Fréttablaðið - 09.12.2002, Qupperneq 29
29MÁNUDAGUR 9. desember 2002
Út er komin bókinJ ó l a s v e i n a r n i r
þrettán, jólasveinavís-
ur, eftir Elsu E. Guð-
jónsson, textíl- og bún-
ingafræðing. Bókin er
myndskreytt með
krosssaumsmyndum af
jólasveinunum, sem
Elsa hefur hannað og
saumað. „Þetta er
fjórða útgáfa bókarinn-
ar,“ segir Elsa, „bókin
kom fyrst út árið 1998,
en í ár hefur verið auk-
ið við útgáfuna og bætt
við vísum og myndum
við aðaltexta. Þá eru í
bókinni sjónblöð, það
er reitamunstur með
litatáknum af jóla-
sveinunum og enn
fremur kynning á út-
saumuðu jólasveina-
dagatali sem ég hef sjálf hannað.
Allar vísur í bókinni eru á ís-
lensku, dönsku og ensku.“
Nú stendur yfir sýning á
myndum Elsu á Bókasafni Kópa-
vogs. „Þessar myndir hafa verið
sýndar á listasafni Kópavogs,
norður á Akureyri og í Glaumbæ.
Í bókinni er líka umfjöllun um
Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn,“
segir Elsa.
Elsa er komin á eftirlaun en
starfaði um langt árabil sem
deildarstjóri textíl- og búninga-
deildar Þjóðminjasafns Íslands.
Hún er enginn nýgræðingur í
hannyrðum því hún vann að
stofnun handavinnudeildar KÍ
árið 1947 og kenndi þar nokkur
ár og víðar.
Elsu hafa hlotnast fjölmargar
viðurkenningar fyrir störf sín og
hlaut hún meðal annars Riddara-
kross hinnar íslensku fálkaorðu
árið 1981.
Sýning á jólasveinamyndum
Elsu í Bókasafni Kópavogs stend-
ur þangað til síðasti jólasveinn-
inn er farinn til síns heima eftir
jól, eða fram á þrettándann, 6.
janúar. ■
ELSA E. GUÐJÓNSSON
Sýnir útsaumaða jólasveina
í Bókasafni Kópavogs.
Elsa E. Guðjónsson búningafræðingur
semur texta og krosssaum um Jólasveinana þrettán:
Jólasveinar settir
í vísur og saumaðir út
LISTSÝNING
á aðventunni
Hátíðarföt
með vesti
úr 100% ull
kr. 29.900
Allar stærðir til
46— 64
98—110
25— 28
Hátíðarfatnaður
íslenskra karlmanna
Hátíðarfatnaður íslenskra
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið
var að framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að íslenskir
karlmenn óski að klæðast
búningnum á tyllidögum, svo
sem við útskriftir, giftingar,
á 17. júní, þorrablót,
við opinberar athafnir hérlendis
og erlendis og við öll önnur
hátíðleg tækifæri.
Herradeild Laugavegi, sími 511 1718.
Herradeild Kringlunni, sími 568 9017.
Pó
st
se
nd
um
Pantanir óskast sóttar
Hátíðarföt,
úr 100% ull, með vesti,
skyrtu, klút og nælu.
kr. 36.900.-