Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2019, Blaðsíða 7

Læknablaðið - okt. 2019, Blaðsíða 7
LÆKNAblaðið 2019/105 423 Aðalsteinn Guðmundsson sérfræðingur í almennum lyf- og öldrunarlækningum klínískur dósent í lækna- deild HÍ, formaður lyfjanefndar Landspítala adalstg@landspitali.is DOI: 10.17992/lbl.2019.10.248 Brostið stuðningsnet útskrifta Í góðu heilbrigðiskerfi fá sjúklingar viðeigandi þjónustu á réttum tíma og á þeim stað þar sem hagkvæmast er að veita hana. Önnur mynd blasir víða við okkur í daglegum störfum í heilbrigðis­ þjónustunni. Örlítið brot af þeim raunveruleika nær athygli fjölmiðla í gegnum fréttalýsingar á yfirfullri bráðamóttöku Landspítala eða löngum biðtíma eftir hjúkrunarrýmum. Á bakvið tjöldin kraumar alvar­ legur mönnunarvandi sem er flókið að horfast í augu við. Tafir í útskriftum eru ekki séríslenskt fyrirbæri. Í öðrum löndum þykir það áskorun ef í 8­10% af rúm­ um sjúkrahúsa eru einstaklingar sem bíða útskriftar­ úrræða.1 Á Landspítala er hlutfallið tvöfalt hærra þegar einungis er horft til hóps sem bíður útskriftar á hjúkrunarheimili.2 Írska öldrunarfræðafélagið birti fyrr á þessu ári leiðarvísi sem tekur á þeim áskorun­ um sem tafir á útskriftum aldraðra leiða af sér fyrir samfélagið.3 Írar hafa valið að nota hugtakið „brostið stuðningsnet útskrifta“ (discharge support failure) sem ber ekki ásökunartón gagnvart þolendum í þessum kringumstæðum. Þetta er lausnamiðaðra en hugtak­ ið fráflæðisvandi og dregur fram í dagsljósið alvar­ leika þess að veita viðkvæmasta sjúklingahópnum ófullnægjandi þjónustu til að leysa plássvanda. Þegar fjölveikir aldraðir eða hrumir einstaklingar dvelja á bráðasjúkrahúsi lengur en nauðsynlegt er aukast líkur á ótímabærum dauða, færniskerðingu, spítalasýkingum og aukaverkunum tengdum lyfja­ meðferð. Einstaklingarnir lifa í óvissu, einangrast félagslega og einkenni þunglyndis og kvíða verða algengari. Það myndast mikil pressa á að útskrifa og starfsanda hrakar sem bætir enn frekar á hringekju uppsafnaðs vanda.4 Í þessu hefti Læknablaðsins5 birtist áhugaverð grein sem ber saman heilsufar og lifun íbúa hjúkr­ unarheimila fyrir og eftir reglugerðarbreytingu sem tók gildi 2007 með strangari skilyrðum fyrir flutningi inn á hjúkrunarheimili. Íbúar eru almennt veikari, flytjast oftar beint af sjúkrahúsi og lifun er styttri eftir reglugerðarbreytinguna þó margir aðrir þættir geti einnig haft áhrif á þessa þróun. Grein­ in beinir einnig sjónum að þungri sjúkdómsbyrði, færniskerðingu og vaxandi þörf fyrir einkennameð­ ferð sem hjúkrunarheimili þurfa að takast á við. Sterkustu áhættuþættirnir fyrir dauðsfalli innan tveggja ára frá flutningi á hjúkrunarheimili voru sjúkdómsgreiningarnar hjartabilun og langvinn lungnateppa. Hlutfall íbúa með greiningu Alzhei­ mer­sjúkdóms fer hækkandi en einstaklingar með þessa greiningu voru ólíklegri til að deyja innan tveggja ára. Þessar sviðsmyndir minna á mikilvægi teymisþjónustu faghópa í starfi hjúkrunarheimila. Þekkingargrunnur og verkferlar öldrunarlækninga eru mikilvægir þættir í þjónustu hjúkrunarheim­ ila en ábyrgð og hlutverk lækna í þjónustu hjúkr­ unarheimila hefur verið illa skilgreint opinberlega á Íslandi.5 Flutningur í hættulegt og framandi um­ hverfi bráðasjúkrahúsa er íbúum hjúkrunarheimila sjaldan til góðs. Meðferð lungnabólgu, lífslokameð­ ferð og atferlistruflanir tengdar heilabilunarsjúk­ dómum eru dæmi um kringumstæður þar sem einstaklingum farnast betur á heimilinu ef viðeig­ andi þekking er til staðar.6 Varðandi heilabilunar­ sjúkdóma má nefna að RAI­matstækið sem styður við fjármögnun hjúkrunarrýma hefur verið gagn­ rýnt fyrir að mæla ekki á sanngjarnan hátt einkenni heilabilunar