Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 46
46 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
ÓDÝRT
Kaupið ykkur föt í Outlet-búðunum í Fákafeni. Þarkosta gallabuxur 2.900
krónur. Alveg eins og hinar sem
kosta 11.000 krónur í Kringlunni.
Undarleg hagfræði. Gullnáma al-
mennings.
Skiptið um sturtuhaus. Í Húsa-smiðjunni er úrval sturtu-hausa sem gefa mismunandi
bunur. Gefur hreinlætinu nýja og
óvænta vídd.
Malið kaffið sjálf í stór-mörkuðunum. Eilítið dýr-ara en miklu betra. Kaffi-
bollinn heima bragðast eins og á
útikaffihúsi í París. Hverrar
krónu virði.
Burstið skóna ykkar á meðanþið horfið á sjónvarpið. Fá-nýt tímaeyðsla verður að
hagnýtri stund.
Farið snemma að sofa ískammdeginu. Safnið orkutil að geta vakað heilu sum-
arnæturnar þegar þar að kemur.
Sá sem hefur ekki vakað sum-
arnótt veit ekki hvað það er að
lifa. Hinn sem vakir vetrarnótt
verður þreyttur.
Lífið leikur við mig
Björgvin Franz Gíslason, leikari og skemmtikraftur, er 25 ára í dag.
Hann hélt upp á daginn með kvöldverði á Caruso með konu sinni
Berglindi og fjölskyldum þeirra í gær. Er önnum kafinn þessa dagana
en hefur samt tíma fyrir dóttur hans og Berglindar, Eddu Lovísu.
25 ÁRA „Jú, mikið rétt, ég verð 25
ára á mánudaginn [í dag],“ segir
Björgvin Franz Gíslason, leikari
og skemmtikraftur, þar sem hann
er staddur í Kringlunni að velja
sér afmælisgjöf með konunni
sinni, Berglindi Ólafsdóttur. Til
hátíðabrigða snæða Björgvin og
Berglind kvöldverð á veitinga-
staðnum Caruso ásamt fjölskyld-
um sínum. Sá kvöldverður var
reyndar snæddur í gærkvöldi þar
sem Björgvin hefur lítinn tíma í
dag. „Þetta er raunar sameiginleg
afmælisveisla hjá okkur Berg-
lindi þar sem svo stutt er á milli
afmæla okkar. Hennar var 28.
nóvember síðastliðinn.“
Aðspurður segist Björgvin
vera lítið afmælisbarn í sér. „Ein-
hverra hluta vegna hef ég aldrei
haft neinn sérstakan áhuga þess-
um degi. Ég man reyndar eftir
einni mjög skemmtilegri afmæl-
isveislu frá því ég var lítill. Þá var
slegið upp grímuballi sem var
voða fjör. Síðan hélt ég líka upp á
tvítugsafmælið mitt. Þá bauð ég
krökkunum úr Leiklistarskólan-
um heim til mín. Þegar ég mætti
var búið að skreyta jólatré og
mamma bjó til kakó. Allt mjög
skemmtilegt. Tvítugsafmælið var
náttúrulega ákveðin tímamót líkt
og 25 ára afmæli,“ segir Björgvin.
Eins og áður sagði hefur
Björgvin ekki tíma á sjálfan af-
mælisdaginn til að gera sér glað-
an dag enda nóg að gera hjá
drengnum. „Ég er að leika í Halta
Billa í Þjóðleikhúsinu. Þá er ég að
æfa farsa með mömmu og pabba
sem byrjað verður að sýna á Stóra
sviðinu í Þjóðleikhúsinu seinni
hlutann í febrúar á næsta ári. Þar
leikum við mamma kærustupar,
sem er mjög fyndið.“ Þar fyrir
utan leikur Björgvin í barnaleik-
riti auk þess að skemmta með
galdrabrögðum, söng og glensi.
Hann og Bjarni töframaður skipt-
ast einnig á að vera með galdra
með Kaffibrúsakörlunum í Iðnó í
hádeginu.
„Í öllum þessum önnum reyni
ég líka að hafa alltaf fastar
gæðastundir með konunni og
dóttur okkar, Eddu Lovísu, sem
er 20 mánaða,“ segir Björgvin
glaðlega. ■
TÍMAMÓT
AFMÆLI
Haukur Hauksson fréttaritarihefur starfað hjá Ríkisútvarp-
inu frá árinu 1991. Hann segist
ekki vera Haukur Hauksson, ekki
fréttamaður, líkt og margir virðast
halda. „Það hefur komið fyrir að
fólk rugli okkur saman. Ég er hinn
eini sanni ekki ekki maður,“ segir
Haukur.
Haukur var á málabraut í
Menntaskólanum í Kópavogi þar
sem hann lærði rússnesku. Hann
hlaut námsstyrk frá Menningar-
stofnun Íslands og ráðstjórnar-
ríkjanna (MÍR) og flutti í kjölfarið
til Sovétríkjanna sálugu. Hann
upplifði tvær valdaránstilraunir
sem gerðar voru þar. Fyrst árið
1991 þegar reynt var að steypa
Gorbatsjov af stóli og svo aftur
1993 þegar Jeltsín leysti upp þing-
ið.
„Ég var þarna í fremstu víglínu
sem fréttaritari.“ Aðspurður hvort
hann hafi aldrei lent í lífshættu á
þeim tíma sagði Haukur. „Jú. Það
var leyniskytta sem skaut á mig
þegar það var útgöngubann. Ég
varð að reyna að standa mig í
starfinu og afla frétta. Það var
mesta hættan.“ Haukur lenti ein-
nig í svarthúfusveitunum svoköll-
uðu sem slógust við mótmælendur.
