Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2019, Síða 9

Læknablaðið - okt. 2019, Síða 9
LÆKNAblaðið 2019/105 425 R I T S T J Ó R N A R G R E I N DOI: 10.17992/lbl.2019.10.249 Arðbært heilbrigðiskerfi Í skugga langra biðlista eftir lífsnauðsynlegum að­ gerðum, langþreytts starfsfólks, margra vikna og mánaða biðar eftir nauðsynlegri læknisþjónustu liggja nú fyrir fjárlög fyrir árið 2020. Þar kemur með­ al annars fram að heildarframlög til heilbrigðismála nema 259.541 milljónum króna, um 26% af heildar­ útgjöldum ríkissjóðs. Þar af er 108,9 milljónum varið til sjúkrahúsþjónustu og 57,9 milljónum í heilbrigðis­ þjónustu utan sjúkrahúsa. Þrátt fyrir aukin framlög til málaflokksins vantar nokkuð á að hægt verði að bæta þá þjónustu sem okkur er ætlað að sinna. Má þar nefna aukinn launa­ og rekstrarkostnað vegna langvarandi fjársveltis til eðlilegs viðhalds. Mun því verulegur hluti þessa fjármagns fara í löngu tíma­ bærar endurbætur og launaleiðréttingar. Allflestar fjölskyldur í landinu þurfa einhvern tíma á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda. Sem betur fer hafa flestar þjónustukannanir komið vel út í alþjóðlegum samanburði. Því miður hefur það viðgengist um árabil að fjalla um rekstur þessa hornsteins almennrar velmegun­ ar eins og um venjulegan fyrirtækjarekstur væri að ræða, án þess að taka mið af þeirri framlegð sem þjónustan veitir beint og óbeint inn í efnahagslífið. Menn hafa ítrekað haldið því fram að um taprekstur væri að ræða þegar í upphafi var kolvitlaust gefið! Hið rétta er að flestum Íslendingum er vel kunn­ ugt um arðsemi þessarar þjónustu. Góð heilsa er forsenda þess að við getum verið virkir þátttakend­ ur á vinnumarkaði. Staðreyndin er sú að á hverju ári væri hægt að reikna út þann gríðarlega arð sem þessi hornsteinn að velmegun og farsæld þjóðarinn­ ar veitir inn í hagkerfið. Eftirlits­ og heilbrigðisstofnanir Bandaríkjanna hafa reiknað út hagnaðinn af því að bjarga einu mannslífi, hann nemur 9,7 milljónum Bandaríkja­ dala.1 Ef tekið er mið af öllum viðmiðum, samfélags­ legum, framlegðar til atvinnulífs, virkrar þátttöku í kaupum á þjónustu og fleira er árlegur hagnaður af hverju auknu lífsgæðavegnu lífári talinn vera 135.714 Bandaríkjadalir. Enginn ágreiningur er um fjárhagslegan ávinning þess að opna kransæð í hjartaáfalli, eða skipta um ónýta mjöðm vegna slitgigtar. Hins vegar höfum við ekki haldið á lofti kostnaðarlegri arðsemi af öðrum læknisverkum og lýðheilsuaðgerðum. Þannig hefur til dæmis nýlega verið reiknað út að árlegur sparnaður af því að greina einstakling með undirliggjandi ónæmisgalla og hefja viðeigandi eftirlit og meðferð sé upp á tæpar 7 milljónir króna, jafnvel þó kostnaðarsamar reglu­ legar mótefnameðferðir séu viðhafðar.2 Þannig má ætla að árleg arðsemi af slíkri meðferð geti numið að minnsta kosti 150 milljónum króna! Fjölmargar úttektir hafa verið gerðar á gæðum og afköstum íslensks heilbrigðiskerfis sem undantek­ ingarlaust hafa sýnt að þrátt fyrir að heildarfram­ lög til málaflokksins séu eitthvert lægsta hlutfall af vergri landsframleiðslu sem þekkist á alþjóðavísu eru gæði og afköst með því besta sem til þekkist.3 Þrátt fyrir góðan árangur er ljóst að veruleg tækifæri eru fyrir hendi til að auka arðsemi okk­ ar heilbrigðiskerfis enn frekar. Almennt er talið að hlutfall tapaðs fjármagns innan heilbrigðiskerfis­ ins geti numið 20­30% á Vesturlöndum. Dæmi um slíkt er þegar sjúklingar eru sendir í læknisaðgerðir erlendis þótt sambærileg og jafnvel betri þjónusta sé í boði innanlands. Einnig er aðgengi sjúklinga að almennri læknisþjónustu heilsugæslulækna óviðunandi. Vaxandi lyfjakostnaður hefur verið til umfjöllunar. Gerist þetta á sama tíma og aðgengi að góðum og gömlum lyfjum (oftast ódýrum) verður sífellt erfiðara, auk þess sem sjúklingar fá oft ekki afgreidd lífsnauðsynleg lyf með tilheyrandi áhættu og auknum kostnaði. Í því sambandi má nefna ný­ lega úttekt á gæðum nýrra lyfja á markaði fyrir árin 2011­2017 sem bendir til að eingöngu 25% þeirra hafi haft verulega mikil áhrif, en 58% fólu ekki í sér neina sjáanlega viðbót við eldri og oftast ódýrari með­ ferðarleiðir.4 Einnig hefur oft verið bent á möguleika samskiptamiðla til að stuðla að bættri og hagkvæm­ ari heilbrigðisþjónustu.5 Á undanförnum árum hafa orðið gríðarlegar framfarir í notkun gervigreindar og tölvuforrita með það að markmiði að stuðla að auknu aðgengi einstaklinga að lausnum til að taka frumkvæði að eigin heilsu.6 Undirritaður hefur ásamt samstarfsmönnum tekið þátt í þessari nýsköp­ un, en verulegur kostnaðarlegur ávinningur næst ef slíkar lausnir eru notaðar á markvissan máta.7,8 Því miður hefur þessu verið tekið fálega í ráðuneyti heil­ brigðismála fram til þessa, þrátt fyrir að opinberlega sé rætt um mikilvægi slíkra lausna. Það er með ólík­ indum að við erum tilbúin að ræða um sjálfkeyrandi bíla, en erum enn langt á eftir í rafrænum lausnum til að styðja fólk í heilsueflandi aðgerðum og ekki síður til að styrkja lækna og heilbrigðisstarfsfólk í að veita bestu og arðsömustu þjónustuna. Af framansögðu mætti vera ljóst að það er löngu tímabært að við hættum að ræða um taprekstur heil­ brigðiskerfisins, hann er einfaldlega ekki til staðar. Við megum þó ekki staðna í þeirri viðleitni að gera gott kerfi betra og arðsamara. Þar liggja fjölmörg sóknarfæri og er hér aðeins bent á örfá þeirra. Heimildir við leiðarann eru á heimasíðu blaðsins. The profitabilty of health care in Iceland Bjorn R. Ludviksson, MD, Ph.D. University of Iceland, Department of medicine, division of immunology, Landspitali University Hospital, Hringbraut, 101 Reykjavik, Iceland. Björn Rúnar Lúðvíksson prófessor í ónæmisfræði, læknadeild Háskóla Íslands og ónæmisfræði- deild Landspítala bjornlud@landspitali.is

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.