Fréttablaðið - 09.12.2002, Síða 30
Brynjólfur Samúelsson,starfsmaður Seðlabanka
Íslands, verður við vinnu sína
bæði um jól og áramót. Það
kemur þó ekki í veg fyrir það
að hann njóti jólanna og taki
upp sína pakka. „Vænst þykir
mér um að fá bækur í jólagjöf
og þau vita það börnin mín og
hafa oftast gefið mér eitthvað
að lesa um jólin.“
Brynjólfur er lítt hrifinn af
einhverju sem endar uppi í
hillu og rykfellur þar. Allt slíkt
gefur hann jafnharðan frá sér
og reynir að hafa sem minnst af
glingri fyrir augunum. „Ég hef nóg
með að taka til og halda hreinu svo
ég fari nú ekki að bæta á með því.“
Fyrir utan góðar bækur finnst
honum gott að fá eitthvað sem
hann þarfnast og getur notað og
koma þá í góðar þarfir gjafir eins
og sokkar eða skyrtur. „Í fyrra
fékk ég sængurföt og þótti afskap-
lega vænt um að fá þau. Ég hafði
nýlega keypt stærra rúm og fannst
því fínt að eiga góð rúmföt.“
Brynjólfur er fæddur og uppal-
inn á Ísafirði og man jólin þegar
hann var barn. Hann segir þau
hafa einkennst af því að móðir
hans var saumakona og hún steig
vélina alveg fram á síðustu
stundu. „Mér leiddist það og ótt-
aðist að henni gæfist ekki tími til
að undirbúa okkar jól. Það var
allsendis ástæðulaus ótti því
henni tókst alltaf að koma öllu í
horf áður. Jólin komu klukkan sex
eins og í öllum húsunum í kring.
Ég á sæta minningu um jólagjöf
sem ég fékk þegar ég var nokk-
urra ára gamall. Það var í stríðinu
og ekki gott að fá hlutina en pabbi
bað kunningja sinn á togara sem
sigldi til Englands að kaupa járn-
brautarlest. Hún var að vísu upp-
trekkt en hvílík lukka að fá hana.
Ég gleymi aldrei gleðinni þegar
ég tók upp pakkann. Ekki veit ég
hvar föður mínum tókst að fá
gjaldeyri fyrir henni en vafalaust
hefur það tekist einhvers staðar á
bak við tjöldin eins og þá tíðkað-
ist.“
Þrátt fyrir að spenningurinn
yfir gjöfunum hafi bráð af
Brynjólfi segir hann að ofarlega í
huga sitji minning um gjöf sem
hann fékk fyrir rúmum fimmtán
árum frá syni sínum. „Þá gaf hann
mér nýútkomna orðabók Menn-
ingarsjóðs, þá sem kom á undan
þeirri sem nú leit dagsins ljós. Það
gladdi mig alveg sérstaklega og
hún hefur mikið verið notuð eins
og aðrar orðabækur í minni eigu.
Þær hafa flestar aðeins losnað frá
kili vegna mikillar notkunar.“
Brynjólfur gerir ekki mikið úr
jólum og það hefur lítil áhrif á
hann að vera að vinna. Hann segist
hlusta á messuna klukkan sex og
sleppir því aldrei. „Í mínum huga
er messan það sem tengir mig við
jólin. Þá kveiki ég á kerti og yfir
mig færist friður. Ég hef oft verið
í burtu og man eftir afskaplega
friðsælum og yndislegum jólum
austur á Kirkjubæjarklaustri hjá
vini mínum. Þar þótti mér hátíð-
legt að vera. Einnig dvaldi ég oft í
Vigur í Ísafjarðardjúpi með fyrr-
um konu minni sem þaðan er ætt-
uð. Þar komu jólin hljótt og voru
yndisleg friðsæl jól.“ ■
9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Ein með öllu
Nýja gólfþvottavélin SSB 430
frá Alto hentar einkar vel til
þrifa á svæðum þar sem erfitt
er að athafna sig. Afbragðs
hönnun gerir hana létta og
meðfærilega en tryggir þó
um leið að hún skilar
afköstum á við stærri og
dýrari tæki.
Hreint og þurrt á augabragði
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
GÓLFfiVOTTAVÉL
Tilboðsverð
án vsk. 269.790.-
m. vsk. 335.888.-
• Nett vél sem
afkastar miklu
• Skilar gólfinu
hreinu og þurru
• Rafgeymar og
hleðslutæki fylgja
100% mesta
vöruúrval á
fermetra, allt frá
magadans-
búningum
til ekta pelsa.
Hátíðarföt,
perlutoppar,
og brjóstahöld,
perlujakkar
stuttir og síðir.
Jólagjöfin í ár.
Heitasta búðin í bænum
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Einnig opið um helgar. Verið velkomin.
Mig langar mest í sleða ogflugvél og stóran kall og risa-
eðlu,“ segir Alfreð Magnússon, 5
ára. „Ég sá mynd af svona
vatnarisaeðlu í blaði í dótabúð og
ég merkti við hana með hring. Ég
á svona litla eðlu en ég held að
amma mín ætli að gefa mér risa-
eðluna í jólagjöf.“ Alfreð finnst
mjög gaman að fá alls konar leik-
föng á jólunum og í jólafríinu
finnst honum fátt skemmtilegra
en að leika sér með gjafirnar sem
hann fær. ■
HVAÐ VILTU Í
jólagjöf?
„Pabbi bað kunningja sinn
á togara sem sigldi til
Englands að kaupa
járnbrautarlest. Hún var að
vísu upptrekkt en hvílík
lukka að fá hana. Ég gleymi
aldrei gleðinni þegar ég
tók upp pakkann.“
GÓÐ JÓLAGJÖF
handa eldri herra
Risaeðlu
ALFREÐ MAGNÚSSON
Skemmtilegt að leika sér
með gjafirnar.
BRYNJÓLFUR SAMÚELSSON
Vegna þess að hann er
Vestfirðingur langar hann helst
af öllu að fá bókina
Jón Sigurðsson í jólagjöf.
Jón Hannibalsson segist
hann þekkja og þarf því ekki
að lesa um hann.
Brynjólfur Samúelsson, starfsmaður Seðlabanka Íslands, hefur miklar
mætur á bókum og það gleður hann alltaf að fá pakka með bók.
Bækur fram yfir allt