og draga úr hvata heimila til að taka við einstaklingum með erfiðari atferlistruflanir sem oft bíða of lengi eftir plássi. Kortlagning á þeim þáttum sem hafa forspárgildi varðandi dvalartíma (lifun) í hjúkrunarrýmum gef­ ur einnig tilefni til að beina sjónum út fyrir veggi hjúkrunarheimila. Í því samhengi má ekki gleym­ ast að meirihluti aldraðra býr sjálfstætt til æviloka. Ströng skilyrði fyrir flutningi á hjúkrunarheimili og forgangur þeirra sem hafa beðið lengi á sjúkrahúsi eru við fyrstu sýn ekki óeðlileg forgangsröðun. Hins vegar er sú spurning orðin áleitin hvort afgerandi forgangur sjúkrahúsa að hjúkrunarrýmum án þess að aðrar grunnstoðir séu styrktar sé rétta leiðin. Í kanadískri rannsókn voru skoðaðar ástæður þess að ekki tókst að útskrifa einstaklinga sem höfðu ekki lengur þörf fyrir áframhaldandi sjúkrahús­ dvöl. Meginniðurstöður voru þær að á sjúkrahúsum væri innbyggð tregða til útskrifta í heimahús og að margir sem liggja á sjúkrahúsum og lenda á biðlista eftir hjúkrunarrými hefðu getað útskrifast heim með viðeigandi stuðningsneti.4 Fjölveikindi og færniskerðing eru algengustu ástæður innlagna á sjúkrahús. Þjónusta til stuðnings búsetu heima og verkferlar bráðasjúkrahúsa þarfn­ ast skipulags samkvæmt þessum raunveruleika. Þó tölfræði gefi til kynna að margt sé vel gert í íslensku heilbrigðiskerfi eru því miður margar vísbendingar um að fjölveiku öldruðu fólki sé ekki vel sinnt. Engin af meginstoðum heilbrigðisþjónustunnar hefur minna vægi en önnur þegar ráðist er að rót vandans. Heimaþjónusta, heilsugæsla, sjúkrahús og hjúkrunarheimili þurfa ásamt stjórnvöldum að vinna heildstætt saman í takt við lýðfræðilega þró­ un. Heimildir 1. Rojas­García A, Turner S, Pizzo E, Hudson E, Thomas J, Raine R. Impact and experiences of delayed discharge: a mixed­studies systematic re ­ view. Health Expect 2018; 21: 41­56. 2. Embætti landlæknis. Hjúkrunarrými á Íslandi ­ biðlistar, biðtími, lengd búsetu og uppbygging. Ársuppgjör 2018. 2019. 3. The Irish Gerontological Society. Position Paper. Addressing the Challenge of Delayed Discharges from Hospitals. May 2019. 4. Bender D, Holyoke P. Why some patients who do not need hospitalization cannot leave: A case study of reviews in 6 Canadian hospitals. Healthc Manage Forum 2018; 31: 121­5. 5. Hjaltadóttir I, Ólafsson K, Sigurðardóttir ÁK, Arnardóttir RH. Heilsa og lifun íbúa fyrir og eftir setningu strangari skilyrða fyrir flutningi á hjúkrunarheimili 2007. Læknablaðið 2019; 105: 435­41. 6. Hansdóttir H, Jónsson JE. Verksvið læknisins á hjúkrunarheimili. Læknablaðið 2009; 95: 187­92. Discharge Support Failure Adalsteinn Gudmundsson MD Clinical Associate Professor, Faculty of Medicine, University of Iceland. Chairman of the Drugs and Therapeutics Committee, Landspitali University Hospital alvogen.is FÆST ÁN LYFSEÐILS Í NÆSTA APÓTEKI | LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN Valablis 500 mg filmuhúðaðar töflur. Ábendingar: Valablis er notað til að meðhöndla frunsur hjá heilbrigðum einstaklingum með eðlilega nýrnastarfsemi sem eru 18 ára og eldri og hafa áður verið greindir með áblástur (frunsur) af lækni og þurfa endurtekna meðferð vegna áblásturs. Lyfið virkar með því að drepa eða stöðva vöxt veira sem kallast herpes simplex. Dagsetning endurskoðunar textans: 8. febrúar 2017. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. VALABLIS TIL MEÐFERÐAR VIÐ FRUNSUM INNIHELDUR VALACÍKLÓVÍR ÓÞARFI AÐ KOMA VIÐ SÝKT SVÆÐI TVEIR SKAMMTAR Á 12 TÍMUM FYRSTA LYFIÐ TIL INNTÖKU FÁANLEGT Í LAUSASÖLU EKKI SJÁANLEG MEÐFERÐ Á VÖRUM K O N T O R R E Y K J A V ÍK FÆST ÁN LYFSEÐILS Í NÆSTA APÓTEKI R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.