Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2019, Síða 27

Læknablaðið - okt. 2019, Síða 27
LÆKNAblaðið 2019/105 443 Y F I R L I T Inngangur Mengun er skilgreind í íslenskum lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir frá 1998 sem „það þegar örverur, efni og efna­ sambönd og eðlisfræðilegir þættir valda óæskilegum og skaðleg­ um áhrifum á heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts, láðs eða lagar“.1 Loftmengun verður þar sem styrkur efna eða efnasambanda í andrúmslofti er orðinn það hár að hann veld­ ur óæskilegum eða skaðlegum áhrifum á heilsu almennings eða óæskilegum áhrifum á náttúru, lífríki eða mannvirki. Hún get­ ur verið af völdum manna eða náttúruleg eins og í eldgosum, á jarðhitasvæðum og í foki jarðvegsefna.2 Áhrifum loftmengunar á heilsu manna má skipta í bein áhrif þar sem loftmengunin veld­ ur sjúkdómum og óbein áhrif þar sem loftmengunin eykur ein­ kenni undirliggjandi sjúkdóma. Loftmengun er hættuleg heilsu manna, einkum þeirra sem þjást af sjúkdómum í öndunarfærum og hjarta og æðakerfi. Loftmengun dregur úr lífsgæðum og lífslík­ um manna. Börn eru sérstaklega viðkvæm, því loftmengun getur valdið öndunarfærasjúkdómum hjá þeim og haft varanleg áhrif á lungnaþroska barna. Það getur skipt máli síðar á ævinni. Heilsuverndarmörk eru skilgreind fyrir ákveðin loftmengun­ arefni í andrúmslofti og eru hugsuð fyrir almenning, bæði börn og fullorðna, sjúka sem heilbrigða. Þeim er ætlað að vera viðmiðun fyrir hvað telst skaðlaust fyrir einstaklinginn og eru sett til að tryggja heilsu manna til lengri tíma. Loftgæði eru talin mikil á Íslandi og er styrkur mengunarefna í andrúmslofti að jafnaði innan skilgreindra viðmiða ef frá er talið svifryk. Þetta skýrist af stærð landsins, legu þess, fáum íbúum og veðurfari. Náttúruhamfarir geta aftur á móti ógnað loftgæðum landsins. Eldgos eru hér tíð og reynslan hefur sýnt að loftmeng­ un af völdum þeirra getur verið mikil og haft áhrif á heilsufar manna.3 Loftgæði bötnuðu til muna í þéttbýli á Íslandi þegar hætt Loftmengun á Íslandi og áhrif hennar á heilsu manna Yfirlitsgrein Gunnar Guðmundsson1,2 læknir Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir3,4 lýðheilsufræðingur Þorsteinn Jóhannsson3 umhverfisfræðingur Vilhjálmur Rafnsson4 prófessor emeritus 1Lungnadeild Landspítala, 2rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, læknadeild Háskóla Íslands, 3Umhverfisstofnun, teymi loftslags og loftgæða, 4lýðheilsustöð læknadeildar Háskóla Íslands Fyrirspurnum svarar Gunnar Guðmundsson, ggudmund@landspitali.is Á G R I P Í þessari grein er fjallað um loftmengun á Íslandi og áhrif hennar á heilsu manna. Loftmengun má lýsa sem ástandi þar sem styrkur efna eða efnasambanda í andrúmslofti er orðinn það hár að hann veldur óæskilegum eða skaðlegum áhrifum á heilsu almennings eða óæskilegum áhrifum á náttúru eða mannvirki. Loftmengun getur verið af manna völdum, svo sem vegna bruna jarðefnaeldsneytis, eða náttúruleg, til dæmis vegna eldgosa, frá jarðhitasvæðum og í foki jarðvegsefna. Loftmengun dregur úr lífsgæðum og lífslíkum manna. Áhrifum loftmengunar á heilsu manna má skipta annars vegar í bein heilsufarsleg áhrif þar sem loftmengunin veldur sjúkdómum og hins vegar óbein áhrif þar sem loftmengunin eykur einkenni undirliggjandi sjúkdóma. Heilsuverndarmörk eru skilgreind fyrir ákveðin loftmeng- unarefni í andrúmslofti. Þeim er ætlað að vera viðmið fyrir hvað telst skaðlaust fyrir einstaklinginn og eru sett til að tryggja heilsu manna til lengri tíma. Loftgæði utandyra hafa verið mæld reglubundið í Reykjavík síðan 1986. Fyrstu árin var eingöngu mælt svifryk á einni mælistöð sem þá var staðsett við Miklatorg. Með árunum hefur fjölgað þeim efnum sem mæld eru og bæst hafa við fleiri mælistöðvar. Loftgæði eru almennt talin mikil á Íslandi og er styrkur mengunar- efna í andrúmslofti að jafnaði innan skilgreindra viðmiða. Þetta skýrist af margvíslegum þáttum eins og stærð landsins, legu þess og veður- fari. Náttúruhamfarir geta valdið loftmengun eins og sýndi sig í eldgos- um síðustu ára. Rannsóknir hafa verið gerðar á tengslum loftmengunar við heilsufar Íslendinga og æskilegt er að fleiri rannsóknir verði fram- kvæmdar til að bæta þekkinguna á loftmengun á Íslandi enn frekar. var að nota kol og olíu til húshitunar og götur voru malbikaðar. Almennt eru bein tengsl milli fjölda bíla og loftmengunar. Hins vegar hafa ýmsir umhverfisþættir, samsetning bílaflotans og mót­ vægisaðgerðir mikið að segja. Verulega hefur dregið úr loftmeng­ un við Grensásveg þrátt fyrir stóraukna umferð frá því að mæl­ ingar hófust þar árið 1994. Meginorsök minni svifryksmengunar er talin vera breytt veðurlag, einkum aukin úrkoma, en einnig dró úr mengun vegna NO2 og CO með tilkomu hvarfakúta í bílum.4 Sterkara malbik á helstu stofnbrautum og aukin gatnaþrif hafa einnig stuðlað að því að draga úr svifryksmengun. Einnig koma auknar kröfur um mengunarvarnir og nýja tækni, sem draga úr þessu álagi. Þá hefur vinnuumhverfi og meðhöndlun hættulegra efna sem geta borist í andrúmsloft gjörbreyst með hertri vinnu­ verndarlöggjöf og ákvæðum í umhverfislöggjöf. Almenningur er betur að sér en áður um mikilvægi heilnæms andrúmslofts og stjórnvöldum er ljós nauðsyn þess að hafa eftirlit með mengandi starfsemi, vakta loftgæði og tryggja þau með viðeigandi aðgerðum og að upplýsa almenning um þessi málefni.4 Loftgæði utandyra hafa verið mæld í Reykjavík síðan 1986. Fyrstu árin var eingöngu mælt svifryk á einni mælistöð sem þá

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.