Læknablaðið - jun. 2019, Side 46
302 LÆKNAblaðið 2019/105
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ekki er aðeins hægt að mæla magn fíkni
efna í frárennsli heldur má einnig skoða
ýmsa vísa um heilbrigði samfélagsins.
Þetta segir Arndís SueChing Löve, lyfja
fræðingur og doktorsnemi við læknadeild.
Hún hefur síðustu fimm ár mælt fíkniefni
í skólpi hér á landi fyrir doktorsverkefni
sitt sem hún vinnur á Rannsóknarstofu
Háskóla Íslands í lyfja og eiturefnafræði.
Hún stefnir á að ljúka því fyrir árslok.
„Hægt er að skoða umbrotsefni alkóhóls,
nikótíns, koffíns og ýmis lífmerki (biom-
arker) sem benda til dæmis til streitu eða
sjúkdóma “ segir hún.
Arndís hefur síðastliðin fjögur ár tekið
þátt í evrópsku samstarfsverkefni þar sem
algeng fíkniefni eru mæld í frárennsli 85
Evrópuborga. Niðurstöðurnar hafa verið
birtar af Evrópsku rannsóknamiðstöðinni,
EMCDDA, fyrir eiturlyf og eiturlyfjafíkn.
Niðurstöðurnar sýna að fjórfalt meira
kókaín mældist í skólpi höfuðborgarsvæð
isins í mars í fyrra en tveimur árum áður.
Ísland vermir efsta sæti borga Norður
landanna þegar kemur að kókaíni en það
tólfta sé litið til þeirra Evrópuborga þar
sem fíkniefni voru mæld í skólpi á viku
tímabili í fyrra. Efst er Bristol á Englandi,
þá Amsterdam í Hollandi og Zürich í Sviss
í því þriðja þegar kemur að kókaíni.
„Þetta er í samræmi við aukningu
kókaíns í ökumönnum hér á landi,“ segir
Arndís.
Reykjavík er samkvæmt mælingunum í
öðru sæti yfir mest amfetamínmagn á eftir
Saarbrücken í Þýskalandi, þar sem notk
unin mælist þó nærri tvöfalt meiri. Hún
mældist í 14. sæti yfir metamfetamín, þar
sem Erfurt í Þýskalandi trónar á toppnum,
og 9. sæti yfir MDMA, en Amsterdam í því
efsta. Arndís fylgist sérstaklega vel með
þróun metamfetamíns hér á landi. Aukn
ing hefur mælst í Noregi og Finnlandi.
„Við fylgjum oft hinum Norðurlöndun
um í þróun og viljum því sjá hvort metam
fetamínmagn í frárennsli sé að aukast hér
á landi,“ segir hún. Svo sé það MDMA,
einnig kallað etöflur eða Mollý. „Heildar
magn MDMA hefur haldist stöðugt milli
ára, en við sjáum að aukning er mikil um
helgar.“
Arndís segir að hún hafi í upphafi ekki
verið viss hvort tækist að mæla fíkniefni
í íslensku skólpi. „Frárennslisvatn er ekki
eins í öllum borgum. Kerfin eru mismun
andi, fólksfjöldi, loftslag. Í mikilli rigningu
þynnist vatnið og við vissum að hér á
landi notar fólk mikið vatn eða um tvisvar
til þrisvar sinnum meira en í nágranna
löndunum,“ segir hún. „Það þýðir að
styrkur efnanna mælist minni í vatninu og
við þurfum næmari mælitæki. Það tókst,“
segir Arndís.
Arndís segir áhugavert að bera niður
stöður þessarar rannsóknar saman við
aðrar aðferðir sem mæla fíkniefnaneyslu.
„Aðalkostur þessarar aðferðar sem not
uð er í rannsókninni er að hægt er að sjá
nákvæmar niðurstöður eftir mjög stuttan
tíma. Við sjáum greinilega dagamun á
magni fíkniefnanna.“ Hægt sé að fylgjast
sérstaklega með magni fíkniefna í kring
um viðburði. „Við höfum mælt frárennsli
frá Airwaves og Menningarnótt og séð
þá meira magn fíkniefna,“ segir hún en
niðurstöðurnar í þessari rannsókn miðist
við venjulega daga.
Arndís segir ekki hægt að áætla fjölda
skammta, en þekkt sé að styrkur efna
sem fólk tekur sé að aukast. „En við
normaliserum niðurstöðurnar á þúsund
íbúa.“ Miðað hafi verið við íbúafjölda á
hverju svæði við útreikninga.
„Í Ósló hafa menn nýtt símagögn til að
sjá hve margir eru á bakvið sýnin.“ Hér
sé það ekki gert þar sem bæði skorti fé
Fíkniefni flæða um skólpið
Fjórfalt meira kókaín mældist á vikutíma í skólpi höfuðborgarsvæðisins árið
2018 en 2016. Hægt væri að mæla ýmsa hegðum borgarbúa í skólpinu, segir
doktorsnemi við læknadeild
Fíkniefni í skólpi hér á landi
2015 2016 2017 2018
Kókaín 57,8 101 437 479
Amfetamín 70,4 113 170 210
Metamfetamín 15,7 9,3 x 31,1
MDMA x 37,6 35,5 40,2
Mælieining: mg/1000 íbúar/dag. Heimild: EMCDDA