Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 9. desember 2002 39
-það er kaffið!
Grímur Óli er 9 ára.
Hann fæddist með klumbufætur.
Eftir margar aðgerðir og stranga
þjálfun hefur hann alla sömu
möguleika og önnur börn og
uppgötvar eitthvað nýtt á
hverjum degi.
Undanfarin ár hefur Gevalia kaffi lagt milljónir króna til félags-
og góð gerðar mála. Í ár leggjum við okkar af mörkum til að
styrkja Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum,
til að opna þjónustumiðstöð fyrir foreldra og systkini.
Þegar þú kaupir pakka af Gevalia kaffi renna 15 krónur
til þessa verkefnis.
Sýnum umhyggju í verki um jólin.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
RY
D
1
91
94
11
/2
00
2
„Ég ætla að verða
fornleifafræðingur
þegar ég er orðinn
fullorðinn.“
JENNY Í BLOKKINNI
Jennifer Lopez kom fram á Kips Bay
klúbbnum í Bronx ásamt ýmsum skemmti-
kröftum á föstudaginn var. Hátíðin var í til-
efni af útsendingu Today-þáttarins sem
sýndur er á NBC. Þar söng J. Lo meðal
annars I’m still Jenny from the block.
Fótboltakappinn David Beck-ham hefur látið húðflúra nafn
yngri sonar síns Romeo á bak sitt.
Hann gaf vísbendingar um að
fjölgun hans og Victoriu væri
ekki lokið þegar hann sagði að
enn væri pláss á baki hans fyrir
þrjú til fimm nöfn til viðbótar.
Oasis hefur ákveðið að haldatónleikaför sinni áfram þar
sem Liam Gallagher hefur látið
gera við framtennur sínar. Söngv-
arinn braut þær í slagsmálum í
Þýskalandi fyrir rúmri viku síð-
an. Í kjölfarið frestaði sveitin öll-
um fyrirhuguðum tónleikum sín-
um í landinu. Aðgerð Liams gekk
framar vonum og er pilturinn nú
reiðubúinn til þess að raula í
hljóðnemann aftur. Ekki er vitað
hvort Oasis ætlar að endurbóka
tónleika í Þýskalandi.
Leik- og söngkonan JenniferLopez skýrði frá því í viðtali á
laugardag að ást hennar og Ben
Affleck væri sönn. Hún sagði líka
að þrátt fyrir að hjónabandið við
Affleck verði hennar þriðja þá
hafi hún aldrei verið í „raunveru-
legt hjónabandi“ áður. Hún sagði
jafnframt að parið væri ekki búið
að ákveða dagsetningu fyrir
hjónavígsluna. Allt er þá
þrennt er, er það ekki?
Talsmenn Almeida-leikhússins í London
segja Nicole Kidman hafa sýnt mikinn
áhuga á því að leika aðalhlutverkið í sýn-
ingu sem frumsýnd verður á næsta ári.
Leikkonan Nicole Kidman:
Aftur á
leiksvið í
London?
LEIKLIST Ástralska leikkonan
Nicole Kidman er nú í viðræðum
um að taka að sér aðalhlutverk
sýningar sem setja á upp á leik-
svið í London. Þetta verður í ann-
að skiptið sem hún gerir slíkt en
hún vakti mikla lukku í leikritinu
„The Blue Room“ árið 1998.
Hún íhugar nú að taka að sér
aðalhlutverkið í „Konunni frá haf-
inu“ eftir Henrik Ibsen. Áætlað er
að frumsýna verkið í Almeida-
leikhúsinu á næsta ári.
Leikhúsið, sem þykir ekki
mjög stórt, hefur verið lokað í tvö
ár vegna breytinga. Það verður
opnað á nýjan leik í apríl.
Kidman fékk lofsamlega dóma
fyrir frammistöðu sína í „The
Blue Room“, sem sýnt var í Don-
mar Warehouse leikhúsinu. Talað
er um að leikkonan sé afar spennt
fyrir því að taka að leika í leikriti
í London á næsta ári. ■