Fréttablaðið - 09.12.2002, Síða 34
34 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
ONE HOUR PHOTO kl. 5.30
4, 6, 8 og 10
SWIMFAN kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5, 8 og 10.15 bi. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10
kl. 6 Í SKÓM DREKANS
LA GRANDE ILLUSION kl. 8.15
POSSESSION kl. 8 og 10.05Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 6, 8 og 10
THE TUXEDO kl. 8 og 10 VIT474 SWEET HOME ALABAMA 4 og 6
VIT
461
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 4 VIT429
SANTA CLAUS 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485
CHANGING LANES kl. 6, 8 og 10.10 VIT479
Sýnd kl. 4 og 8 VIT 469
kl. 5.45 og 10.15HAFIÐ
kl. 5.50DAS EXPERIMEN
TÓNLIST Það er þakklæti en ekki
margra ára gremja sem skín úr aug-
um Sigurðs Ármanns Halldórssonar
þegar hann talar um tónlist sína.
Hann hefur vafrað um í sínum
einkatónlistarheimi frá fjórtán ára
aldri þegar hann hóf að fikra sig
áfram við pönksmíðar.
Siggi hefur tekið stór framfara-
spor á þessum rannsóknarárum sín-
um og hefur náð að þróa sér per-
sónulegan, hugljúfan og afar sér-
stakan stíl. Fyrsta breiðskífa hans
„Mindscape“ kom út í fyrra þó að
lítið hafi farið fyrir henni. Platan fór
þó ekki framhjá liðsmönnum Sigur
Rósar sem heilluðust það mikið að
þeir tóku upp á því að leika hana á
undan öllum tónleikum sínum úti. Í
september gerðu þeir gott betur,
hringdu í Sigga og buðu honum að
opna alla tónleika þeirra á tón-
leikaferð um Bandaríkin sem nú er
nýafstaðin.
Þetta er svo sannarlega stórt
stökk fyrir Sigga, sem hafði mest
leikið fyrir 100 manna hóp. Aðallega
hafði hann haldið litla tónleika fyrir
fjölskyldu sína. „Þetta er rosalega
furðulegt. Þetta er eiginlega bara
eins og ævintýrið um Öskubusku,“
segir Siggi, sem hefur leikið fyrir
framan mörg þúsund manns á síð-
ustu vikum. Stærsti tónleikastaður-
inn var í New York þar sem 3.000
manns fylgdust með Sigga leika lög
sín. Siggi hafði plötuna sína með í
farteskinu og seldi öll 150 stykkin
sem hann tók með sér.
Tónleikaferðalagið byrjaði í
Kanada en svo var flogið rakleiðis
til New York. Eftir þá tónleika var
keyrt þvert yfir Bandaríkin og leik-
ið á hinum ýmsu stöðum. Siggi hafði
aldrei komið til Bandaríkjanna áður
og nýtti því tækifærið óspart sem
ferðamaður til þess að skoða sig um
í landi draumanna.
Ævintýrið hófst fyrir tveimur
árum þegar tónlist Sigga barst til
eyrna Sigtryggs Baldurssonar, fyrr-
um trommara Sykurmolanna og
Þeys, sem er vinur fjölskyldunnar.
„Mamma sagði að ég ætti að leyfa
honum að heyra „Mindbeat“ sem
endaði svo á plötunni. Hann var
mjög hrifinn og upp úr því kom sú
hugmynd að ég myndi taka upp
plötu.“
Þetta klapp á bakið frá Sigur
Rósar drengjum hefur gefið Sigga
aukið sjálfstraust. Hann undirbýr
núna upptöku á nýrri breiðskífu
sem verður unnin í hljóðveri hljóm-
sveitarinnar í janúar og ætti að
koma út strax í vor.
Siggi opnar báða tónleika Sigur
Rósar í Háskólabíói í næstu viku.
Kjartan og Orri úr Sigur Rós og
María úr Aminu leika með honum í
nokkrum laganna.
biggi@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9 VIT 468
MASTER OF DISGUISE
„Eins og ævintýrið
um Öskubusku“
Tónlistarferðalag Sigurðar Ármanns Halldórssonar er mjög ævintýralegt. Í fjórt-
án ár hafði hann verið einn inn í herbergi að semja. Nú er hann nýkominn úr
tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum þar sem hann lék með Sigur Rós.
