Fréttablaðið - 16.12.2002, Síða 6
6 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
LEIÐRÉTTING
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 46
1.
2.
3.
Nú er ljóst að endanleg undir-
skrift vegna sölu á hlut ríkisins
í Búnaðarbankanum frestast.
Hversu mikið á S-hópurinn að
greiða fyrir hlutabréfin?
Dómsmálaráðherra hefur kynnt
frumvarp um hertar refsingar
við kynferðisbrotum gegn
börnum. Hver verður þyngsta
refsing fyrir verstu brotin?
Þorp á Indlandi er nefnt eftir
bandarískum forseta. Hvað
heitir það?
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8.433,7 -1,2%
Nasdaq: 1.362,4 -2,7%
FTSE: 3.878,1 -1,5%
DAX: 3.320,9 +0,5%
Nikkei: 8.516,1 -2,2%
S&P: 889,5 -1,3%
Kópavogslögregla:
Elti uppi
tvo stúta
LÖGREGLUFRÉTT Lögreglan í Kópa-
vogi veitti tveimur ökumönnum
eftirför eftir að þeir virtu ekki
stöðvunarmerki aðfaranótt sunnu-
dagsins. Kópavogslögreglan stóð
fyrir umfangsmiklu umferðareft-
irliti á Hafnarfjarðarvegi og stöðv-
aði fjölmarga ökumenn. Tveir öku-
menn hertu hins vegar á hraðanum
þegar lögregla gaf þeim merki um
að stöðva. Veitti lögreglan þeim
eftirför og náðust þeir fljótlega. Í
ljós kom að ökumennirnir voru
báðir ölvaðir.
Mikill erill var hjá lögreglunni í
Kópavogi vegna ölvunar í heima-
húsum. ■
Fylkjakosningar
í Indlandi:
Þjóðernis-
sinnar sigra
INDLAND, AP Flokkur þjóðernissinn-
aðra hindúa vann mikinn meiri-
hluta í fylkjakosningum í Vestur-
Indlandi en flokkurinn fékk um
tvo þriðju atkvæða. Stjórnmála-
spekingar hafa áhyggjur af því að
þessi stóri kosningasigur eigi eftir
að hafa áhrif á þingkosningar í
Indlandi sem eru eftir tvö ár. Ef
flokkurinn vinnur sigur í þeim
kosningum verður brotið blað í
stjórnmálasögu Indlands, en um-
burðarlyndi í trúarmálum hefur
verið í hávegum haft síðan sjálf-
stæðishetjan Mohandas Gandhi
var á lífi. ■
FERÐAMÁL Gistinætur á hótelum á
höfuðborgarsvæðinu í október-
mánuði voru færri en árið 2001. Í
október síðastliðnum töldust
gistinætur vera 40.010 en árið
2001 voru þær 45.153, sem telst
um 11% samdráttur milli ára.
Athygli vekur þó að fjöldi ís-
lenskra hótelgesta á höfuðborgar-
svæðinu eykst lítillega á þessu
tímabili, eða um rúm 3%. Þá
fækkar gistinóttum vegna útlend-
inga um rúm 13%.
Gistinóttum fækkaði á Suður-
nesjum, Vesturlandi og Vestfjörð-
um um 12%. Þar voru gistinætur
4.569 í október síðastliðnum en
árið á undan voru þær 5.182. Þess
ber að geta að gististöðum í þess-
um landshluta fækkaði um einn
og rúmum um 42.
Sama þróun átti sér stað á
Norðurlandi vestra og eystra. Þar
fækkaði gistinóttum um tæp 8%
milli ára. Árið 2001 voru gistinæt-
urnar 3.761 en í október síðast-
liðnum voru þær 3.466. Hótelum á
Norðurlandi hefur fjölgað um eitt
á tímabilinu og rúmum um 105.
Á Suðurlandi er þróunin önnur.
Eins og flesta aðra mánuði ársins
fjölgaði gistinóttum milli ára. Þær
voru 3.776 í ágúst 2001 en töldust
5.056 í október sl., en það er aukn-
ing um tæp 34%. Fjölgunin á bæði
við um íslenska og erlenda hótel-
gesti. Geta má þess að á Suður-
landi fjölgar gististöðum um 4 á
milli ára og rúmum um 303.
Þar sem skil á gistiskýrslum
hafa ekki verið nægjanleg fyrir
Austurland birtir Hagstofan ekki
tölur fyrir þann landshluta. ■
SIGURVEGARAR FAGNA
Leiðtogi þjóðernissinna, Narendra Modi,
fagnar fylgismönnum sínum eftir að flokk-
ur hans vann stórsigur í fylkjakosningum.
STJÓRNMÁL „Það er augljóst að ef
samningaviðræður eru á við-
kvæmu stigi þegar kosningar
eru þá er það mjög erfitt mál,“
segir Sigríður Anna Þórðardótt-
ir, formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis, um viðræður
við Evrópusambandið um stækk-
un evrópska efnahagssvæðisins.
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra hefur lýst því yfir að
viðræðurnar geti dregist fram
undir kosningar og reynst erfitt
við slíkar aðstæður að taka af-
stöðu til niðurstaðna þeirra.