„Þetta var viðburðaríkur tími enda
stríðsástand í landinu,“ segir
fréttaritarinn.
Haukur segir miklar breytingar
hafa orðið á þjóðfélaginu frá því
Sovétríkin liðu undir lok, sumar
góðar, aðrar slæmar. „Fátækt var
ekki almenn á Sovéttímanum en í
dag eru tvær þjóðir í landinu. Smá
partur ræður öllu á meðan fjöldinn
allur er af öreigum. Að mörgu leyti
er þetta orðið eins og bananalýð-
veldi í Suður-Ameríku.“
Haukur er búsettur í miðborg
Moskvu og hefur síðustu tíu ár
búið hjá gamalli stríðshetju sem
gekk honum í móðurstað. „Hún er
svona týpísk babúska sem var í
Rauða hernum og barðist meðal
annars í Berlín. Hún er hörkukerl-
ing,“ segir Haukur.
Haukur starfar sem fréttaritari
í lausamennsku en aðalstarf hans
er ferðamennska. „Ég er að senda
Íslendinga í sumarferðir til Rúss-
lands. Þeir hafa farið til Moskvu,
Pétursborgar og borga við Svarta-
haf. Íslendingar hafa tekið þessu
vel og eru mjög ánægðir með ferð-
ina,“ segir Haukur Hauksson, ekki
ekki fréttamaður. ■
Haukur Hauksson ekki fréttamaður á nafna
sem starfað hefur sem fréttaritari í Rúss-
landi í 13 ár. Sá síðarnefndi segist ekki vera
ekki fréttamaðurinn. Var í Sovétríkjunum
þegar valdaránstilraunir voru gerðar og
lenti í lífshættu.
Persónan
Er ekki ekki fréttamaðurinn
HEFUR NÓG AÐ GERA
Björgvin er þessa dagana að leika í Halta Billa í Þjóðleikhúsinu, í barnaleikriti, skemmta
sem galdramaður og æfa farsa upp í Þjóðleikhúsi.
JARÐARFARIR
11:00 Örn Traustason verður jarðsunginn
frá Grindavíkurkirkju. Jarðsett verður í
Hafnarfjarðarkirkjugarði.
13:30 Guðrún Guðlaug Pétursdóttir, fædd
í Vík í Mýrdal, verður jarðsungin frá
Neskirkju.
13:30 Magnúsína (Magga) Guðrún Guð-
mundsdóttir verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
13:30 Guðlaugur Guðmundsson verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju.
14:00 Bragi Ásgeirsson Austfjörð, bifvéla-
virkjameistari, Aðalstræti 21, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju.
15:00 Pétur Á. Thorsteinsson, Austurbrún 4
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu.
ANDLÁT
Magnús Pétur Þorbergsson, málmsteypu-
maður, lést í New York laugardaginn 30.
nóvember.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Oslóar-
tréð á Austurvelli er ekki úr almennings-
garði í Osló. Það skaut rótum, óx, dafnaði
og var höggvið í Fjellskoven í Þrændalög-
um.
Leiðrétting
HÚS Í FJARSKA
Þó svo að húsið virðist einmannalegt og kalt á það líklegast sína sögu. Sínar ánægjustundir og sín leyndarmál. Það veitir a.m.k. alltaf
skjól fyrir gráum himnum og köldum vindum.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
Hvað sagði stofuveggurinn viðhinn stofuvegginn?
Við hittumst í horninu!
HAUKUR HAUKSSON
Er 36 ára og á eina dóttur. Hann hefur ver-
ið búsettur í Rússlandi um árabil og segist
vera vinstrisinnaður húmanisti með heil-
brigðar og réttar skoðanir.
KROSSGÁTA
LÓÐRÉTT: 1 tæp, 2 bæti, 3 gleymska, 4 hlemmurinn, 5 armur, 6 málmur, 7
súpuskál, 8 hrósaði, 11 svertingjar, 14 losa, 16 skrín, 18 hrúgi, 20 snáða, 21
karlmannsnafn, 23 þráir, 26 bletts, 28 starf, 30 kriki, 31 ljómi, 33 hamingja.
LÁRÉTT:
1 sögn,
4 galli,
9 steðja,
10 afkvæmi,
12 röskur,
13 áleit,
15 einnig,
17 blása,
19 nudd,
20 raddblæ,
22 köngull,
24 bit,
25 þramma,
27 gáti,
29 jafnframt,
32 innræti,
34 ofsakæti,
35 fitlar,
36 kvölds,
37 grind.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 viss, 4 skessa, 9 nákvæmt, 10 glit, 12 erji, 13
náðugi, 15 anga, 17 nagg, 19 nið, 20 ástar, 22 reisi, 24 rör, 25 glói, 27 ámur, 29 af-
gang, 32 njóð, 34 runa, 35 tómatar, 36 unaðar, 37 rauð. Lóðrétt: 1 vagn, 2 snið, 3
sátuna, 4 sveig, 5 kær, 6 emja, 7 stinni, 8 argaði, 11 lánsöm, 14 garg, 16 gisinn, 18
gróf, 20 áráttu, 21 trunta, 23 eigrar, 26 laðar, 28 rjóð, 30 aura, 31 gauð, 33 óma.
Einar Oddur Kristjánsson
Holt
Jens Hansson
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SOFIÐ Í RÖÐINNI
Þeir allra hörðustu mættu í biðröð við
verslunina Nexus á Hverfisgötunni til þess
að næla sér í miða á Lord of the Rings.