Fréttablaðið - 16.12.2002, Side 15
MÁNUDAGUR 16. desember 2002
Selfoss:
Milljón í
hjólabretti
UMBÆTUR Íþrótta- og tómstunda-
ráð Árborgar hefur lagt til að
veitt verði milljón til gerðar
hjólabrettaaðstöðu í bænum og
gert ráð fyrir því fjárframlagi í
fjárhagsáætlun bæjarins á
næsta ári.
Hugmyndin er að hjólabretta-
aðstöðunni verði komið upp á
svæði sundlaugarinnar í bænum
en hún hefur tekið stakkaskipt-
um til hins betra á síðustu árum
og þá sérstaklega útisvæðið.
Mikill hjólabrettaáhugi mun
vera á Selfossi og full þörf á að-
stöðu fyrir þá fjölmörgu bæjar-
búa sem stunda íþróttina. ■
Deilt um tryggingafé:
Ekkjan fær
dánarbætur
DÓMSMÁL Eftirlifandi eiginkona
manns sem lést fyrir tveimur árum
á að fá greidda út líftryggingu sem
maðurinn keypti árið 1993, ári áður
en fólkið gekk í hjónaband. Þetta er
niðurstaða Hæstaréttar.
Maðurinn hafði tiltekið nánustu
vandamenn sem viðtakendur dán-
arbótanna þegar hann keypti
trygginguna. Það þýðir að maki, ef
einhver er, fær bæturnar við frá-
fall.
Þrjú börn mannsins, sem hann
átti áður en hann kynntist eftirlif-
andi eiginkonu sinni, gerðu einnig
tilkall til tryggingarfjárins, 7,2
milljóna króna. Þau fá ekkert. ■
Vandaðar heimilis- & gjafavörur
Kringlan 4-12 • s. 533 1322
Disney
jólasokkar
Syngjandi jólasokkur
verð kr. 1.790,-
BÍLVELTA VIÐ LAUGARVATN Bíll
valt ofan Laugardalshóla í ná-
grenni Laugarvatns á laugardags-
morgun. Einn maðurinn var flutt-
ur á sjúkrahús en hinir tveir sem
í bílnum voru sluppu. Allir voru í
bílbeltum.
600 ÖKUMENN STÖÐVAÐIR Lög-
reglan í Reykjavík stöðvaði sex
hundruð ökumenn við Litluhlíð á
Bústaðarvegi frá hálf tólf síðasta
föstudagskvöld til klukkan hálf
tvö um nóttina. Einn ökumaður
reyndist ölvaður og tveir réttind-
arlausir. Segir lögregla það ekki
hátt hlutfall miðað við þann fjöl-
da sem var stöðvaður.
LÖGREGLUFRÉTTIR