Fréttablaðið - 09.12.2002, Page 26
Handklæði & flíshúfur
Flíspeysur m félagsmerkjum,
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
Í 12 árSérmerkt
Bangsar
kr. 3.400
m fél.merki
Leikskólapokar
frá kr. 1.290
m merkingu
Flíspeysur
m félagsmerkjum Hágæða flísteppi
Flíshúfur
margar gerðir
Sérmerkt handklæði
frá kr. 1.170
9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Erlendum stúdentum í íslenskum háskólum hefur
fjölgað ört á síðustu árum og eiga þeir það yfirleitt
sammerkt að hafa brennandi áhuga á Íslandi og ís-
lenskri menningu. Margir koma langt að og því eru þó
nokkrir sem velja að dveljast á Íslandi yfir hátíðirnar
í stað þess að halda til heimalandsins. Þessir náms-
menn eru í flestum tilfellum fjarri fjölskyldum sínum
á jólunum þó auðvitað séu aðstæður þeirra misjafnar.
Guðrún Helga Jóhannsdóttir, alþjóðafulltrúi Stúd-
entaráðs Háskóla Íslands, segir að það séu einna helst
skiptinemarnir sem ekki eiga í nein hús að venda um
jólin en þeir sem dvelja hér í nokkur ár hafi yfirleitt
eignast íslenska vini sem bjóða þeim til sín.
Nemarnir hafa oft mikinn áhuga á að kynnast hefð-
bundnu íslensku jólahaldi og því hefur Stúdentaráð
gripið til þess ráðs að auglýsa eftir fjölskyldum sem
hafa laust sæti við jólaborðið eða hafa tök á að bjóða
til sín erlendum námsmanni einhvern tíma yfir hátíð-
irnar. Guðrún verður sjálf með kanadíska stúlku hjá
sér öll jólin. „Hún var farin að kvíða jólunum mikið
svo ég bauð henni til mín. Hún ætlar að vera hjá mér
á aðfangadag og koma með í öll fjölskyldujólaboðin.“
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
verð að heiman um jólin og ég
ætla rétt að vona að ég fái hvít jól
því ég hef aldrei upplifað snjólaus
jól,“ segir Ashley Deavu frá
Kanada. Hún kom hingað í haust-
byrjun til að nema landafræði við
Háskóla Íslands en heldur aftur
heim í vor. „Landslagið hér er ein-
staklega áhugavert og spennandi.
Hér er líka hreint ekki eins kalt
og margir vilja vera láta og í raun
mun hlýrra en á mínum heima-
slóðum.“
Ashley vissi frá upphafi að hún
gæti sennilega ekki farið til
Kanada um jólin. „Það er aðallega
af fjárhagslegum ástæðum sem
ég ákvað að vera hér. Það er mjög
dýrt að fljúga heim því það er
ekki beint flug alla leið,“ segir
Ashley. Í fyrstu kveið hún jólun-
um mikið en nú er hún orðin sátt
og ætlar að halda jólin með ís-
lenskri fjölskyldu. „Ég á auðvitað
eftir að sakna fjölskyldunnar
minnar mikið og hefðanna sem
fylgja jólunum,“ segir Ashley.
„Mamma mín á afmæli 24. desem-
ber og þá höfum við opið hús.
Fyrst fara allir til kirkju og koma
svo til okkar í kræsingar.“ Aðal-
jólamáltíðin í Kanada er yfirleitt
fylltur kalkúnn sem borðaður er á
jóladag og þá eru líka teknar upp
gjafir. „Bróðir minn vekur alltaf
alla fjölskylduna kl. 6 um morgun-
inn til að opna gjafirnar og svo
borðum við kvöldverð um eftir-
miðdaginn. Pabbi sér að mestu um
matinn en við hjálpum öll til,“ seg-
ir Ashley. Afi hennar er mikill
víngerðarmaður og vínið hans er
að sjálfsögðu drukkið með kræs-
ingunum.
