæti deildarinnar,
aðeins tveimur stigum á eftir
Arsenal. Stanic, Hasselbaink og
Grönkjær skoruðu mörk Chelsea
en Naysmith mark Everton. Eiður
Smári Guðjohnsen kom inn á fyrir
Hasselbaink á 84. mínútu leiksins.
Liverpool tapaði óvænt fyrir
Charlton með tveimur mörkum
gegn engu. Liverpool er dottið nið-
ur í fjórða sæti deildarinnar, fjór-
um stigum á eftir Arsenal. Bolton
gerði 1:1 jafntefli við Blackburn.
Guðni Bergsson lék allan leikinn
fyrir Bolton eftir að hafa átt í
meiðslum upp á síðkastið. ■
FÓTBOLTI
Opið mánudaga—föstudaga frá kl. 12-18
og laugardaga frá kl. 11-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
Jólagjöfin
hennar-
gjöf sem veitir
gleði og yl
Glæsilegt úrval af
minkapelsum,
húfum, treflum og fleiru.
Nicolas Anelka, framherjiManchester City, hefur verið
úrskurðaður í tveggja leikja bann
af franska knattspyrnusamband-
inu fyrir að neita að spila með
franska landsliðinu í vináttuleik á
dögunum. Bannið gildir aðeins í
frönsku deildakeppninni og trufl-
ar Anelka því ekkert á meðan
hann leikur með City á Englandi.
Rami Shaaban, markvörðurArsenal, verður frá næstu
þrjár vikurnar eftir að hafa
meiðst í leiknum gegn United um
helgina. Wenger, stjóri Arsenal,
vonast til þess að David Seaman
aðalmarkvörður geti spilað Evr-
ópuleikinn gegn Valencia á morg-
un, eftir að hafa átt í meiðslum.
Í SLÆMUM MÁLUM
Eftir 1-0 tap gegn Fulham á laugardaginn
sungu stuðningsmenn Leeds: „Terry, tími til
að fara, Terry, Terry tími til að fara.“
Hitnar undir Venables:
Dacourt
vill fara
Varalið Ajax:
Sló út úrvals-
deildarlið
FÓTBOLTI Þau tíðindi urðu í hol-
lensku bikarkeppninni í knatt-
spyrnu að varalið deildar- og bik-
armeistara Ajax Amsterdam hafði
2-1 sigur gegn úrvalsdeildarliðinu
Willem II, sem lék í Meistaradeild
Evrópu fyrir aðeins þremur árum
síðan. Mörkin skoruðu þeir Jamal
Akachar og Stefano Seedorf, yngri
bróðir Clarence Seedorf, sem áður
gerði garðinn frægan hjá Ajax en
leikur nú með Inter Milan. Báðir
markaskorararnir eru á unglings-
aldri, en Ajax er fræg útungunar-
stöð fyrir gæðaleikmenn. ■
Enski boltinn um helgina:
United blandar
sér í baráttuna
Á SIGURBRAUT
Chelsea hefur verið á mikilli sigurbraut
upp á síðkastið. Emmanuel Petit, til vinstri,
og William Gallas fögnuðu gríðarlega sigri
liðsins á Everton á laugardag.