Fréttablaðið - 09.12.2002, Page 21
MÁNUDAGUR 9. desember 2002
OD
DI
H
F
J
09
45
74.900 kr. stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 31V421
Nýr glæsilegur skápur.
190 l kælir, 90 l frystir.
H x b x d = 175 x 60 x 64 sm.
79.900 kr. stgr.
Eldavél
HL 54024
Ný stórglæsileg eldavél.
Keramíkhelluborð, fjórar hellur,
fjölvirkur ofn, létthreinsun,
sökkhnappar, stangarhandfang.
Gæðagripur sem sómi er að.
69.900 kr. stgr.
Bakstursofn
HB 28055
Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi.
Sannkallaður gæðaofn frá Siemens.
12.900 kr. stgr.
Þráðlaus sími
Gigaset 4010 Classic
Númerabirtir. DECT/GAP-staðall.
Einstök talgæði. Siemens færir þér draumasímann.
66.900 kr. stgr.
Helluborð
ET 72554
Keramíkhelluborð með snertihnöppum.
Stílhreinn gæðagripur frá Siemens.
56.900 kr. stgr.
Þvottavél
WXB 1060BY
Frábær rafeindastýrð þvottavél
á kostakjörum. 1000 sn./mín.
9.900 kr. stgr.
Ryksuga
VS 51B22
Kraftmikil 1400 W ryksuga,
létt og lipur, stiglaus sogkraftsstilling.
59.900 kr. stgr.
Uppþvottavél
SE 34234
Einstaklega hljóðlát
og sparneytin.
Fjögur þvottakerfi,
þrjú hitastig.
Umboðsmenn um land allt.
Jólatilboð!
DAGBLAÐALESTUR Í KÍNA
Þessir tveir menn voru að lesa dagblað í sýningarkassa í Peking á fimmtudaginn var. 78
prósent Kínverja segjast reiða sig einkum á sjónvarp til þess að fá fréttir, en 15 prósent
nota dagblöð og 4 prósent Netið til þess að afla sér frétta.
í forsvari fyrir þessa stofnun.
Nokkuð kemur á óvart að íbú-
ar Nígeríu segjast vera ánægð-
astir allra með líf sitt síðustu
fimm árin. Íbúar á Fílabeins-
ströndinni eru hins vegar bjart-
sýnastir á næstu fimm ár.
Reyndar voru þessar spurning-
ar lagðar fyrir áður en borgara-
styrjöld braust út á Fílabeins-
ströndinni.
Almennt séð eru Vesturlanda-
búar ánægðari með lífið heldur
en íbúar þróunarlandanna á suð-
urhveli jarðar. Hins vegar snýst
þetta við þegar fólk er spurt um
framtíð barna sinna. Þá eru íbú-
arnir í suðri mun bjartsýnni
heldur en fólk í velmegunarríkj-
unum.
Um allan heim er fólk ánægð-
ara með fjölskyldu sína heldur
en störf sín og tekjur. Í sumum
ríkjum, einkum í Afríku, Mið-
Austurlöndum og Austur-Evr-
ópu, lýsir fólk samt töluverðri
óánægju með fjölskyldulíf sitt.
Þá er áberandi hversu Japan-
ar eru óánægðir og svartsýnir
bæði á eigin framtíð og lands
síns. Samt sem áður segjast
Japanar ekki eiga við nein
meiriháttar vandamál að stríða í
lífi sínu.
Glæpir alvarlegastir
Greinilegt er einnig að íbúar
Evrópuríkja eru því ánægðari
með lífið sem þeir eru yngri.
Eldri kynslóðin virðist eiga
erfitt með að sætta sig við þær
breytingar sem orðið hafa á síð-
ustu tímum.
Fimmtán prósent Bandaríkja-
manna segjast hafa átt í vand-
ræðum með að útvega sér mat
einhvern tímann á síðasta ári.
Þetta er hærra hlutfall heldur
en nokkurs staðar annars staðar
á Vesturlöndum. Verstur er mat-
arskorturinn samt í Angóla. Þar
segjast 86 prósent hafa átt í
vandræðum með að útvega sér
mat einhvern tímann á síðasta
ári.
Í langflestum ríkjanna, eða
19 af 44, eru glæpir taldir alvar-
legasta samfélagsvandamálið. Í
13 ríkjum telur fólk að alnæmi
og aðrir smitsjúkdómar séu al-
varlegasta áhyggjuefnið. Póli-
tísk spilling er talin versta
vandamálið í 11 ríkjum, en
hryðjuverk í 5 ríkjum.
Mesta athygli hefur samt við-
horf fólks til Bandaríkjanna
vakið.
Þrátt fyrir að ímynd Banda-
ríkjanna hafi versnað er afstaða
fólks til þeirra mjög mótsagna-
kennd.
Almennt virðist fólk vera
heldur á móti bandarískum
áhrifum á menningu og siðvenj-
ur. Á hinn bóginn tekur fólk víð-
ast hvar bandarískum bíómynd-
um og dægurtónlist opnum örm-
um. Einnig segist fólk bera
mikla virðingu fyrir framförum
í tækni og vísindum sem frá
Bandaríkjunum koma.
Algengast er að fólk gagnrýni
Bandaríkin fyrir að fara sínu
fram án tillits til annarra,
þröngva fram breytingum sem
auka bilið milli fátækra og ríkra
eða beita sér ekki nóg til þess að
leysa vandamál heimsins.
gudsteinn@frettabladid.is
Ímynd Bandaríkjanna versnar
(Hlutfall þeirra sem hafa
gott álit á Bandaríkjunum)
1999/ MIS-
2002 2000 MUNUR
Tyrkland 30 52 -22
Þýskaland 61 78 -17
Argentína 34 50 -16
Slóvakía 60 74 -14
Indónesía 61 75 -14
Kenýa 80 94 -14
Pakistan 10 23 -13
Bólivía 57 66 -9
Bretland 75 83 -8
Pólland 79 86 -7
Perú 67 74 -7
Hondúras 80 87 -7
Venesúela 82 89 -7
Ítalía 70 76 -6
Tékkland 71 77 -6
Suður-Kórea 53 58 -5
Japan 72 77 -5
Brasilía 52 56 -4
Búlgaría 72 76 -4
Mexíkó 64 68 -4
Frakkland 63 62 +1
Kanada 72 71 +1
Gvatemala 82 76 +6
Úkraína 80 70 +10
Rússland 61 37 +24
Úsbekistan 85 56 +29
Nígería 77 46 +31
AP/G
R
EG
B
AKER