Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - okt. 2019, Side 20

Læknablaðið - okt. 2019, Side 20
436 LÆKNAblaðið 2019/105 R A N N S Ó K N Ætla má að reglugerðarbreytingin sem gerð var 21. desember 2007 hafi haft áhrif á þann hóp sem dvaldi á íslenskum hjúkr­ unarheimilum frá og með árinu 2008,9 en áhrifin hafa ekki ver­ ið rannsökuð. Þekking á þörfum og lifun þeirra sem flytja inn á hjúkrunarheimili er nauðsynleg til að hægt sé að skipuleggja við­ eigandi þjónustu. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvort munur væri á heilsufari og færni þeirra sem fluttu inn á íslensk hjúkr­ unarheimili á árunum 2003­2007 annars vegar og 2008­2014 hins vegar. Einnig að bera saman lifun íbúa á milli þessara tveggja tímabila og kanna hvaða forspárgildi mismunandi heilsufars­ og færnivísar hefðu fyrir lifun til eins og tveggja ára. Efniviður og aðferðir Rannsóknin er lýsandi, afturskyggn samanburðarrannsókn. Gögn rannsóknarinnar eru niðurstöður matsgerða með mæli­ tækinu „Gagnasafn um heilsufar og hjúkrunarþörf íbúa á öldr­ unarstofnunum“ útgáfu 2.0 (Minimum Data Set 2.0), sem er gagnasöfnunarhluti matstækisins: „Raunverulegur aðbúnaður íbúa“ (Resident Assessment Instrument; interRAI). Á Íslandi hef­ ur þessi gagnasöfnunarhluti matstækisins verið kallaður „RAI­ mælitæki“ og verður vísað til þess heitis hér. RAI­mælitækið felur í sér samræmda skráningu og mat á heilsufari, færni og þörfum íbúa á hjúkrunarheimilum. Frá árinu 1996 hafa íbúar á íslensk­ um hjúkrunarheimilum verið metnir með RAI­mælitækinu og frá árinu 2003 hefur það verið gert að minnsta kosti þrisvar á ári og niðurstaða RAI­þyngdarstuðuls notuð til að reikna greiðslur til hjúkrunarheimila.11 RAI­mælitækið var fyrst og fremst hannað sem klínískt mælitæki (350 breytur) í þeim tilgangi að bæta gæði umönnunar á hjúkrunarheimilum. Það hefur þó einnig verið not­ að við gagnasöfnun fyrir rannsóknir víða um heim og sýnt hefur verið fram á réttmæti og áreiðanleika mælitækisins.12 Þverfaglegur hópur vinnur að gerð matsins á flestum hjúkr­ unarheimilum á Íslandi, en hjúkrunarfræðingur sem hefur lært á mælitækið hefur yfirumsjón með gerð matsins á hverjum stað. Upplýsinga fyrir matið er aflað úr sjúkraskrá, með athugun á íbú­ anum og viðtali við íbúa og ættingja hans, samkvæmt nákvæmri leiðbeiningabók RAI­mælitækisins sem skilgreinir hvernig meta á hvert atriði. Í þessari rannsókn eru notaðar valdar breytur úr RAI­ mælitækinu auk útkomu úr eftirtöldum 6 heilsu­ og færnikvörð­ um sem hannaðir hafa verið fyrir mælitækið. Lífskvarðinn (Changes in Health, End­stage disease and Signs and Symptomsscale, CHESS scale), gefur til kynna hversu stöð­ ugt heilsufar einstaklingsins er. Lægsta gildið er 0 og gefur til kynna að heilsufarið sé stöðugt en hæsta gildið 5 að heilsufar sé óstöðugt, hætta sé á andláti, sjúkrahússinnlögn og miklu álagi á umönnunaraðila. Rannsóknir hafa staðfest að kvarðinn hefur for­ spárgildi