Fréttablaðið - 09.12.2002, Síða 32
UPPÁKOMUR
14.00 Spákonan Lóa verður á Kaffi
Nauthól. Hún spáir í tarotspil og
bolla.
BÍÓ
20.15 La grande illusion er sýnd í Alli-
ance Francaise.
Bíókvöld verður á Kaffi Vídalín. Sýndar
verða myndirnar Life of Brian og Pink
Flamingos. Frítt inn.
SÝNINGAR
Sýningin Reyfi stendur yfir í Gallerí
Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlistarkon-
urnar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir vinna saman undir nafn-
inu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær
flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur
til 22. desember og er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá-
myndir og skúlptúra sem unnin eru í
anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs-
stræti 23, Listagili á Akureyri. Sýningin
stendur til 23. desember og er opin alla
daga frá klukkan 14 til 18.
Skúlptúrsýning nemenda Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti stendur yfir í
Gerðubergi dagana 28. nóvember til 8.
desember. Opið virka daga frá kl. 11 til
19 og um helgar frá kl. 13 til 17.
Sýningin Heimkoman eða: heimurinn
samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin
samanstendur af málverkum og ljós-
myndum danska myndlistarmannsins
Martin Bigum frá árunum 1997-2002.
32 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Blóm og
gjafavara
aðventukransar
og skreytingar.
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is
MÁNUDAGUR
9. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
LISTSÝNING Nú standa yfir í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, tvær sýningar,
annars vegar Samspil og hins veg-
ar Sambönd Íslands. Það eru
fimm listakonur sem standa að
sýningunum, þær Þorgerður Sig-
urðardóttir, Magdalena Margrét
Kjartansdóttir, Kristín Geirsdótt-
ir, Ása Ólafsdóttir og Bryndís
Jónsdóttir.
„Upphafið að okkar samvinnu
er sýningarrýmið Gorgeir í eld-
húsinu á Korpúlfsstöðum. Þar
sýndum við á sínum tíma hver á
fætur annarri og í framhaldi af
því kom þetta samstarf til,“ segir
Kristín Geirsdóttir.
„Sambönd Íslands er alþjóðleg
sýning með þátttöku erlendra
listamanna sem hafa heimsótt Ís-
land og íslenskra listamanna bú-
settra erlendis. Þeim var boðið að
sýna verk sem lýsa landi okkar og
þjóð í samræmi við reynslu þeirra
af dvölinni hér. Mikill áhugi
reyndist fyrir þátttöku í sýning-
unni og líka hjá vinum vina okkar,
öðrum listamönnum, sem ekki
hafa komið hingað en vildu ólmir
fá að lýsa hinu ókunnuga landi
sem hefur heillað þá og þeir ætla
sér að heimsækja í náinni fram-
tíð.“
Á Samspili er að finna verk
eftir listakonurnar fimm. „Verkin
eru ólík að efnisvali og framsetn-
ingu þó örugglega sé hægt að
finna með þeim einhvern sam-
hljóm ef vel er gáð,“ segir Kristín.
Bryndís hefur einbeitt sér að
leirlist og höggmyndagerð, Ása
vefar, saumar í og málar, Kristín
fæst við málverk og teikningar,
Magdalena Margrét hefur unnið
mest í grafík og Þorgerður beitir
bæði grafík og málaralist auk
þess sem hún hefur á síðustu
árum nýtt sér tölvur til listsköp-
unar. Þannig spannar sýningin
vítt svið hefðbundinna og óhefð-
bundinna aðferða og minnin í
verkunum eru jafn ólík.
Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17
og henni lýkur 22. desember. ■
LISTASÖFN Í Galleríi i8 á Klappar-
stíg stendur nú yfir sýning á
verkum eftir ýmsa af listamönn-
um gallerísins. Meðal annars eru
verk eftir Eggert Pétursson,
Rögnu Róbertsdóttur, Þór Vig-
fússon, Kristján Guðmundsson,
Sigurð Guðmundsson, Roni
Horn, Hrein Friðfinnsson, Georg
Guðna og Tony Cragg til sýnis
og sölu.
Opnunartími i8 hefur breyst,
en í framtíðinni verður opið
fimmtudaga og föstudaga frá kl.
11-18 og laugardaga frá kl. 13-17
eða eftir samkomulagi. ■
FIMM KONUR
Eru með samsýningu í Hafnarborg.
Þorgerður, Magdalena Margrét, Kristín,
Bryndís og Ása.
Hafnarborg í Hafnarfirði:
Fimm
konur á
tveimur
sýningum
GALLERÍ I8
Þar kennir margra grasa um þessar
mundir, en fjölmargir listamenn sýna verk
sín í galleríinu í jólamánuðinum.
Gallerí i8:
Margir á jólasýningu
Ólöf Kjaran sýnir í Rauðu stofunni í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg. Sýninguna
nefnir listakonan Undir og ofan á. Sýn-
ingin stendur til 13. desember.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis.
Sigríður Gísladóttir stórgöldrótt-mynd-
listakona sýnir Vörður í Salnum #39,
nýju galleríi við Hverfisgötur 39. Sýning-
in stendur til 12. desember.
Sigrún Einarsdóttir og Sören Larsen í
Gleri í Bergvík sýna nýjar glæsilegar
gerðir af glösum af ýmsu tagi í Galleríi
Fold. Glösin nefnast ARTIKA og eru af
níu mismunandi gerðum. Gallerí Fold er
opið daglega frá 10 til 18, laugardaga frá
10 til 17 og sunnudaga frá 14 til 17.
Sýningunni lýkur 6. desember.
Sýning á jólamyndum teiknarans Brian
Pilkington stendur yfir í Kaffistofu Hafn-
arborgar. Sýningin er opin alla daga og
lýkur 22. desember.
Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu
Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur,
Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur
og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil,
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga vikunnar nema þriðju-
daga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 22.
desember.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
6. janúar 2003.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
ræna húsinu.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi
í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells-
nesi.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of
my Vanity“ sem útleggst á íslensku
„Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí
Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið
svokallaða IVD (intensive vanity dis-
order) eða hégómaröskun en það heil-
kenni verður æ algengara meðal þeirra
sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Kyrr birta – heilög birta er heitið á sýn-
ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs-
son.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd
eru verk eftir um 50 listamenn sem
fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning-
in árin 1980-2000.
Sýningin Hraun - ís - skógur er í Lista-
safni Akureyrar. Sýningin er opin alla
daga milli 12 og 17. Henni lýkur 15. des-
ember.
Myndlistamaðurinn Hildur Ásgeirsdóttir
Jónsson sýnir í Galleríi Sævars Karls.
Lína Rut Wilberg sýnir málverk á Café
Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi. Opið
10-23 virka daga og 12-18 um helgar.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil-
is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka.
Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir
eru velkomnir.
Flökt - Ambulatory - Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í Ný-
listasafninu.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opinn frá
7.30 til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Ýmsir listamenn halda sýningu í gallerí
i8, Klapparstíg 33. Meðal annars eru
verk eftir Eggert Pétursson, Rögnu Ró-
bertsdóttur, Þór Vigfússon, Kristján
Guðmundsson, Sigurð Guðmundsson,
Roni Horn, Hrein Friðfinnsson, Georg
Guðna og Tony Cragg til sýnis og sölu.
Opið er fimmtudaga og föstudaga frá kl.
11-18 og laugardaga frá kl.13 til 17 eða
eftir samkomulagi.