Fréttablaðið - 16.12.2002, Síða 40
16. desember 2002 MÁNUDAGUR
HERFERÐ „Ég veiktist af sjaldgæf-
um gigtarsjúkdómi og þurfti að
hætta að vinna. Í stað þess að
liggja og vorkenna sjálfri mér þá
ákvað ég að skrifa bók,“ svarar
Íris Aníta Hafsteinsdóttir rithöf-
undur aðspurð um tilurð bókar-
innar Ekki segja frá sem kom út
fyrir stuttu. Í fyrstu ætlaði Íris að
skrifa skáldsögu. Svo í samtali við
vinkonur sínar fékk Íris þá hug-
mynd að skrifa bók um heimilis-
og kynferðisofbeldi. Hún byggir
sögu sína á reynslu fjögurra
kvenna sem allar hafa upplifað
misnotkun eða heimilisofbeldi af
einhverri gerð. Sögur þeirra eru
fléttaðar saman í aðalsögupersón-
unni Sögu. „Bókin er skrifuð í
þeim tilgangi að gefa fólki sýn inn
í þennan raunveruleika, því þrátt
fyrir mikla umfjöllun í fjölmiðl-
um undanfarið fær fólk mjög tak-
markaða sýn á þennan heim,“ seg-
ir Íris. Hún segir jafnvel fordóma
ríkja gagnvart þolendum heimil-
isofbeldis. „Fólk spyr bara af
hverju viðkomandi losi sig ekki úr
sambandinu í stað þess að spyrja
sig hvers vegna gerandinn beitir
ofbeldi.“ Bókin virðist virka á
réttan hátt því Íris hefur orðið
vitni að hugarfarsbreytingum hjá
fólki sem hún þekkir og hefur les-
ið bókina.
Í framhaldi af bókinni ákváð
Íris ásamt vinkonum sínum að
setja af stað herferð gegn heimil-
is- og kynferðisofbeldi sem ýtt
var úr vör í lok september síðast-
liðins og hægt er að kynna sér á
vefslóðinni www.herferdin.tk. „Í
fyrstu átti herferðin að standa
fram í lok desember með fyrir-
lestrum víða um land. Hins vegar
hafa viðtökur samtaka, yfirvalda
og almennings verið slíkar að við
ákváðum að útvíkka hugmynd-
ina,“ útskýrir Íris. „Helsta mark-
miðið er að fræða krakka, ung-
linga, fólk sem starfar med þeim
sem og almenning allan um heim-
ilis- og kynferðisofbeldi, hvernig
bregðast eigi við því og sjá hættu-
merkin.“
hafsteinn@frettabladid.is
MÁLVERK Nú geta þeir ferðalangar
sem renna í gegnum Schiphol-
flugvöllinn í Amsterdam tekið sér
andartaks pásu og notið málverka
eftir hollenska meistara. Hol-
lenski krónprinsinn Willem-Alex-
ander opnaði lítið safn á flugvell-
inum í vikunni þar sem meðal
annars má sjá málverk eftir
Rembrandt sjálfan sem hann mál-
aði af eiginkonu sinni Saskia.
Meðal annarra verka, sem öll eru
í eigu Rijksmuseum, ríkissafnsins
í Amsterdam, eru málverk eftir
Jan Steen.
Óvíst var um tíma hvort af
opnuninni yrði í kjölfar þjófnaðar
á tveim Van Gogh-málverkum úr
Van Gogh-safninu í Amsterdam
um síðustu helgi. Þeir þjófar eru
enn ófundnir og er hollensk lög-
regla agndofa yfir því hvernig
þeim tókst verknaðurinn í svo vel
vörðu safni. Talsmenn Rijksmuse-
um eru þess vissir að verkin á
Schiphol séu örugg með hefð-
bundinni sólarhringsgæslu ofan á
þá gæslu sem flugvellir hafa yfir
að búa. ■
Fordómar gagnvart
þolendum ofbeldis
Umræða um heimilis- og kynferðisofbeldi er stöðugt að verða opnari.
Í bók sinni Ekki segja frá veitir Íris Aníta Hafsteinsdóttir fólki sýn á
þann ömurlega raunveruleika sem sumir þurfa að búa við.
ÍRIS ANÍTA HAFSTEINSDÓTTIR
Herferð Írisar og vinkvenna hennar átti í fyrstu aðeins að standa í tvo mánuði
en hefur nú öðlast eigið líf.
Málverkasafn á Schiphol:
Rembrandt á
flugvellinum
MÁLVERK EFTIR REMBRANDT
Þetta málverk er eitt af tíu sem hanga í
Schiphol-safninu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við
kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna
fyrir starfsárið 2003 til 2004.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins
skal skila til kjörstjórnar, á skrifstofu félagsins að
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík ásamt meðmælum a.m.k.
100 fullgildra félagsmanna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og auk
þess tillögur um 21 til viðbótar í trúnaðarmannaráð og 7 vara-
menn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs rennur út kl. 17:00 fimmtudaginn 16. janúar 2003.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.