Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 27
27MÁNUDAGUR 9. desember 2002
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga
og 10-15 laugardaga.
Pelsar frá 12.900
Mokkajakkar og kápur
Tilboð á vendipelsum
– áður kr. 24.900
– nú 12.500
Hattar, húfur og
kanínuskinn kr 2.900
„Ég ákvað að koma til Íslands því
að kærastinn minn er íslenskur og
mig langaði til að kynnast bak-
grunni hans betur. Ég vildi líka
læra móðurmálið hans svo við
þyrftum ekki alltaf að tala saman á
mínu máli,“ segir Barbara
Holzknecht sem er skiptinemi frá
Þýskalandi. Hún er í starfsnámi á
Landspítalanum og er það hluti af
læknisfræðinámi hennar í Berlín.
Barbara hafði aðeins heimsótt
landið að sumri til þar til fyrir ári
þegar hún kom hingað um jólin
ásamt kærastanum. „Mig langaði
að kynnast íslenska vetrinum fyrir
alvöru. Þar sem jólin í fyrra voru
að mestu snjólaus og sömuleiðis
síðustu mánuðir hef ég enn sem
komið er aldrei upplifað raunveru-
legt íslenskt vetrarveður.“
Þessi jól verða þau þriðju sem
Barbara heldur fjarri heimahög-
unum en hún segist engu að síður
munu sakna fjölskyldunnar og
hefðanna mikið. „Við borðum
alltaf bökuð epli síðdegis á að-
fangadag og ég er vön að sjá um að
útbúa þau. Jólapakkarnir eru tekn-
ir upp áður en aðalmáltíðin er bor-
in fram og pabbi hringir alltaf
bjöllu til að kalla á okkur í gjafirn-
ar,“ segir Barbara. En þrátt fyrir
að hún sakni margs er engu að síð-
ur ýmislegt skemmtilegt sem kem-
ur í staðinn. „Við erum vön að hafa
miklu stærra jólatré í Þýskalandi
en í fyrra fór ég ásamt kærastan-
um mínum og tengdapabba upp í
hlíð að höggva jólatré. Það var
ótrúlega skemmtilegt og bætti fyr-
ir það sem vantaði upp á stærð-
ina.“
Í Þýskalandi eru margir með
fondue á jólunum en þar sem Bar-
bara var grænmetisæta var hafður
Raclette-ostur með grænmeti og
kartöflum á hennar heimili. „Þegar
ég kom til Íslands síðustu jól var
ég hjá tengdaforeldrum mínum og
þar var borin fram villigæs og
hangikjöt. Mig langaði auðvitað að
smakka það sem var á boðstólnum
og það bragðaðist svo vel að ég
ákvað að hætta að vera græn-
metisæta,“ segir Barbara. Hún er
líka hrifin af íslensku jólaljósun-
um og segir að í Þýskalandi sé mun
minna um litríkar ljósaskreyting-
ar. „Ég keypti mér rauða jólaseríu
á tilboði og er búin að hengja hana
í eldhúsgluggann,“ segir Barbara,
sem bíður spennt eftir að það stytti
upp og jólasnjórinn láti sjá sig. ■
BARBARA HOLZKNECHT
Heldur jólin í annað sinn á Íslandi
og vill helst fá snjó í þetta sinn.
Bökuð epli
& gjafabjalla
Barbara Holzknecht var
grænmetisæta í tíu ár en
ákvað að byrja aftur að borða
kjöt þegar hún kynntist
íslenska jólamatnum.
GESTSAUGAÐ
Þýskaland