Fréttablaðið - 09.12.2002, Page 19
19MÁNUDAGUR 9. desember 2002
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.00 Stöð 2
Ensku mörkin
16.35 Sjónvarpið
Helgarsportið
17.50 Sýn
Ensku mörkin
18.50 Sýn
Spænsku mörkin
19.50 Sýn
Enski boltinn (Sunderland - Man. City)
22.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn
22.30 Sýn
Sportið með Olís
23.00 Sýn
Ensku mörkin
23.30 Sjónvarpið
Markaregn
0.35 Stöð 2
Ensku mörkin
1.30 Sýn
Spænsku mörkin
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100Lágmúla 4 • Sími 585 4000
N‡ttu flér punktana hjá okkur me› flví a›
grei›a inn á sólarlandafer› næsta sumars.
fiú kemur me› korti› og vi› færum
punktainneignina inn á sólarlandafer›ina flína.
P aolo Di Canio, fyrirliði WestHam United, verður frá
knattiðkun í átta vikur eftir að
hann gekkst undir aðgerð á hné á
fimmtudag. Ítalinn þurfti að yfir-
gefa völlinn þegar West Ham
mætti Southampton í ensku úr-
valsdeildinni á mánudag. Hann
segir að eftir tveggja mínútna
leik hafi hann fundið fyrir verkj-
um í hné en ákveðið að leika
áfram. Læknar liðsins ráðlögðu
honum þó að yfirgefa völlinn í
hálfleik.
Læknar Leeds United segjaað síðustu meiðsli framherj-
ans Robbie Fowler hafi næstum
gert út af við feril hans. Fowler
barðist í lengri tíma við meiðsli
í mjöðm en komst loks yfir þau
og er aftur kominn á skrið með
Leeds. Dave Hancock, læknir
Leeds, segir að meiðsli hans
hafi verið mjög alvarleg en fyr-
ir baráttu leikmannsins hafi
hann náð að yfirvinna þau.
FÓTBOLTI
KÖRFUBOLTI Þjóðverjinn Dirk
Nowitzki skoraði 35 stig þegar
Dallas Mavericks bar sigurorð af
Golden State Warriors með 121
stigi gegn 116 í NBA-deildinni í
fyrrakvöld. Dallas náði þar að
bæta fyrir slæmt tap, 105:103,
gegn meisturum Lakers á föstu-
dagskvöld þar sem liðið missti
niður 27 stiga forystu. Það var
annar leikurinn af fyrstu 20 á leik-
tíðinni sem liðið tapaði.
Michael Jordan skoraði 20 stig
og tók níu fráköst þegar Wash-
ington Wizard sigraði New York
Knicks, 100:97. Jerry Stackhouse,
samherji Jordan, skoraði 22 stig í
leiknum. Knicks var 21 stigi undir
í þriðja leikhluta og var nálægt
því að jafna metin í lokin með
þriggja stiga körfu.
Houston Rockets vann Phila-
delphia 76ers með 97 stigum gegn
72. Yao Ming, kínverski risinn í
liði Rockets, skoraði 18 stig og tók
12 fráköst. Þetta var sjötti heima-
sigur Rockets í röð. Liðið hefur
unnið sjö leiki og tapað einum á
heimavelli. Er það besta byrjun
liðsins á heimavelli síðan á leiktíð-
inni 1996-97. ■
NOWITZKI
Brian Shaw, leikmaður L.A. Lakers, brýtur á
Dirk Nowitzki, leikmanni Dallas, í leiknum
á föstudagskvöld. Nowitzki skoraði aðeins
12 stig í leiknum en Kobe Bryant setti 27
fyrir Lakers.
NBA-deildin:
Nowitzki
með 35 stig
FÓTBOLTI
Íslendingaliðið Stoke tapaði fyr-ir Coventry með tveimur mörk-
um gegn einu á laugardag. Peter
Hoekstra skoraði mark Stoke.
Brynjar Björn Gunnarsson var
rekinn út af með sitt annað gula
spjald þegar skammt var eftir af
leiknum. Stoke er í þriðja neðsta
sæti ensku 1. deildarinnar með 15
stig eftir 22 leiki.