Læknablaðið - okt. 2019, Blaðsíða 22
438 LÆKNAblaðið 2019/105
R A N N S Ó K N
Forspárgildi hinna völdu sjúkdómsgreininga og heilsu og
færnikvarða er sýnt í töflu III fyrir eins árs lifun og í töflu IV fyrir
tveggja ára lifun. Stýribreytur voru aldur, kyn, líkamsþyngdar
stuðull og hvaðan fólk flutti inn á hjúkrunarheimili. Töflurnar
sýna að sjúkdómsgreiningarnar hjartabilun og langvinn lungna
teppa voru sterkustu áhættuþættirnir fyrir dauðsfalli í báð
um hópunum, bæði innan eins og tveggja ára frá komu, ásamt
blóðþurrðarsjúkdómi í hjarta, hin síðastnefnda þó einkum fyrir
dauðsfalli innan tveggja ára (tafla IV). Sykursýki var einnig skýr
áhættuþáttur innan fyrri hópsins, en ekki eftir 2008, hvorki varð
andi dauðsfall innan eins árs né tveggja ára. Minni líkur reyndust
vera á dauðsfalli innan eins til tveggja ára frá komu ef einstak
lingurinn var greindur með Alzheimersjúkdóm, einkum í síðari
hópnum (frá og með 2008). Einnig virtist greiningin helftarlöm
un að vissu marki draga úr líkum á dauðsfalli í síðari hópnum
og sjúkdómsgreiningin þunglyndi dró einnig úr dánarlíkum í
þessari greiningu, þó fyrst og fremst í samþættri greiningu allra
þátta (töflur III og IV). Innan heilsu og færnikvarðanna höfðu lífs
kvarðinn og langi ADLkvarðinn skýrast forspárgildi, bæði fyrir
eins og tveggja ára lifun í báðum hópum. Meiri félagsleg virkni
(virknikvarði) var hins vegar jákvæð fyrir bæði eins og tveggja
ára lifun. Við einföldu greininguna, það er þegar einungis einni
breytu var bætt við stýribreyturnar (HR1 í töflu III og IV), hvarf
marktækni þess hvaðan fólk kom á hjúkrunarheimilið þegar ADL
kvarðinn kom inn í greininguna og eingöngu þá.
Umræður
Niðurstöðurnar sýna að marktækur munur var á heilsu og lifun
þeirra sem fluttu á hjúkrunarheimili á árunum 20032007 annars
vegar og hins vegar á tímabilinu 20082014. Þeir sem fluttu á hjúkr
unarheimili á seinna tímabilinu voru eldri og fleiri voru greindir
með Alzheimersjúkdóm, blóðþurrðarsjúkdóm í hjarta, hjartabil
un, sykursýki og langvinna lungnateppu. Færri fluttu á hjúkr
unarheimili beint að heiman og hærra hlutfall lést innan eins og
tveggja ára á seinna tímabilinu. Sterkustu áhættuþættirnir fyrir
dauðsfalli innan eins og tveggja ára frá komu á báðum tímabil
um voru sjúkdómsgreiningarnar hjartabilun og langvinn lungna
teppa, auk fleiri stiga á lífskvarðanum og langa ADLkvarðanum.
Bent hefur verið á að tíðni mismunandi heilabilunarsjúkdóma
og hegðunarbreytinga á hjúkrunarheimilum sé óljós, meðal
annars vegna mismunandi greiningaraðferða. Í bandarískri rann
sókn frá 2010 er áætlað að 32% þeirra sem eru 85 ára og eldri séu
með Alzheimersjúkdóm,17 sem er hærra en í hópnum sem flutti
á hjúkrunarheimili fyrir 2008 í þessari rannsókn, en svipað og í
síðari hópnum. Hugsanlega skýrist það af því að meðalaldur ný
Tafla III. Forspárstuðull fjögurra þekktra bakgrunnsþátta (control variables), 9 sjúkdómsgreininga og 6 heilsu- og færnikvarða fyrir andláti innan árs meðal íbúa á hjúkr-
unarheimili á árunum 2003-2007 og 2008-2013.
