Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - okt 2019, Qupperneq 38

Læknablaðið - okt 2019, Qupperneq 38
454 LÆKNAblaðið 2019/105 Frá árinu 1972 hafa ritstjórnir norrænu læknablaðanna komið saman, fyrst annað hvert ár en nú árlega, og veitir ekki af því hið fornkveðna heldur gildi með sínu einfalda sniði: Tempus fugit, en samt er ekki því að neita að öll hjól snúast æ hraðar. Útgáfubrans­ inn tók hænuskref árlega árið 1972 en 2019 er ástundað þrístökk daglega, þrátt fyrir núvitund. Norrænu læknablöðin eru systurblöð Læknablaðsins, ámóta gömul, hafa fylgst að í gegnum tíðina, og sameina ritrýnt efni og félagslegt. Danska blaðið tók það íslenska í skammtog á árunum 1986­1995 þegar læknafélögin íslensku höfðu ekki bolmagn til að standa straum af kostnaði við prentun og dreifingu. Örn Bjarna­ son ritstjóri kom því þá til leiðar að danska læknablaðið sá um það íslenska, tók það í fóstur, safnaði auglýsingum, setti blaðið, prentaði og dreifði hér heima á eigin kostnað. Á sama tíma var Fréttabréf lækna útgefið hér heima. Beinagrind þessara blaða er sambærileg en að sjálfsögðu eru ritstjórnir hinna norrænu blaðanna mun stærri en við Læknablaðið þar sem stöðugildi eru 2,5. Sama er uppi á teningnum hjá öllum blöðum: en þó eru Svíar verst staddir núna, þeir hafa fækkað starfsfólki, og komu út viku­ lega fyrir nokkrum árum, nú eru útgáfurnar 37 á ári og verða færri á næsta ári. Hin blöðin eru miklu uppréttari, með mikla netumferð, alls kyns blaðamennsku, og vinnslu á fræðigreinum. Öll blöðin glíma við það sem nú er náttúrulögmál: stórfelld fækk­ un auglýsinga. Lyfjaframleiðendur snúa sér nú beint til neytand­ ans og tala við þá í bíó, sjónvarpinu, blöðunum og á facebook og öðrum alltumlykjandi samfélagsmiðlum. Og það er best að horf­ ast í augu við að þessari þróun verður ekki snúið við. Eftir stendur það sem er kjarni blaðanna: ritrýnt efni, – það er fótfestan og ekkert sem mun leysa það af hólmi sýnist manni. Íslenskt efni byggt á íslenskum rannsóknum og spurningin er að vinna og spinna úr fræðiefni aðra þætti sem gætu tengst víðar. Jafnframt eykst hröðum skrefum áhugi almennings á öllu efni þar sem heilsa og sjúkdómar koma við sögu. Læknablaðið hefur líka greikkað sporið með vaxandi umferð­ arþunga um heimasíðuna, – nú er hægt að fletta blaðinu þar. Við mikið af efni í blaðinu, bæði fræðilegt og félagslegt, eru nú hlað­ varpsþættir sem auðvelt er að nálgast og hlusta á. Öllu er þessu dreift á facebook­síðu blaðsins, og má segja að útgáfan hafi teygt sig í nýjar deildir jarðar. Besti vinur aðal um fund norræna læknablaðanna Fundargestir í Stokkhólmi í septemberbyrjun sigldu yfir höfnina til að snæða í gamalli vefnaðarverksmiðju. Hér eru fulltrúar norrænu blaðanna: frá vinstri Ugeskrift for læger, Läkartidningen og Lääkärilehti, en ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins tók myndina. ■ ■ ■ Védís Skarphéðinsdóttir

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.