Fréttablaðið - 09.12.2002, Qupperneq 36
36 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
Heimsendingar og sótt!
A f g r e i ð s l u t í m i : 1 1 - 0 1 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 6 u m h e l g a r
Grensásvegur 12
533 2200
SPRENGITILBOÐ!
12“ pizza
m/3 áleggstegundum
690 kr.
16“ pizza
m/3 áleggstegundum
990 kr.
18“ pizza
m/3 áleggstegundum
1.190 kr.
EF SÓTT
EF SÓTT
EF SÓTT
B. Magnússon
Austurhrauni 3, Garðabæ,
s. 555 2866
Verslunin er opin lengur fyrir jól
Fatnaður
og náttföt á alla fjölskylduna
Snerti + englalampar 2900.-
Herragjafir
Margt sniðugt
Úr og skart, mikið úrval
Dömu- og herraúr
með pennum 2500.-
Jólavara, mikið úrval
Vasaljós með verkfærum 550.-
Veski með verkfærum 790.-
Útsalan byrjuð!
Nicole Kidman:
Cruise er
stóra ástin
FÓLK Leikkonan Nicole Kidman
segir að Tom Cruise sé enn stóra
ástin í lífi hennar. Kidman viður-
kenndi þetta í viðtali við Lesley
Stahl, einn stjórnenda 60 mínútna.
Hún sagðist jafnframt vera tilbú-
in í nýtt samband.
„Ég meina, að fá gæsahúð og
þessa tilfinningu í magann þegar
maður hugsar bara váááá. Auðvit-
að væri það gaman.“
Kidman og Cruise skildu á síð-
asta ári. Parið á tvö börn, Ísabellu
og Conor. Þegar Stahls spurði Kid-
man hvort hún kenndi sjálfri sér
um skilnaðinn svaraði Kidman:
„Auðvitað. Það eru tveir sem bera
ábygðina. Það er saga á bak við
allt. Og hún verður ekki borin á
borð fyrir alla.“ ■
Umdeild skreyting:
Dónalegur
jólasveinn
JÓL Jólaskreytingar í borginni
Frankfurt í Þýskalandi hafa vakið
mikla reiði meðal íbúa. Skreyting-
in sem um ræðir er jólasveinn sem
hangir utan á svölum byggingar. Á
svölunum er stytta af naktri konu
og er líkt og karl anginn sé að svala
forvitni sinni.
Borgarstarfsmenn í Frankfurt
hengdu skreytinguna umdeildu
upp en ekki er vitað hvort hún fái
að vera í friði eða hvort farið verði
eftir beiðni siðprúðra borgara. ■
MANDELA OG OPRAH
Fyrrverandi forseti S-Afríku, Nelson Mand-
ela, og Oprah Winfrey, þáttastjórnandinn
þekkti, hittust í Meyerton í Suður-Afríku.
Þar er rekinn skóli á vegum Opruh.
FÓLK Bono, söngvari U2, hvetur
Bandaríkjamenn til þess að létta
skuldastöðu Afríkuríkja og hjálpa
þeim til þess að stöðva útbreiðslu
alnæmis. Söngvarinn er á ferð um
Bandaríkin til að vekja athygli á
vanda álfunnar. Hann benti á að
lyf sem vinna á alnæmi væru til á
Vesturlöndum. „Til að ná til fólks
þurfum við á kirkjunni að halda,
fjölmiðlum og háskólum. Þetta er
gott tækifæri fyrir Bandaríkja-
menn til þess að sýna hvers þeir
eru megnugir,“ sagði Bono, sem
meðal annars ræddi við George
W. Bush um málið. ■
Bono hvetur Kana:
Hjálpið
Afríkuríkjum
KONUKÍKIR?
Íslensku jólasveinarnir eru kenndir við
margt en enginn þeirra við svona hnýsni.
NICOLE KIDMAN
Sjaldan veldur einn þá tveir
deila, segir Kidman.
Grínarinn Adam Sandler hefurverið ásakaður um að stela
textabroti frá gyðingapönkhljóm-
sveit sem gerir stólpagrín að upp-
runa sínum. Liðsmenn sveitarinnar,
sem heitir því skemmtilega nafni
Yidcore, heldur því fram að þeir
hafi látið Sandler hafa lag eftir sig
fyrir nokkrum mánuðum til þess að
nota í myndinni „Mr. Deeds“.
Sandler á að hafa hafnað því á sín-
um tíma. Nú segir sveitin að lag í
nýjustu mynd kappans, jólamynd-
inni „8 Crazy Nights“, sé skugga-
lega líkt laginu sem þeir sendu á
sínum tíma. Máli sínu til stuðnings
benda þeir á svipaða texta þar sem
gert er grín að rokkurunum Lou
Reed, Joey Ramone og Perry
Farrell. Talsmenn Sandlers segja
ásakanirnar of fáránlegar til þess
að svara þeim.
FÓLK Í FRÉTTUM