Fréttablaðið - 09.12.2002, Page 40
ÆVISAGA „Ætli það megi ekki segja
að ég reyni að bjóða lesendum að
slást í för með mér í heimsóknum
mínum til skáldsins,“ segir Ólafur
Ragnarsson um bók sína Líf í
skáldskap, sem hann byggir að
miklu leyti á áður óbirtum samtöl-
um sínum við Halldór Laxness.
Ólafur var forleggjari Halldórs í
þrettán ár og þeir kynntust náið á
þeim tíma. „Ég reyni að bregða
upp persónulegri mynd minni af
Halldóri Laxness, bæði sem
manni og skáldi, auk þess sem ég
fjalla um feril hans og helstu við-
fangsefni og styðst þá einnig við
efni úr einkabréfum og
minniskompum hans.“
Ólafur vísar einnig mikið í
skáldverk Halldórs, greinar hans
og kvæði og dregur þannig fram
skýra mynd af Halldóri og ferli
hans með því að flétta þessa þætti
saman. „Í samtölum okkar Hall-
dórs kom oft fram ýmislegt nýtt
varðandi verkin. Maður sér verk
hans og skrif gjarnan í öðru sam-
hengi þegar maður veit hvar hann
var staddur og hvað bærðist innra
með honum þegar hann festi þau á
blað.“
Uppistaða bókarinnar eru sam-
töl Halldórs og Ólafs frá árunum
1985-1989. „Við ræddum mikið um
fyrri hluta ferils hans og hann er í
brennidepli í bókinni enda veit
fólk almennt minna um það tíma-
bil en seinni árin.“ Ólafur segir
meðal annars frá fyrstu utanferð-
um unga mannsins sem var stað-
ráðinn í að vera rithöfundur á
heimsmælikvarða en drepast ella.
„Við stöldrum lengi við klaustur-
dvölina í Lúxemborg en Halldór
tók kaþólsku trúna mjög alvar-
lega og ætlaði á tímabili að verða
prestur eða munkur. Þá gekk mik-
ið á hjá Halldóri á meðan hann
dvaldi í Bandaríkjunum og
Kanada á árunum 1927-1929.
Hann lenti í útistöðum við Vestur-
Íslendinga og var hársbreidd frá
því að koma kvikmyndahandriti
um stúlku sem hann nefndi Sölku
Völku á filmu.“
Ólafur bendir á að bréf Hall-
dórs gefi góða mynd af lífi hans
en hann sagði sjálfur að bestu
heimildir um ævintýri sín „í
frumskógum menningarinnar“ á
þessum árum væru þau reiðinnar
býsn af bréfum sem hann hefði
skrifað sínum nánustu vinum.
Ólafur segir fjárhag Halldórs
hafa verið bágborinn á heims-
hornaflakkinu. „Þetta hefur ekki
verið mikið rætt hingað til en
móðir hans reyndist honum afar
vel og hikaði ekki við að selja
eignir til að fjármagna ferðir son-
arins. Þá átti hann ýmsa velvildar-
menn og var einnig býsna glúrinn
að koma sér áfram og snapa gist-
ingu og heimboð. Einhvern tíma
sagði hann mér til dæmis frá því
að hann hefði fljótt lært að það
væri ódýrt að dvelja á sumarhót-
elum á veturna.“
thorarinn@frettabladid.is
Stórskáld eða drepast ella
9. desember 2002 MÁNUDAGUR
NÓBELSVERÐLAUNAHAFINN
Imre Kertesz kemur ásamt Mögdu eiginkonu sinni til Stokkhólms fyrir helgi. Hann mun
veita bókmenntaverðlaunum Nóbels viðtöku við hátíðlega athöfn í borginni á morgun.
Ævisaga rithöfundarins J. J.R. Tolkiens eftir Michael
White er komin út hjá PP for-
lagi. Tolkien þarfnast vart
kynningar en sögur hans um
Hobbitann og Hringadróttins-
sögu eru flestum kunnar. Hér
segir frá bernsku hans í Suður-
Afríku og uppvaxtarárunum á
Englandi, fráfalli foreldra
hans, tilhugalífi og dvölinni í
skotgröfum fyrri heimstyrjald-
arinnar og háskólalífinu í Ox-
ford. White greinir einnig frá
yfirburðaþekkingu Tolkiens á
goðsögnum, sem mynda ramm-
an utan um sögur hans, barátt-
unni fyrir útgáfu bókanna,
frægðina og fylgikvilla hennar.
Ágúst Borgþór Sverrisson
þýddi.
BÆKUR
LÍF Í SKÁLDSKAP
Ólafur einbeitir sér að fyrri hluti rithöfund-
arferils Halldórs í þessari bók og er þegar
langt komin með næsta bindi, þar sem
hann mun halda áfram að rekja feril
skáldsins. Ólafur bendir á að þó mikið hafi
verið ritað um bækur og persónur Laxness
sé enn margt ósagt um feril hans.
SKÁLDIÐ OG FORLEGGJARINN
Það eru allmörg ár síðan Ólafur byrjaði að
vinna úr samtölum sínum og Halldórs en
á síðustu árum hefur hann einbeitt sér að
upphafi rithöfundarferils Halldórs og hefur
meðal annars fundið æskuverk Halldórs
sem hann birti í blöðum og tímaritum
meðal annars undir dulnefninu Snær
Svinni.
Single - Partý
föstudagskvöld 13. desember
Viltu vera með?
Sendu þá netpóst á 2single@2single.is
Upplýsingar í síma 698 7799
Ge
ym
ið
aug
lýsi
ngu
na
JÓLATILBOÐ
10 tíma ljósakort kr. 3.500. 10 tíma ljós + 10 tíma slender tone kr. 10.000.
Gelneglur kr. 4.500. Gelneglur með french k.r 5.500. Nudd - gufa.
Verið velkomin
S. 567-8780
Ólafur Ragnarsson
styðst við áður óbirt
samtöl sín við Halldór
Laxness í nýrri bók.