fyrir andláti.6,12 Verkjakvarðinn (Pain Scale), hefur lægsta gildi 0 sem merk­ ir að einstaklingurinn hefur enga verki en hæsta gildið 3 að um mjög mikla og óbærilega verki sé að ræða. Rannsóknir benda til að kvarðinn sé áreiðanlegur til að meta verki hjá íbúum á hjúkr­ unarheimilum.13 Þunglyndiskvarðinn (Depression Rating Scale, DRS scale), hefur gildi frá 0 til 14. Gildið 0 gefur til kynna að einstaklingurinn hafi engin einkenni þunglyndis. Gildi 3 bendir til vægs þunglyndis og gildi 14 að um mjög alvarlegt þunglyndi sé að ræða.14 Bent hefur verið á mjög gott næmi og viðunandi sérhæfni kvarðans en jafn­ framt að þörf sé á frekari rannsóknum á kvarðanum.14 Vitræni kvarðinn (Cognitive Performance Scale, CPS scale), hefur gildi 0­6. Gildið 0 þýðir að einstaklingurinn hefur óskerta vitræna getu en síðan stigversnandi vitræna getu með hækkandi gildum og gildi 6 gefur til kynna mjög mikla vitræna skerðingu. Sýnt hef­ ur verið fram á ágæta fylgni þessa kvarða við MMSE (Mini­Mental State Examination) við mat á vitrænni getu.15 Langi ADL kvarðinn (ADL long scale), hefur gildi á bilinu 0 til 28. Hækkandi gildi bendir til versnandi færni einstaklingsins í athöfnum daglegs lífs (ADL). Rannsóknir hafa bent til að kvarðinn hafi ágætt næmi til að mæla breytingar á færni.12 Virknikvarðinn (Index of Social Engagement, ISE scale), gefur til kynna meiri virkni eftir því sem talan er hærri og hefur gildi frá Tafla I. Samanburður á aldri, kyni, líkamsþyngdarstuðli og tíðni valinna sjúk- dómsgreininga á milli tímabilanna 2003-2007 og 2008-2014. Meðaltal og staðalfrávik fyrir aldur og líkamsþyngdarstuðul, en fjöldi og hlutfall (%) fyrir allt annað. 2003-2007 n=1832 2008-2014 n=3397 p-gildi* Aldur í árum 82,1 ± 7,7 82,7 ± 8,7 <0,0001 Líkamsþyngdarstuðull 24,0 ± 6,0 24,2 ± 5,7 0,3 Konur 1070 (58,4) 1980 (58,3) 0,9 SJÚKDÓMSGREININGAR Blóðþurrðarsjúkdómur í hjarta 471 (25,7) 1046 (30,8) <0,0001 Hjartabilun 336 (18,3) 756 (22,3) 0,0009 Sykursýki 219 (12,0) 509 (15,0) 0,0025 Langvinn lungnateppa 215 (11,7) 504 (14,8) 0,002 Alzheimer-sjúkdómur 437 (23,9) 1005 (29,6) <0,0001 Önnur elliglöp 583 (31,8) 1165 (34,3) 0,07 Astmi 107 (5,8) 208 (6,1) 0,7 Helftarlömun 133 (7,3) 221 (6,5) 0,3 Kvíði 599 (33,0) 1185 (34,9) 0,1 Þunglyndi 683 (37,3) 1211 (35,7) 0,2 *t-próf óháðra úrtaka fyrir aldur og líkamsþyngdarstuðul, kí-kvaðratpróf fyrir tíðni sjúkdómsgreininga. Tafla II. Samanburður á útkomu heilsu- og færnikvarðanna 6 milli tímabilanna 2003-2007 og 2008-2014. Meðaltal og staðalfrávik. 2003-2007 n=1832 2008-2014 n=3397 p-gildi* Lífskvarði 1,51 ± 1,35 1,87 ± 1,40 <0,0001 Þunglyndiskvarði 1,85 ± 2,33 2,26 ± 2,67 <0,0001 Vitrænn kvarði 2,58 ± 1,79 3,0 ± 1,74 <0,0001 Verkjakvarði 1,18 ± 0,97 1,12 ± 0,98 0,046 Langur ADL-kvarði 11,6 ± 8,33 15,37 ± 8,25 <0,0001 Virknikvarði 2,39 ± 2,03 2,54 ± 1,97 0,009 *t-próf óháðra úrtaka. ADL: athafnir daglegs lífs.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.