Sigríður Anna segir að það ætti
að koma fljótlega í ljós hvort um
mjög erfiðar viðræður verði að
ræða. Sjálf gerir hún ráð fyrir að
svo verði en segir að það þurfi
ekki að vera verra þó það reyni á
samningamenn Íslands. Þeir hafi
staðist harðar atlögur áður. ■
Samningaviðræður
við ESB:
Gæti orðið
mjög erfitt
SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Pólverjar þurftu að hafa fyrir því að ná sínu fram gegn ESB og sama gildir um Íslendinga.
HEILBRIGÐISMÁL Framkvæmdastjóri
og stjórnendur Heilbrigðisstofnun-
ar Suðurnesja hafa undanfarið átt
viðræður við fulltrúa heilsugæslu-
læknanna sem sögðu upp störfum
við stofnunina 1. nóvember síðast-
liðinn. Viðræðurnar hafa reynst ár-
angurslausar og segir í yfirlýsingu
frá framkvæmdastjóra að strandað
hafi á kröfum læknanna, meðal
annars um að fá aksturstíma til og
frá vinnustað metinn til vinnutím-
ans og kröfu um viðbótarlauna-
flokka. Stjórnendur HSS telja sig
ekki hafa lagalegan grundvöll til að
semja um sérkjör af þessu tagi við
læknana sem sögðu upp störfum
sínum 1. nóvember síðastliðinn og
hefur þessi túlkun verið staðfest af
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Stjórnendur HSS hafa boðið öll-
um læknunum sem sögðu upp
störfum kjör sem eru í fullu sam-
ræmi við nýlegan úrskurð kjara-
nefndar um laun heilsugæslu-
lækna.
Ljóst er að þessi niðurstaða
hefur í för með sér að áfram
verður tímabundin röskun á
starfsemi heilsugæslunnar á
svæðinu. Tekið skal fram að heil-
brigðisstarfsmenn sem starfandi
eru á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja munu áfram reyna að leysa
úr vanda þeirra sjúklinga sem
leita til HSS.
Læknarnir sem létu af störfum
og hafa leitað endurráðningar segj-
ast þess fullvissir að skilaboð hafi
komið frá heilbrigðisráðneytinu
um að svona skuli staðið að málum
og staðfesti Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra það. „Það er alveg
ljóst að ráðuneytið er bundið af úr-
skurði Kjaranefndar og Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja hefur ekki
heimild til að semja umfram það.
Ef læknarnir hefðu ekki sagt upp
hefði þurft að skoða þá samninga
sem þeir voru á því í raun og veru
var mönnum mismunað með þeim
samningum. Fyrirmælin frá ráðu-
neytinu til allra eru að fylgja úr-
skurðinum og það hefði aldrei
gengið að læknar á Suðurnesjum
væru á öðrum kjörum en aðrir
læknar.“
Jón segist ekki trúa öðru en
hægt verði að ráða nýja lækna í
störf í Reykjanesbæ; um sé að
ræða stórt byggðarlag og hann viti
ekki annað en bæjaryfirvöld séu
tilbúin til að hliðra til með húsnæði
fyrir þá sem ráðnir verði.
bergljot@frettabladid.is
Trúi ekki öðru en hægt
verði að ráða lækna
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir það skýr skilaboð frá ráðuneytinu að ráða ekki
lækna á öðrum kjörum en úrskurður Kjaranefndar segi til um. Aðeins tveir læknar við störf nú
og bið á að fleiri komi til starfa.
HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA
Sigríður Snæbjörnsdóttir framkvæmdastjóri getur ekki hunsað fyrirmæli úr ráðuneytinu og
ráðið læknanna að nýju á sömu kjörum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Gistinóttum fjölgar um 34% á Suðurlandi:
Samdráttur hjá
hótelum á höfuð-
borgarsvæðinu
HÓTEL BORG
Um 11% samdráttur var á gistinóttum á
höfuðborgarsvæðinu í október miðað við
sama tíma í fyrra.
Flugslysanefnd:
Breytingar
í aðsigi
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hyggst leggja fram frum-
varp um grundvallarbreytingar á
Rannsóknarnefnd flugslysa.
Meðal breytinga er að nefndar-
mönnum verður fækkað úr fimm í
þrjá. Skipa á forstöðumann sem
jafnframt er rannsóknarstjóri.
Gera á auknar hæfnis- og hæfis-
kröfur til hans.
Heimild verður til að fela öðru
ríki að annast rannsóknir. Ráð-
herra getur falið nefndinni verk-
efni þó ekki hafi orðið slys og beð-
ið um nánari rannsókn slysa.
Almennt þagnarskylduákvæði
er tekið upp. Ljúka má málum
með yfirlýsingu í stað skýrslu. ■
Í frétt blaðsins um málefni
Byrgisins á laugardag var farið
rangt með að Byrgið hefði ekki
fengið framlag á fjárlögum ársins
2003. Hið rétta er að það fékk 12.7
milljónir sem dugar þó skammt.
Forsvarsmenn hafa því óskað eft-
ir að fá viðbótarframlag á fjár-
aukalögum.