Fréttablaðið - 16.12.2002, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 16. desember 2002
K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • w w w . g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a
Notu› atvinnutæki
og fólksbílar
Smelltu flér á sölutorgi›!
Á vef Glitnis er a› finna til sölu: Nota›a fólksbíla og
atvinnutæki s.s. atvinnubifrei›ar, vinnuvélar,
i›na›arvélar, skrifstofu- og tölvubúna›.
fiar eru ítarlegar uppl‡singar og myndir, auk fless sem
hægt er a› reikna út grei›slubyr›i lána og senda tilbo›.
Kíktu á www.glitnir.is og sko›a›u frambo›i›!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
FÓLK Leikarinn Leonard Nimoy,
sem flestir þekkja best í hlut-
verki herra Spock í Star Trek,
hefur ákveðið að gefa leiklistar-
feril sinn upp á bátinn. Hann seg-
ist einfaldlega hafa fengið sig
fullsaddan af því að gera kvik-
myndir.
Nimoy ætlar að reyna fyrir
sér sem ljósmyndari og vonast til
þess að geta gert listina að at-
vinnu sinni. „Ég ætla ekki að taka
að mér vinnu sem heldur mér
fjarri heimili mínu í langan tíma,
líf mitt er of gott,“ sagði hann í
viðtali. „Það er búið að bjóða mér
fjöldann allan af hlutverkum en
ég hef vísað þeim frá mér. Um-
boðsmaður minn veit að það þýð-
ir ekkert að bjóða mér neitt sem
tekur meira en einn til tvo daga
að vinna. Ég er ekki reiðubúinn
að ferðast nema hægt sé að sam-
eina það minni eigin ferðaáætl-
unum. Ljósmyndun gefur mér út-
rás á sköpunargáfu mína.“
Nimoy segist gera sér fulla
grein fyrir því að ákvörðun hans
muni valda Star Trek-aðdáendum
vonbrigðum. Hann segist þó vera
orðinn gjörsamlega óþarfur í
Star Trek-heiminum. „Ég hef
ekki leikið í Star Trek-mynd síð-
an 1990. Ég frétti stundum af því
að sumir þeirra vonist til þess að
sjá Spock aftur. En hann er ein-
hvers staðar djúpt inni í keisara-
veldi Klingóna í njósnaleið-
angri,“ gantast hann að lokum. ■
Leikarinn Leonard Nimoy:
Herra Spock hættur að leika
SPOCK
Hélt ró sinni í gegnum öll ævintýri
hans og Kirks kafteins. Það að deyja og
lifna við aftur hafði ekki einu sinni mikil
áhrif á skap hans.
KVIKMYNDIR Yfirvöld í Norður-
Kóreu hafa krafist þess að sýn-
ingum á nýjustu James Bond-
myndinni, Die Another Day,
verði hætt hið snarasta um allan
heim þar sem hún sé móðgun við
kóresku þjóðina. Að sögn komm-
únistastjórnarinnar reyna fram-
leiðendur myndarinnar að draga
upp slæma mynd af landinu. Þau
segja stjórnvöld í Bandaríkjun-
um eiga sök á öllu því slæma sem
þjóðin hefur þurft að þola og að
þau séu „keisaraveldi hins illa.“
Í tuttugustu myndinni um
njósnara hennar hátignar berst
Bond, leikinn af Pierce Brosnan,
við demantasmyglara og vondan
ofursta í norður-kóreska hernum
sem hyggur á heimsyfirráð.
Í byrjun myndarinnar er Bond
tekinn höndum af hermönnum í
Norður-Kóreu og pyntaður í
marga mánuði áður en hann er
framseldur til Suður-Kóreu í
skiptum fyrir glæpamann.
Kommúnistastjórnin í Norð-
ur-Kóreu tekur tvö atriði úr
myndinni sem dæmi. Í hinu fyrra
sést hvar bóndi beitir beljum til
að plægja akur og að mati stjórn-
arinnar er það gert til að láta
landið líta út fyrir að vera frum-
stætt.
Síðara atriðið er þegar Bond
nýtur ásta í búddísku hofi. Að
sögn kommúnistastjórnarinnar
er það gert til að vekja upp óhug
og reiði í landinu.
„Bandaríkin eru höfuðstöðvar
þess ofbeldis- og klámefnis sem
dreift er um allan heim,“ segir
meðal annars í yfirlýsingu frá
kommúnistastjórninni.
Samband Norður-Kóreu og
Bandaríkjanna hefur verið afar
slæmt að undanförnu. George W.
Bush, forseti Bandaríkjanna,
kalllaði andstæðinga sína í austri
„öxulveldi hins illa“ ásamt Íran
og Írak. Fyrir stuttu viður-
kenndu yfirvöld í Norður-Kóreu
að þau stæðu að framleiðslu
kjarnavopna og var það ekki til
þess að bæta sambandið. ■
Vilja banna Bond
um allan heim
Njósnari hennar hátignar veldur usla í Norður-Kóreu. Ímynd
Norður-Kóreu er slæm í myndinni og móðgun við þjóðina, segir
kommúnistastjórnin. Vill banna myndina um allan heim. Kallar
Bandaríkin „keisaraveldi hins illa“.
Í NORÐUR-KÓREU
James Bond berst við illan ofursta í Norður-Kóreu í nýjustu mynd sinni. Yfirvöld í Norður-
Kóreu eru afar ósátt við myndina og segja hana gefa landinu slæma mynd og vera móðg-
un við þjóðina.