Fréttablaðið - 09.12.2002, Blaðsíða 48
í Húsasmiðjunni
Heimilislegar jólagjafir
Vigt
Góð í baksturinn!
995 kr.
Moulinex
Matvinnsluvél MC350.
Jólaverð 4.990 kr.
Electrolux - hræri- og
matvinnsluvél m/stálskál og stálhakkavél
- sú öflugasta. 3 ára ábyrgð.
39.999 kr.
Moulinex - matvinnsluvél
Fullkomið verkfæri - gerir allt.
Jólaverð 7.995 kr.
Moulinex blandari
Frá 3.690 kr.
Unold froðusnakkur
Froðuþeytari fyrir Cappuccino kaffi.
Súkkulaðistaukur fylgir.
Jólaverð1.895 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
64
7
1
2/
20
02
Allt frá grunni
að góðum jólum
Opið til kl. 18.00 um helgar í Skútuvogi
Tilboð
Moulinex töfrasproti
með skál.
Jólaverð 2.995 kr.
Það á ekki af blessuninni honumBirni Bjarnasyni að ganga; fyrst
tapar hann borgarstjóraslagnum
gegn Ingibjörgu Sólrúnu og er
dæmdur til að sitja við sama borð og
hún, í hinu óæðra öndvegi. Og ekki
nóg með það heldur gamnar borgar-
stjórinn sér við að kvelja Björn á
borgarstjórnarfundum með því að
hóta honum því að bjóða sig fram til
Alþingis svo að honum verði hvergi
vært fyrir þessari kvenpersónu sem
sigraði hann svo auðveldlega og eft-
irminnilega í borgarstjóraeinvíginu.
ÞAÐ er ljótur leikur að hræða fólk
og stríða því og á jólaföstunni er það
fyrir löngu aflagður ósiður að hræða
litlu börnin með Grýlu, en Ingibjörg
Sólrún virðist ekki geta á sér setið
að bregða sér í hennar gervi til þess
eins að hrekkja Björn Bjarnason.
Aðspurð segir hún að þetta sé í gríni
gert og enginn taki þennan leik há-
tíðlega nema vesalings Bjössi litli og
hann eigi þetta margfaldlega skilið
fyrir það óþekktarkast sem yfir
hann kom á árinu.
MARGIR í Samfylkingunni halda
að mikil tímamót verði í stjórnmála-
sögunni þegar borgarstjórinn í
Reykjavík leggur af stað á þing, í
fótspor annars borgarstjóra sem ein-
nig fór á þing og er af því síðan mik-
il saga. Hitt er svo annað mál að í
augnablikinu virðist borgarstjórinn
una sér hið besta í Grýluhlutverk-
inu, og ef óþekktin hleypur í íhaldið
dugir Össuri að segja sem svo: Jæja,
á ég að kalla í hana Grýlu? Viljiðið
kannski heldur glíma við hana held-
ur en mig? Og allt dettur í dúnalogn.
Og Samfylkingarmenn bíða eftir
Ingibjörgu Sólrúnu eins og Gyðingar
bíða eftir Messíasi – eða kannski öllu
heldur Messíönu í þessu tilviki.
EN eins og menn vita fylgir öllu
gamni nokkur alvara, og úr því að
nú er af stað farinn nokkurs konar
jólakabarett upp úr fornum sögum
um Grýlu og hennar skyldulið verð-
ur fróðlegt að fylgjast með annarri
hlutverkaskipan: Það er að vísu yfir-
drifið framboð á aðilum sem eru
eins og fæddir í hlutverk jólasvein-
anna. En hver verður Leppalúði í
þessu leikriti? Varla hefur Össur
áhuga á því? Og hver verður Jóla-
kötturinn? ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Grýla fór fyrir
ofan garð...
Bakþankar
Þráins Bertelssonar