Læknablaðið - okt. 2019, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2019/105 461
Sigurður segir að hann hafi mikið velt fyrir
sér hvað hann ætti að gera í lífinu og valið
læknisfræði. „En það blundaði alltaf í mér
áhugi á frönsku en læknisfræðin var svo
krefjandi að það var ekki hægt að leika sér
í því. En þegar ég kom heim aftur eftir að
hafa verið ansi mörg ár í Bandaríkjunum
í sérnámi í skurðlækningum fór ég að
sækja námskeið hjá Alliance Française öðru
hvoru,“ segir hann.
„Ég hafði meira að segja leitað fyrir mér
í Montreal í Kanada, þegar ég var að sækja
námskeið í lýtalækningum í Bandaríkjun
um. Þannig gæti ég sameinað áhugamálið
og það sem ég hafði starfa af. En þeir svör
uðu mér til baka að það væri bara fyrir þá
tvítyngdu.“
Sigurður hætti á Landspítala sjötugur
og á eigin stofu 78 ára og eftir ábendingu
frá kennara hjá Alliance Française hóf hann
nám í Háskóla Íslands en hvað ætlar svo
Sigurður að gera við frönskuna? „Ég er ekki
tónlistarmaður en mér skilst að ef maður
lærir á píanó þurfi maður öðru hvoru að
taka í það. Ég ætla ekki að gera annað við
frönskuna en að hafa ánægju af henni.“
Sérhæfði sig í klofnum gómi
Við Sigurður ræðum hversu mjög skurð
lækningar hafa breyst. „Nú eru aðgerðir
á brjóst og kviðarholi gerðar í gegnum
lítil göt með spegli. Þeim er fjarstýrt. Ég
var að lesa um franskan lækni sem var
staddur í New York en gerði aðgerð með
vélmenni í Strassborg í gegnum netið. Þetta
eru aðrir heimar,“ segir Sigurður. En hafði
hann ímyndunarafl til að sjá þessar miklu
breytingar fyrir?
„Það er nú enginn spámaður í sínu eigin
landi eða fagi,“ segir hann og fylgist vel
með þróunum í lýtalækningum. Aðgerðir á
börnum drógu hann að þeim.
„Börn með klofna vör og góm. Það var
stórkostlegt að sjá hvað hægt var að gera
þar. Meðan ég var við vinnu í Kaliforníu
í nokkur ár fór ég í ferðir niður til Mexíkó
í sjálfboðaliðahópum á vegum háskólans.
Einu sinni fór ég niður til Gvatemala. Við
fórum upp í fjöllin til indjána og gátum
boðið þekkingu okkar og kunnáttu og lag
að svona hluti,“ segir hann.
„Í raun og veru sá maður á leiðinni heim
að maður hafði engu breytt fyrir samfé
lagið, þótt maður hefði gert heilmikið fyrir
fáeina einstaklinga. Það var blendin tilfinn
ing og ég velti því fyrir mér hvort ég hefði
gert þetta af eigingjörnum ástæðum af því
að mig langaði að sjá eitthvað óvenjulegt,
gera eitthvað eða hafa áhrif,“ segir Sigurð
ur.
„Ég lærði í nokkra mánuði hjá lækni sem
heitir Ralph D. Millard í Flórída. Hann var
einhver þekktasti skurðlæknir hvað varðar
Sigurður á skrifstofu sinni en þar sér-
valdi hann bækurnar sínar inn þegar
hann flutti í nýja íbúð. Aðrar bækur
hans fóru í Geymslur sem urðu stór-
bruna að bráð í Hafnarfirði í fyrravor.
Mynd/gag
að gera við klofna vör og góm og hann
hafði verið í hernum í Kóreu stríðinu.“
Þar hafi orðspor hans borist víða og
hann hlotið heilmikla reynslu.
Varð að breyta um kúrs
„Ég var hjá honum fyrst og fremst til að
öðlast færni í að gera við klofinn góm
og varir. Það varð mitt aðalstarf í fjögur
ár í San Diego en ekki hér heima. Að
stæður voru þannig að mér bauðst það
ekki,“ segir Sigurður og útskýrir. „Það
geta ekki margir verið að gutla í svona
sérhæfðu verkefni. Ég þróaðist því inn í
önnur verkefni,“ segir Sigurður. „Mað
ur ýtir engum út úr því sem hann er að
gera heldur reynir að gera eitthvað gott
sjálfur.“
Sigurður fann sína hillu hér heima
og vann við endursköpun brjósta eftir
brottnám í kjölfar krabbameins. „Þá var
það ýmist með því að flytja vef af baki
fram á brjóst, en þá þurfti að nota sílik
onpúða líka. En svo kom að því að ég
lagði í að flytja vef frá nafla að lífbeini,
sem er aðallega fita og brjóstabanki fyr
ir konur sem hafa misst brjóstið,“ segir
Sigurður sem var lengi í samstarfi við
Rafn Ragnarsson.
Mælir með námi á efri árum
En sér hann einhvern tímann eftir því
að hafa frekar valið skurðlækningar en
frönsku? „Nei, það gæti ég nú ekki sagt
með sanni. Franskan var hugðarefni og
leikur. Nei, ég sé ekkert eftir því,“ segir
hann stoltur af ævistarfinu. Hann mæl
ir hiklaust með námi að loknu starfi.
„Ef hugurinn stendur til náms er það
ekki spurning. Ég sá nokkra yfir sjötugt
í námi. Nokkrir voru í sögu og einn
var hissa að sjá mig því hann hélt alltaf
að hann væri elstur. Hann lærði rúss
nesku,“ segir hann og nefnir sérstaklega
einn kostinn. „Það er jú stímúlerandi að
vera innan um ungt fólk.“