Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 42

Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 42
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Þetta er sögustund,“ sagði Ragnar á Þjóð­ minjasafninu þegar hann lýsti hörmung­ um á Þjóðhátíð árið 1943. Hann sagði frá því hvernig þriggja manna áhöfn á bátnum Stakksárfossi VE 245, Ólafur Davíðsson, Guðni Hjörtur Guðnason og Halldór E. Halldórsson, hafi fundið ryðgaða þara­ vaxna járntunnu í sjó um eina og hálfa til tvær sjómílur vestur af Þrídröngum. Þeir hafi dregið hana um borð, opnað og fund­ ið spíralyktina. Tunnuna hafi þeir tekið heim en viljað fá innihaldið staðfest hjá lyf­ sala bæjarins með leynd. Tveimur dögum seinna sagðist lyfsalinn ekki geta sagt til um innihaldið og óljóst með hvernig þeir meðtóku skilaboðin en að nokkrum dögum liðnum voru níu látnir. Ragnar kynnti rannsókn sína á að­ alfundi Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar fyrr í vor. Hann sagði frá því hvernig hann, aðeins átta ára gamall, komst fyrst á snoðir um atburðinn sem var á forsíðu Morgunblaðsins á sínum tíma. Hann hafi heyrt á tal föður síns og Stebba pól, Stefáns Árnasonar yfirlögregluþjóns, árið 1960 þegar þeir fengu sér kaffi á skrif­ stofunni „heima á Látrum“ og það þótt þeir töluðu í hálfum hljóðum. „Þessi viðbrögð voru þó ekkert eins­ dæmi. Tréspíramálið á Þjóðhátíðinni 1943 hafði mikil langvinn áhrif á bæjarbúa, svo mikil að enn var hvíslað um málið mörg­ um árum síðar. Mörgum áratugum síðar, fjörutíu, fimmtíu, sextíu árum árum síðar, var fyrst hægt að tala um tréspíramálið án þess að fara í felur með það en þá voru ekki margir eftir til svara,“ lýsti Ragnar sem talaði meðal annars við á annan tug Vestmanneyinga sem mundu atburðinn. „Í viðtölum mínum við þetta gamla fólk sagði það að mikil sorg hafi verið í loftinu, en þetta hafi farið mjög hljótt. Það lá í loftinu skömm og sorg sem kom út í þagnargildi. Það var ekki hægt að koma svona hörmungum í orð og þá er betra að þegja,“ hafði Ragnar eftir því. Hann sagði frá því hvernig þeir félagar hefðu tekið sénsinn á að neyta innihalds tunnunnar og skipt því á milli sín svo hver fékk um 50 lítra. Halldór fái sína lítra en fari í annan skipstúr og komi ekki meira við sögu. Enn meðvitaðir um hætt­ una og eftir svör lyfsalans hafi Hjörtur leitað til vinar síns, Þorláks Sverrissonar kaupmanns, sem þekkti héraðslækninn og beðið hann um að fara með sýni til hans. Þorlákur hafi dreypt á og sagt innihaldið venjulegan spíra, hann ætti tréspíra sem væri öðruvísi. Þetta væri ekta „spiritus.“ Seinna hittust þeir aftur og hafði Þorlákur þá drukkið um pela úr flöskunni og þeir talið innihaldið í lagi. Hjörtur hafi því tekið tréspírann með á Þjóðhátíð. „Lík Þorláks fannst eftir Þjóðhátíð mánudaginn Níu létust af tréspíra á Þjóðhátíð árið 1943 Níu létust eftir að hafa drukkið tréspíra á Þjóðhátíð í Eyjum fyrir tæpum áttatíu árum. Nokkrir tugir veiktust og um tuttugu voru lagðir inn á spítalann í Vestmannaeyjum. Eyjamenn lýstu óhugnanlegum kvalaópum frá spítalanum. Þetta var á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og hefur mikil þöggun ríkt meðal fólks um málið. Ragnar Jónsson bæklunarlæknir hefur brotið málið til mergjar. Ragnar Jónsson bæklunarlæknir hefur lagt mikið á sig til að vernda sögu tréspíradrykkju og erfiðar afleiðingar hennar á Þjóðhátíð í Eyjum árið 1943. Mynd/gag 298 LÆKNAblaðið 2019/105

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.