Ashley líst ágætlega á íslensku
jólasiðina þótt þeir séu að mörgu
leyti ólíkir því sem hún á að venj-
ast. Hún hefur aldrei fengið
hangikjöt eða annan hefðbundinn
íslenskan jólamat en er spennt að
vita hvernig það smakkast. „Ég
hlakka mikið til að fá að prófa
eitthvað nýtt, svo lengi sem það
bragðast ekki eins og hákarl!“ ■
Korina Bauer er skiptinemi í ís-
lenskum fræðum við Háskóla Ís-
lands. Hún er frá Austurríki og er
búin að vera hér á landi síðan í
ágúst síðastliðnum. „Ég fékk fyrst
áhuga fyrir Íslandi þegar ég var 10
ára og rakst á grein um Ísland í ein-
hverju blaði. Mig langaði alltaf að
koma hingað, sérstaklega út af
náttúrunni.“ Korina kom hingað
fyrst sem skiptinemi í menntaskóla
fyrir þremur árum og þá vaknaði
áhugi hennar á íslenskri tungu. „Ég
ákvað að fara að læra íslensku í há-
skóla í Vín og svo kom ég hingað
aftur sem skiptinemi nú í haust.“
Korina ætlar að vera á Íslandi
um jólin og langar mikið til að
kynnast íslensku jólahaldi. „Það er
einhvern veginn auðveldara að
vera bara hér frekar en að vera
alltaf að fara fram og til baka enda-
laust,“ segir Korina en viðurkennir
þó að það verði kannski svolítið
skrítið. „Ég á örugglega eftir að
sakna mömmu og pabba mest og
svo jólatrésins sem nær alveg upp
í loft. Ég hef ekki efni á að kaupa
mér svoleiðis jólatré hérna.“
Að sögn Korinu er ekki mikill
munur á jólahaldi á Íslandi og í
Austurríki. „Aðalmáltíðin hjá okk-
ur er líka á aðfangadagskvöld en
það er mjög misjafnt hvað fólk
borðar. Reyndar eru margir með
fisk eða kalkún, sem er víst ekki
mjög algengt hér.“ Korinu líst
bara vel á íslenska jólamatinn og
finnst hangikjötið mjög gott. En
þótt Korinu finnist íslenskum jól-
um svipa mikið til þeirra austur-
rísku er eitt sem hefur vakið at-
hygli hennar. „Hjá okkur er
drukkið mun meira áfengi um jól-
in, glögg, snafsar og púns, en hér
virðist ekki vera hefð fyrir slíku.“
Í Austurríki eru engir íslenskir
jólasveinar en á aðfaranótt 6. des-
ember kemur heilagur Nikulás
með smágjafir og setur í skóna
hjá öllum. „Þetta eru yfirleitt
mandarínur, hnetur eða súkku-
laði,“ segir Korina, sem fékk
senda litla gjöf frá pabba sínum af
þessu tilefni. Korina segist líka
eiga eftir að fá sendar einhverjar
jólagjafir að heiman en mun
sennilega þurfa að gera sér að
góðu það sem hér fæst af jólamat
og öðru góðgæti. ■
Yfir 500 erlendir námsmenn eru á Íslandi í vetur
og margir þeirra dvelja hér yfir jólin:
Vantar fóstur-
foreldra um jólin
KORINA BAUER
Í Austurríki eru alltaf jólamarkaðir
í desember þar sem hægt er að kaupa
ýmsa hluti og góðgæti tengt jólunum.
Risastór
jólatré, glögg
& snafsar
Korina Bauer hefur mikinn
áhuga á íslenskri menningu
og vill kynnast íslensku jóla-
haldi af eigin raun.
GESTSAUGAÐ
Austurríki
Gjafir í morgunsárið
Ashley Deavu heldur
jólin fjarri heimahögum
í fyrsta sinn og getur ekki
hugsað sér að þurfa að
segja frá því að hún hafi
fengið rauð jól á Íslandi.
ASHLEY DEAVU
Ætlar í messu á Íslandi um jólin eins
og hún er vön að gera heimafyrir.
GESTSAUGAÐ
Kanada