Miðar á tónleika rokksveitar-innar The Rolling Stones sem
halda á í London næsta sumar
seldust upp á 15
mínútum. Ekki er
um einhverja smá-
klúbba að ræða
því tónleikarnir
verða í London
Astoria, sem tekur
rúmlega 2000
manns, og á
Wembley-leik-
vanginum, sem tekur rúmlega 40
þúsund. Nú þegar er byrjað að
selja miða á báða tónleikana á upp-
sprengdu verði á Netinu. Vegna
þess hversu fljótt miðarnir seldust
upp er búist við því að Rollingarn-
ir bæti við að minnsta kosti tvenn-
um tónleikum á Wembley.
Útkomu fyrstu smáskífu Blur afvæntanlegri plötu hefur verið
frestað um nokkra daga. Ástæðan
er fremur spaugileg. Lagið heitir
„Don’t Bomb when You Are the
Bomb“. Þegar kassi fullur af smá-
skífum sveitarinnar fór í gegnum
brautarstöðina í Brighton stóð orð-
ið „Bomb“ á áberandi stað. Því var
ákveðið að kalla til lögreglu sem
sprengdi kassann í loft upp af ör-
yggisástæðum. Aldrei skilaði kass-
inn sér til plötufyrirtækisins og
því varð að fresta útgáfunni um
nokkra daga.
Og meira um Blur því söngvar-inn Damon Albarn tjáði sig í
fyrsta skipti um brotthvarf gítar-
leikarans Graham
Coxon frá sveit-
inni. Hann sagði
að ákvörðunin um
að láta hann fara
hafi verið sú erfið-
asta sem sveitin
hafi þurft að taka
á ferlinum. Hann
trúir því þó að út-
koman sé best fyrir alla, sérstak-
lega í ljósi þess að Coxon hefur
aldrei verið hrifinn af sviðsljósinu.
Brotthvarfið ætti að tryggja meira
jafnvægi í einkalífi hans.
Móðir leikarans Harrison Fordhefur gefið í skyn að sonur
hennar og leikkonan Calista Flock-
hart ætli að ganga
í það heilaga um
jólin. Frú Ford er
afar sátt við
Calistu og segir að
hún eigi eftir að
verða syni sínum
afbragðs eigin-
kona. Vinir pars-
ins hafa gefið í
skyn að brúðkaupið muni fara
fram í New York um jólin.
Ítalski leikarinn og kvikmynda-gerðamaðurinn Roberto Benigni
rak sjálfan sig úr vinnu á dögun-
um. Eftir að búið var að hljóðrita
enskt tal ofan á kvikmyndina „Pin-
occhio“ var kappinn svo óánægður
með frammistöðu sína að hann
ákvað að best væri að fá annan
mann í verkið. Það verður því leik-
arinn Breckin Meyer úr myndun-
um „Road Trip“ og „Rat Race“
sem mun tala fyrir Gosa þegar
myndin verður sýnd hér á landi.
John Houston, faðir Whitney
Houston, hvatti dóttur sína til að
setjast að sáttaborði með honum í
bandaríska sjónvarpsþættinum
Celebrity Justice, þar sem hann lá
á spítala. John, sem er orðinn 82
ára, stendur í málaferlum við
dóttur sína þessa dagana. Hann
segir hana og fyrirtæki hennar
hafa ráðið sig og viðskiptafélaga
sinn til að sjá um samningamál við
útgáfufélag söngkonunnar, Arista
Records, og fer fram á heilar 100
milljónir dollara, rúman átta og
hálfan milljarð króna, þar sem
þeir hafi aldrei fengið greitt.
Whitney lýsti því í einkaviðtali við
Diane Sawyer fyrr í vikunni að
hún elskaði föður sinn enn. Hún
sagði málsóknina hafa gengið
nærri sér og telur nokkuð víst að
einhver óprúttinn eða óprúttnir
hafi ýtt föður sínum út í málsókn-
ina. Að lokum sór hún þess eið að
hún myndi aldrei greiða krónu í
bætur. ■
Síðumúla 3-5
U
n
d
i
r
f
ö
t
SIGGI Á
Frumraun hans „Mindscape“
kom út í fyrra en seldist ekki
vel. Í dag er fyrsta upplag
búið eftir að það fréttist
að liðsmenn Sigur Rósar
væru hrifnir af plötunni.
„Það er svolítið fyndið að
það hafi þurft einhvern stóra
bróður til þess að segja fólki
að þetta væri nægilega gott
til þess að kaupa,“ segir
Siggi. „Mér finnst það hálf
asnalegt. En að sjálfsögðu
gott, þetta hjálpaði mér að
minnsta kosti mikið.“
Whitney Houston:
Pabbinn vill fá borgað
og sættast eftir það
ELSKAR PABBA ENN
Segist þó aldrei ætla borga honum eyri.