Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 20
20 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Eigið þið von á barni?
Þá er thymematernity verslun fyrir ykkur
Glæsilegur jólafatnaður og margt fleira
Munið hin vinsælu gjafabréf — hentug jólagjöf
Verið velkomin.
Thymematernity
Verslun fyrir barnshafandi konur
Hlíðasmára 17, s. 575-4500
Sendum í póstkröfu um allt land.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11-18 – Laugardaga frá kl. 11-16
VIÐHORFSKÖNNUN Álit fólks víða
um heim á Bandaríkjunum hefur
snarminnkað síðustu misserin,
þrátt fyrir að þau hafi átt samúð
margra í kjölfar hryðjuverkanna
í New York og Washington í sept-
ember árið 2001. Almennt virðist
ríkja tortryggni gagnvart tali
Bandaríkjanna um að fara í stríð
gegn Írak.
Mest hefur ímynd Bandaríkj-
anna versnað í múslimaríkjum,
þar sem yfirgnæfandi meirihluti
hafði fyrir lítið álit á þeim og fólk
er að auki afar tortryggið gagn-
vart baráttu þeirra gegn hryðju-
verkum. Álitið á þeim hefur líka
minnkað víða á Vesturlöndum,
þar sem Bandaríkin eru þó litin
frekar vinsamlegum augum.
Gagnrýnin viðhorf til Banda-
ríkjanna eru satt að segja algeng-
ari í ríkjum á borð við Kanada,
Þýskaland og Frakkland heldur
en í ríkjum Afríku og Asíu.
Þetta kemur fram í nýrri al-
þjóðlegri könnun á viðhorfum
fólks í 44 löndum. Meira en
38.000 manns voru spurðir álits
og rætt var við þá flesta á heimili
þeirra.
Bjartsýnir
á Fílaveinsströndinni
Þetta fólk var reyndar spurt um
ýmislegt annað en viðhorf þess
til Bandaríkjanna, allt frá því
hversu ánægt það er með lífið til
þess hver það telur vera helstu
vandamálin sem steðja að
heimsbyggðinni.
Könnunina gerði bandarísk
rannsóknarstofnun, sem nefnist
‘Pew Research Center for the
People and the Press’. Madel-
eine Albright, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, er
Heimsbyggðin hefur afar
mótsagnakennda afstöðu
til Bandaríkjanna.
Flestir hafa miklar efasemdir
um stríðstal gegn Írak.
Margt annað forvitnilegt
kemur fram í alþjóðlegri
viðhorfskönnun sem birt
var í síðustu viku.
Í TYRKLANDI FINNST MÖNNUM
LÍTIÐ TIL BANDARÍKJANNA KOMA
Fyrir tveimur árum sögðust 52 prósent
Tyrkja hafa gott álit á Bandaríkjunum. Nú
eru aðeins 30 prósent sömu skoðunar.
Þessi mynd er tekin í fjallabænum Hakkari,
sem er skammt frá landamærum Íraks.
AP/B
U
R
H
AN
O
ZB
ILIC
I
BANDA- BRET- FRAKK- ÞÝSKA- RÚSS- TYRK-
RÍKIN LAND LAND LAND LAND LAND
Hve mikil hætta stafar af Írak?
Mikil/nokkur 84% 85% 67% 82% 55% 48%
Lítil/engin 7% 10% 30% 14% 28% 40%
Veit ekki 9% 5% 3% 4% 17% 12%
Skiptar skoðanir um Írak
Ímynd Bandaríkjanna
versnar í flestum löndum
Á að beita hervaldi til að fjarlægja Saddam?
Fylgjandi 62% 47% 33% 26% 12% 13%
Andvígir 26% 47% 64% 71% 79% 83%
Veit ekki 12% 6% 3% 3% 9% 4%
JÓLAÚTHLUTUN
MÆÐRASTYRKSNEFNDAR
REYKJAVÍKUR
HEFST MÁNUDAGINN
9. DESEMBER
Jólaúthlutun verður alla mánudaga,
þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 14
til 17 og síðustu vikuna fyrir jól verður
einnig opið á fimmtudegi frá 14 til 17.
Tekið er á móti gjöfum til nefndarinnar
á sama tíma eða eftir samkomulagi.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Sólvallagötu 48
101 Reykjavík