Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 43
Evrópsku kvikmynda-
verðlaunin:
Almodóvar
fékk fimmu
VERÐLAUN Kvikmynd Pedro
Almodóvars „Hable con ella“ (Tal-
aðu við hana) fékk fimm verðlaun
á evrópsku kvikmyndaverðlauna-
hátíðinni sem fór fram á laugar-
dagskvöld í Róm. Leikstjórinn
sjálfur fékk þrjú verðlaun. Þau
voru fyrir handritagerð auk þess
sem hann var verðlaunaður fyrir
leikstjórn bæði af dómnefndinni
og kvikmyndaáhugamönnum sem
kusu á Netinu. Myndin var valin
„besta myndin“ af dómnefndinni
auk þess sem aðalleikari hennar,
Javier Cámara, tók við verðlaun-
unum frá kjósendum sem besti
leikarinn.
Leikkonan Kate Winslet var
valin besta leikkonan af kjósend-
um fyrir myndina „Iris“. Winslet
var ekki á staðnum en á mynd-
bandsupptöku þakkaði hún sér-
staklega leikkonunni Judi Dench,
sem lék Iris á eldri árum í sam-
nefndri mynd. Hún sagði að án
hennar hefði sín frammistaða ver-
ið fyrir bí. Íslandsvinkonan Vict-
oria Abril tók við verðlaunum fyr-
ir framlag sitt til kvikmynda í
gegnum árin. ■
43MÁNUDAGUR 9. desember 2002
HÖNNUN Það hefur mikið verið
rætt, oftar en ekki í neikvæðum
tón, um nýjar höfuðstöðvar Orku-
veitu Reykjavíkur við Réttarháls.
Aftur á móti hefur minna verið
rætt um bygginguna sjálfa og
þær hugmyndir sem að baki
henni liggja. Arkitektastofan
Hornsteinar ehf. og Teiknistofa
Ingimundar Sveinssonar hf. unnu
saman að hönnun höfuðstöðv-
anna. Ögmundur Skarphéðinsson
og Ólafur Hersisson, arkitektar
hjá Hornsteinum, segja að megin-
inntak hönnunarinnar sé að
tryggja sveigjanleika og skapa
viðeigandi umgjörð um líflegan
vinnustað.
„Skrifstofurými er allt hannað
með þarfir nútímafyrirtækja í
huga,“ segir Ólafur. Þetta lýsir
sér í að skrifstofurnar eru alveg
opnar og án nokkurra veggja,
nema fyrir lítil fundaherbergi,
prentarasvæði og kaffistofur,
sem líka hýsa nánast einu föstu
innréttingarnar sem finna má í
þessari stóru byggingu. Ögmund-
ur segir að hugsunin sé sú í fram-
tíðinni að allur skrifstofubúnaður
verði kominn á hjól svo auðvelt
verði að færa starfsemi deilda án
teljandi fyrirhafnar ef með þarf.
Til að byrja með verður þó skrif-
stofubúnaðurinn að mestu hefð-
bundinn. Opið rými býður einnig
upp á haftalaus samskipti á milli
fólks. Nær þessi hugsun einnig til
stjórnenda fyrirtækisins, sem
munu deila saman rými.
Glerhýsi tengir svo háu bygg-
ingarinnar og þar er inngangur
fyrir viðskiptavini. Þar verður
meðal annars boðið upp á netkaffi
og fjögur listaverk munu prýða
anddyrið, þar á meðal heljarmik-
ill pendúll, eftir Hrein Friðfinns-
son, sem fylgir segulsviði jarðar
og tifar í heilan hring á 26 tíma
fresti. Þá blasa við tengibrýr á
milli hæða þar sem starfsfólk
labbar milli húsa, sem gefur and-
dyrinu mikið líf. „Það er hluti af
þessu opna rými að leiða starfs-
fólk inn á brautir þar sem það
kemst ekki hjá því að hitta aðra
og er því í minni hættu á að ein-
angrast,“ bendir Ólafur á.
„Byggingin er í raun þrjár
byggingar,“ útskýrir Ólafur.
„Húsið er 15.000 fermetrar og við
þurftum að hanna húsið þannig að
það myndi ekki þekja alla bygg-
ingarlóðina og byrgja útsýni fyrir
íbúabyggð of mikið.“ Neðstu tvær
hæðirnar mynda byggingu sem
er stærri að flatarmáli og virkar
eins og undirstaða fyrir hinar
tvær án þess að sjást ofan frá.
Önnur efri byggingin er klædd áli
og víkkar út upp á við og sveigist
sem tákn um þann sveigjanleika
sem rýmið innan hennar býður
upp á. Hin byggingin er svo
klædd graníti og hefðbundnari í
ytra útliti sem nokkurs akkeri
fyrir hina, sem að hluta til svífur.
Þær tvær eru að lokum byggðar
langsum upp í hallann til að
skyggja sem minnst á útsýni
íbúabyggðarinnar í Árbænum. ■
HÚS ORKUVEITUNNAR VIÐ RÉTTARHÁLS
Sveigða byggingin merkir sveigjanleika í starfsemi nútímafyrirtækja á meðan sú ferkantaða er merki um stöðugleika. Þær standa síðan á
traustum undirstöðum þriðju byggingarinnar, fyrstu tveim hæðunum.
Þrjár byggingar í einni
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur við Réttarháls hannaðar með
þarfir nútímafyrirtækis í huga. Sveigjanleiki, líf og góður aðbúnaður
viðskiptavina eru höfð í fyrirrúmi. Háu byggingarnar eru langsum upp
í hallann til að skyggja sem minnst á útsýni frá byggð í Árbænum.
GENGI ALMODÓVARS
Leikarinn Javier Cámara, leikstjórinn Pedro Almódóvar og leikkonan Leonor Watling
skemmtu sér líklegast konunglega á verðlaunahátíðinni í Róm á laugardagskvöldið.
Almodóvar hefur verið gagnrýndur af dýraverndunarsamtökum fyrir blóðugar nautabana-
senur myndar sinnar.
Í öllum okkar myndatökum eru
innifaldar fullunnar stækkanir.
Ljósmyndastofan Mynd
sími 565 4207 • www.ljosmynd.is
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími 554 3020
Passamyndatökur alla virka daga.
Nú eru að verða síðustu
möguleikar á að fá
myndatöku fyrir jól. Ef
þú ætlar að fá, dugir ekki
að panta núna, heldur
STRAX
Geisladiskurinn Lögin hansJóns er komin út en á honum
er að finna úrval laga eftir Jón
Björnsson, tónskáld, kórstjóra og
bónda frá Hafsteinsstöðum í
Skagafirði. Afkomendur Jóns
gefa diskinn út í aldarminningu
hans, en þann 23. febrúar næst-
komandi verða eitt hundrað ár
liðin frá fæðingu Jóns. Allur
ágóði af sölu disksins rennur til
styrktar efnilegu tónlistarfólki í
Skagafirði. Á disknum eru 17 lög
og hafa 12 þeirra verið gefin út
áður með ýmsum flytjendum,
þar á meðal Móðir mín, Hallar-
frúin, Björt nótt, Í góðra vina
ranni, og Þú varst mitt blóm.
NÝJAR PLÖTUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IP
/R
Ó
B
ER
T