Hópur 2003-2007 (n=1832) Hópur 2008-2013 (n=2895)
HR1a) 95% CI HR2b) 95% CI HR1a) 95% CI HR2b) 95% CI
Aldur 1,03 1,02-1,05 1,04 1,03-1,05 1,02 1,01-1,03 1,02 1,01-1,03
Kyn (kona) 0,58 0,48-0,69 0,68 0,56-0,82 0,66 0,58-0,75 0,79 0,69-0,90
Líkamsþyngdarstuðull 0,95 0,94-0,96 0,96 0,95-0,97 0,96 0,95-0,97 0,96 0,95-0,97
Kom frá sjúkrastofnun 1,08 1,03-1,14 1,02 0,97-1,07 1,07 1,03-1,11 1,02 0,98-1,06
Alzheimer 0,80 0,64-1,01 0,64 0,49-0,82 0,82 0,71-0,94 0,72 0,61-0,85
Önnur elliglöp 0,98 0,81-1,19 0,67 0,54-0,83 1,10 0,96-1,25 0,81 0,69-0,94
Blóðþurrðarsjúkdómur í hjarta 1,40 1,16-1,70 1,39 1,13-1,70 1,23 1,08-1,41 1,05 0,91-1,21
Hjartabilun 1,55 1,26-1,91 1,18 0,94-1,48 1,82 1,58-2,09 1,47 1,27-1,71
Langvinn lungnateppa 1,64 1,29-2,08 1,38 1,07-1,79 1,82 1,56-2,12 1,30 1,11-1,54
Astmi 1,25 0,88-1,78 1,05 0,72-1,54 1,47 1,16-1,85 1,07 0,84-1,37
Sykursýki 1,38 1,06-1,79 1,38 1,05-1,82 1,12 0,94-1,33 1,03 0,88-1,26
Helftarlömun 0,97 0,68-1,37 0,91 0,63-1,31 0,81 0,62-1,07 0,62 0,47-0,82
Kvíði 0,98 0,81-1,20 0,87 0,67-1,01 1,19 1,04-1,36 1,02 0,89-1,17
Þunglyndi 0,85 0,70-1,03 0,76 0,62-0,94 0,96 0,84-1,10 0,78 0,68-0,90
Lífskvarði 1,65 1,55-1,76 1,46 1,37-1,59 1,66 1,58-1,74 1,41 1,33-1,48
Þunglyndiskvarði 1,07 1,03-1,11 0,98 0,93-1,01 1,05 1,03-1,07 0,94 0,91-0,96
Vitrænn kvarði 1,12 1,07-1,18 0,98 0,93-1,05 1,19 1,14-1,24 1,00 0,95-1,05
Verkjakvarði 1,37 1,25-1,51 1,09 0,98-1,21 1,41 1,32-1,50 1,18 1,10-1,27
Langur ADL-kvarði c) 1,07 1,06-1,08 1,04 1,02-1,05 1,09 1,08-1,10 1,06 1,05-1,07
Virknikvarði 0,80 0,78-0,86 0,86 0,82-0,92 0,80 0,77-0,83 0,87 0,84-0,91
HR = forspárstuðull (Hazard Ratio). a): HR1 er einfaldur forspárstuðull, það er þegar hver þáttur sjúkdómsgreininga og kvarða var metinn einn í einu, ásamt efstu breytunum fjórum
(stýribreytum). Tölugildin fyrir stýribreyturnar fjórar efst í dálki HR1 sýna niðurstöðuna þegar þær einar voru í módelinu. b): HR2 sýnir niðurstöðuna þegar allar breyturnar í dálkinum voru
greindar saman. 95%CI: 95% öryggisbil. c) ADL: athafnir daglegs lífs. Feitletraðar tölur sýna marktækan forspárstuðul fyrir andláti.