Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 28
Böðvari Pétri Þorgrímssyni sem
er 8 ára finnst langskemmtilegast
að baka á aðventunni. Hann bakar
með mömmu sinni og er þegar bú-
inn að baka nokkrar sortir. „Það
er gott að byrja að baka mjög
snemma og tímafreku kökurnar
er best að baka á föstudögum,
laugardögum eða sunnudögum.
Við erum búin að baka engi-
ferkökur og súkkulaðibitakökur
og í dag ætlum við að baka pipar-
kökur. Ég fæ að borða pínulítið af
kökunum strax en þær eiga helst
að bíða til jólanna.“ segir Böðvar,
sem greinilega hlakkar mikið til
að fara heim að baka að skóla
loknum. ■
28 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
20%
afsláttur
af öllum
yfirhöfnum
Vinnufatabúðin
Laugavegi 76 • S. 551 5425
Lengi vel bað ég krakkana mínaað gefa mér bækur en ég er
hætt því,“ segir Andrea Helga-
dóttir fyrrum sjúkraliði sem nú er
liðlega sjötug og á fjöldann allan
af afkomendum. Hún segist alltaf
hafa haft ákaflega gaman af að
lesa og því hafi börnin hennar get-
að gengið út frá því að hún yrði
ánægð með hörðu pakkana. „Nú,
hef ég hins vegar dregið úr lestr-
inum því ég á orðið erfitt með að
sjá. Ég fékk bók Hallgríms Helga-
sonar, Höfund Íslands, í afmælis-
gjöf fyrir nokkru og það er svo
smátt letrið í henni að ég á í mestu
erfiðleikum með að lesa hana. Ég
verð að bíða með það til sumars
þegar birta tekur á ný.“
Í stað bókanna biður Andrea
börnin sín að gefa sér fremur eitt-
hvað nýtilegt. „Mér þykir alltaf
vænt um að fá eitthvað sem ég get
notað eins og handklæði eða rúm-
föt og kýs það umfram allt annað.
Bækurnar sem ég hef sankað að
mér í gegnum árin hef ég að
mestu losað mig við til barnanna.
Óþarfa dót sem safnar ryki upp í
hillum hef ég gefið barnabörnun-
um og öðrum sem hafa gaman af
að eiga slíka hluti. Í eina tíð hafði
ég gaman af þessu en nú er þetta
bara fyrir mér.“
Andrea segist hafa mikla
ánægju af að horfa á myndbönd
og fyrir nokkrum árum hafi hún
fengið myndbandstæki frá syni
sínum í jólagjöf. „Það er ein eftir-
minnilegasta jólagjöf sem ég hef
fengið því hún kom sér svo vel
fyrir mig,“ segir hún.
Ilmvötn og snyrtivörur kaupir
hún sér sjálf. „Ég hef á hinn bóg-
inn gaman af fatnaði og hef alltaf
gaman að því að fá falleg föt.
Dætur mína hafa oft gefið mér
eitthvað fallegt til að klæðast og
það kemur sér alltaf vel.
Þegar hún er spurð um eftir-
minnilega jólagjöf frá fyrri árum
kveðst hún svo sannarlega muna
eftir gjöf sem hafi glatt hana mik-
ið þau jólin. „Foreldrar mínir gáfu
mér efni í kjól. Ég var þá tæplega
fjórtán ára og ég kunni mér ekki
læti fyrir gleði þegar ég opnaði
pakkann. Í honum var grænt efni
sem ég saumaði mér síðan kjól úr
og átti lengi vel. Þessi gjöf var
kærkomin en fátt gat skyggt á
kertin og súkkulaðið sem við
systkinin fengum frá afa heitnum
á hverjum jólum, Það var eitt
suðusúkkulaðistykki, einn pakki
af kertum sem við skiptum á milli
okkar og spilapakki fyrir hvert
okkar. Gleði okkar var fölskva-
laus en það er ekki hægt að ætlast
til að börn nútímans skilji það í
öllu því gjafaflóði sem yfir þau
gengur á jólum.“ ■
Víða í Evrópu er vinsælt aðbjóða upp á bökuð epli á jól-
unum. Ekki eru ýkja mörg ár síð-
an epli voru munaðarvara á Ís-
landi og þau voru nánast bara á
boðstólum á tyllidögum. Það eru
enn margir sem minnast
eplailmsins á jólunum og finnst
fátt jólalegra en stór og falleg
rauð epli. Því er alveg tilvalið að
minnast liðinna tíma með því að
gæða sér á bökuðum eplum með
ljúffengum fyllingum. Eplin geta
verið með ýmsu móti allt eftir
smekk hvers og eins. Venjan er
að afhýða þau fyrst og taka innan
úr þeim kjarnann án þess þó að
skera þau í sundur. Síðan eru þau
fyllt, til dæmis með hnetum,
möndlum, rúsínum eða döðlum.
Gott er að blanda smjöri og kanil
eða einhverju sætu saman við
fyllinguna eins og marmelaði,
hunangi eða púðursykri. Eplin
eru bökuð í miðjum ofni við
200˚C í um það bil 20 mínútur og
svo er hægt að hjúpa þau að utan
eða bera með þeim vanillusósu. ■
Gömul hefð
í nýjum búningi:
Bökuð epli
Að baka smákökur
SKEMMTILEGAST
á aðventunni?
BÖÐVAR PÉTUR
ÞORGRÍMSSON
„Ég fæ að borða
pínulítið af
kökunum strax.“
ANDREA HELGADÓTTIR
Hún vill eitthvað nytsamlegt
í jólagjöf en ekki gripi sem
rykfalla í hillunum. Utndantekn-
ing frá því er ef börnin eða
barnabörnin hafa búið eitthvað
til sjálf.
Andrea Helgadóttir,
fyrrverandi sjúkraliði,
hafði lengi vel gaman af
því að fá bækur í jólagjöf.
Nú vill hún ekki lengur
sanka að sér bókum
og hefur gefið þær flestar.
Hins vegar finnst henni
alltaf vænt um þarfa
hluti eins og rúmföt
og handklæði.
„Mér þykir alltaf vænt um
að fá eitthvað sem ég get
notað eins og handklæði
eða rúmföt og kýs það
umfram allt annað.“
GJAFIR MEÐ NOTAGILDI
Handklæði og rúmföt eru ofarlega á
óskalista Andreu fyrir þessi jól.
GÓÐ JÓLAGJÖF
handa eldri konum
Eitthvað
sem hefur notagildi
H a u k u r G u l l s m i ð u r
S m á r a l i n d
Íslensk-ítölsk skartgripahönnun og smíði