Fréttablaðið - 09.12.2002, Side 37
37MÁNUDAGUR 9. desember 2002
Golfgræjur - um jólin
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
94
42
11
/2
00
2
Ambassador kerrupoki 9.990 kr.
á›ur 14.990 kr.
Bite golfskór 6.990 kr.
á›ur 13.990 kr.
20 - 50% afsláttur
af öllum golfvörum
og fatna›i.
HJÁLPARSTARF Tombólubörn Rauða
krossins hafa sýnt hvað í þeim býr
í ár því þau hafa safnað rúmlega
hálfri milljón króna til hjálpar-
starfs það sem af er árinu 2002.
Það er talsvert meira en safnaðist
á árinu 2001, en féð rennur allt til
að aðstoða munaðarlaus og fötluð
börn í Dar es Salaam í Tansaníu.
Þór Daníelsson, sendifulltrúi
Rauða kross Íslands í Tansaníu,
heimsótti nýlega börnin sem ætl-
unin er að hjálpa og mun sjálfur
hafa umsjón með aðstoðinni.
Hann segir sum barnanna vera
munaðarlaus, önnur fötluð, annað
hvort á líkama eða geði. „Þau eru
í athvörfum þar sem þau fá mat
og húsaskjól. Starfsfólkið gerir
sitt besta miðað við aðstæður en
þörfin er mikil og börnin vantar
bæði dýnur, leikföng og annað
smálegt. Eldri krakkarnir geta
unnið fyrir sér, til dæmis með
saumaskap, og þess vegna ætlum
við að kaupa saumavélar fyrir þá.
Það má gera mjög mikið hérna
fyrir tiltölulega lítið fé.“
Til viðbótar framlagi tombólu-
krakka leggst fé sem börn á leik-
skólanum Norðurbergi í Hafnar-
firði hafa safnað við þá upphæð
sem notuð er til að aðstoða börnin
í Dar es Salaam. Börnin á Norður-
bergi hafa verið að safna flöskum
til endurnýtingar allt árið og af-
raksturinn gáfu þau til Rauða
krossins. ■
GLÆSILEG
Liv Tyler skartaði sínu fegursta þegar hún
mætti til frumsýningar á myndinni Turn-
arnir tveir, sem er önnur myndin í Hringa-
dróttinssögu, í New York á fimmtudag.
FÓLK Söngspíran Christina
Aguilera ætlar að reyna fyrir
sér á leiklistarbrautinni á
næsta ári. Aguilera segist nú
upptekin við að leita að hinu
eina rétta hlutverki, sem hún
vill að verði svolítið krefjandi.
„Ég er hrifin af hlutverk-
um eins og Angelina Jolie lék
í Girl, Interrupted. Eitthvað í
þeim gæðaflokki,“ sagði
Aguilera. „Ég hef ákveðnar
hugmyndir um hvernig það á
að vera þannig að kannski
sest ég niður með handrits-
höfundunum og segi þeim
til.“
Aguilera er ein þekktasta
poppdíva heims um þessar
mundir. Þó nokkrar söngkon-
ur hafa reynt fyrir sér í leik-
listinni með misjöfnum ár-
angri. ■
HJÁLPAR ÞÖRF
Fötluð stúlka í Dar es Salaam, en hún er ein þeirra sem munu njóta
aðstoðar tombólukrakka Rauða kross Íslands.
Rauði kross Íslands:
Frábær frammi-
staða tómbólubarna
CHRISTINA AGUILERA
Er ein vinsælasta poppdíva
heims um þessar mundir.
Aguilera á leið í leiklist:
Vill krefjandi
leikhlutverk
Leikarinn Daniel Day-Lewis semfer með eitt aðalhlutverka
myndarinnar „Gangs of New
York“ er ævareiður yfir fréttum
um að hann hafi valdið miklum
erfiðleikum á tökustað. Day-Lewis
hefur þá undarlegu vinnuaðferð að
halda sér „í karakter“ á milli at-
riða og getur það skapað vandræði
á tökustað. Leikarinn segist gera
þetta til þess að leikur hans verði
trúverðuglegri á hvíta tjaldinu.