Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Oct 2019, Page 44

Læknablaðið - Oct 2019, Page 44
460 LÆKNAblaðið 2019/105 ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Nei, ég var ekki að útskrifast úr frönsku, það var afi,“ segir sonarsonur og alnafni Sigurðar Egils Þorvaldssonar skurðlæknis þegar Læknablaðið hringir í hann í von um að þar svari læknirinn sjálfur. „Bíddu, hér er númerið hans afa.“ Sigurður Egill lét gamlan draum um að efla frönskukunnáttu sína rætast þegar hann skráði sig í frönskunám í Háskóla Ís­ lands. Fyrir spjallið komum við okkur fyr­ ir á yfirbyggðum svölunum á heimili hans í vesturbæ Kópavogs. Þar hafa þau hjónin, Jóna Þorleifsdóttir og Sigurður, komið sér vel fyrir. Þau seldu einbýlið sitt og búa nú í þriggja herbergja íbúð með útsýni yfir Kópavoginn sjálfan og líknardeild Landspítala. Hjá okkur Sigurði stendur Ambroise Paré sjálfur í koparstyttuformi á stólkolli en þessi faðir nútímaskurðlækn­ inga í Frakklandi var viðfangsefni Sigurð­ ar í lokaverkefninu. Steyptur Paré á svölunum „Styttan var gerð af manni sem hét David d'Angers. Hann lærði í Róm hjá högg­ myndasmið sem hét Canova og sérhæfði sig í styttugerð úr marmara. Sá var sam­ tímamaður Thorvaldsens,” segir Sigurður. „Þegar ég sá þessa styttu á netinu, fyrst þegar ég var að skoða umsagnir um Paré, sá ég að það voru til kopareftirlíkingar af styttunni sem er í Laval og var afhjúpuð 1840. Ég komst yfir þessa á eBay og hér er hún,“ segir Sigurður sem valdi að skrifa um þennan 16. aldar lækni sem varð sá fyrsti sem hóf að binda fyrir æðar við útlimamissi í stað þess að brenna fyrir og hella olíu í sárið. „Það vill oft verða þannig að því minna sem maður veit um einhvern því meira hefur verið um hann skrifað,“ segir Sig­ urður um Paré en undir styttunni er enn merkilegri safngripur, eða ljósrit af upp­ runalegu eintaki af bók Ambroise Paré frá 16. öld. „Ég fékk hann á Amazon,“ segir Sigurður sem sjálfur er nú eldri en franski skurðlæknirinn varð. „Paré fæddist 1510 og lést árið 1590. Það er svolítið sérstakt að ná 80 ára aldri á 16. öld,“ segir Sigurður sem er mikill bókaunnandi. Eftir að þau hjónin tæmdu einbýlishúsið og fluttu í íbúðina valdi hann þær bækur úr safni sínu sem fylla nú veggi skrifstofunnar hans. Aðrar fengu óvæntan endi. „Hinar setti ég allar í geymslu hjá Geymslum og þær brunnu,“ segir Sigurð­ ur og er sposkur á svip. „Mikið óskaplega varð ég feginn. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við þær.“ Frönskuáhuginn hefur fylgt Sigurði lengi eða allt frá því að hann var í Versl­ unarskólanum. „Ég var á þeim tíma þegar við vorum 6 ár í skólanum,“ segir hann. „Það var á þeim tíma þegar Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastjóri var tiltölulega ný­ fluttur af Grundarstígnum. Íbúð hans var notuð fyrir nemendur,“ rifjar Sigurður upp. „Mig langaði strax að ná tökum á þessu nýja máli sem við áttum að fá að læra. Ég komst í samband við konu Viktors Urbancic, Melittu, sem var austurrísk að uppruna. Hún reyndist mér frábær kennari. Á þremur vikum, áður en skólinn byrjaði, var hún búin að koma mér inn í franska málfræði og hugsun, hvernig málið væri byggt upp,“ segir hann og náði það góðum tökum á málinu að hann var fenginn til að halda ræðu á frönsku við skólaslit. Frú Urbancic hafði svo samband og hvatti hann til að fara á franskan bóndabæ eftir Verslunarskólann og ná enn frekari tökum á málinu. „Úr því varð að þegar við fórum í stúdentaferðalag til Evrópu að við vorum þrjú sem kvöddum hópinn í Parísarborg. Ég fór á bóndabæ í Alsace­ ­Lorraine. Kristrún Eymundsdóttir, sem síðar varð menntaskólakennari í frönsku, fór að passa börn í suðurhluta Frakklands og Jón Ægir Ólafsson fór þar í skóla.“ Franskan alltaf áhugamálið Franskan var áhugamál og læknisfræði vinnan Sigurður Egill Þorvaldsson lærði lýtalækningar og starfaði við þær í Bandaríkjunum en sneri sér að brjóstauppbyggingu þegar heim var komið. Hann útskrifaðist í sumar með BA-gráðu í frönsku á 83. aldursári sínu. „Ég er enn 82ja,“ áréttar Sigurður glettinn og skrifaði um franskan föður nútímaskurðlækninga í lokaverkefni sínu.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.