Læknablaðið - jun 2019, Qupperneq 50
306 LÆKNAblaðið 2019/105
L I P R I R P E N N A R
Ferdinand Jónsson
geðlæknir í London
ferdinandjonsson@aol.com
Ég vinn sem læknir geðveikra í Tower
Hamlets, einu fátækasta hverfi Austur
Lundúna. Þannig hafa hlutirnir einhvern
veginn æxlast.
Ef til vill hljómar þetta eins og djúp
stæður, vandræðalegur Messíasarkomplex.
Sem ætlar engan enda að taka ... Ekki er
þó allt sem sýnist.
Geðlæknisfræðin situr ögn utan við
aðrar sérgreinar læknisfræðinnar. Og
víst er að fordómarnir gegn okkar skjól
stæðingum eru gamlir en kraftmiklir.
Prófessor Tómas Helgason heitinn sagði að
þannig yrði það ef til vill áfram. Dauða
óttinn blikni nefnilega í samanburði við
þann frumótta okkar að missa vitið.
„There comes the pest control,” voru
orð sem mætur sérfræðingur í skurðlækn
ingum lét falla um starfsbróður minn. Sá
síðarnefndi kom til að meta geðveikan
mann á skurðdeild Konunglega Lundúna
sjúkrahússins í Whitechapel.
En ekki er allt sem sýnist. Þessar hug
myndir og skopskyn okkar ágæta starfs
bróður setja nefnilega engan annan niður
en hann sjálfan. En þrátt fyrir að kunnátta
í varnarháttum sjálfsins hjálpi við að verja
okkar fag og okkar sjúklinga eru þessar
hugmyndir einnig dapurlegar.
Hvernig á að fá gott fólk til að nema
okkar fræði? Hvernig á að taka á þessum
frumstæðu hugmyndum sumra okkar
ógeðlæknismenntuðu stéttsystkina?
Hvar sem farið er um víðar lendur lækn
isfræðinnar eru erfiðustu sjúklingarnir
ævinlega þeir sem einnig þjást af geð
sjúkdómum. Það góða fólk sér fordómana
sem sitt mesta böl. Bendir á annað heil
brigðisstarfsfólk sem aðaleigendur þessara
hugmynda.
Þetta gefur samt byr í seglin. Og marg
ur fær fjasað milli mjalta. En eins og annað
fullorðið fólk verð ég, og fólk í mínu fagi,
að axla ábyrgð á lausn þessa vanda. Að
hluta felst hún í því að sinna vel því unga
fólki sem kemur til okkar sem nemar. Að
skara fram úr. Berjast þó að stríðið muni
aldrei enda.
Þeir ágætu nemar sem rata inn á stofu
gang íslenska læknisins í Tower Hamlets
fá sína fyrstu lexíu beint í andlitið. Að taka
ábyrgð á eigin neikvæðu hugmyndum
gagnvart sjúklingunum. Eins og fram
úrskarandi nema er háttur taka þau pistli
dagsins yfirleitt af auðmýkt. Læra síðan
að hlusta, gera geðskoðun, greina sjúk
dómana og hugsa um meðferðarúrræðin á
heildrænan hátt. Reyna að horfa á bak við
veikindin. Mæta af virðingu þeim einstak
lingum sem hafa marga fjöruna sopið.
Sjá manneskjuna í sínum mikilfengleika.
Bera því vitni hvernig fólk nær heilbrigði
og lífsgæðum eftir svaðilfarir í dölunum
dimmu.
En margur viðkvæmur öðlingurinn rat
ar einnig til okkar sem nemi. Verkefnið er
að styðja þá mikið og vel svo að þær sorgir
sem geðdeildin hýsir fæli ekki frá þá sem
kunna að tengjst öðrum af tillitssemi og
virðingu. Þá sem sjúklingarnir okkar vilja.
Til sögunnar koma varnir. En þær
verða að vera nokkurskonar hansagardín
ur. Renna upp og niður. Og vert er að hafa
í huga að í grunninn er gott geðapparat
samansafn af vatnsberum. Rétt eins og
styttan hans Ásmundar Sveinssonar.
Starfslýsingin er að kunna að bera fötur
fullar af von, níu til fimm.
Hér gagnast gardínur. Að reyna að
vinna traust og ná meðferðarsambandi.
Sýna einlægni en einnig fagmennsku.
Setja sjúklingana og fólkið þeirra í önd
vegi í okkar vinnu. Hjálpa þeim að læra að
takast á við veikindin og taka ábyrgð. Við
verðum að halda áfram alla daga starfsæv
innar með hrein skil á milli okkar lífs og
þeirra. Ekki ræna sorgum sem aðrir eiga.
En það þarf einnig að taka gardínurnar
niður þegar tengslum og fagmennsku er
náð. Og fylla þannig föturnar aftur hjá því
góða fólki sem hefur öðlast þá færni að
ná nokkurskonar yfirhönd í sinni glímu.
Njóta þeirra forréttinda að fá gæsahúð á
fullum launum.
Í Tower Hamlets blandast saman fólk
frá öllum kimum jarðar. Vandamál okkar
mannanna eru þó hin sömu. Og maður
upplifir það undur að sjá að ofar trúnni,
menningunni og siðunum er himinninn á
tíðum heiður. Þetta mannlega sem tengir
okkur öll. Og hjartað finnur samhljóm í
því að fá að gera eitthvað sem skiptir máli.
Í glímunni stóru við raunveruleikann. Að
fá að fagna þegar vel gengur. Dást að hetj
um. Að hafa á tilfinningunni að jafnvel sé
allt sem sýnist í örstutta stund.
Með góðum kveðjum heim.
Læknir í Londres
Læknablaðið hefur beðið nokkra lipra penna
í læknastétt að senda blaðinu hugleiðingar sínar
í dagsins önn.
BETMIGA™ (mirabegron)
er eina lyfið til inntöku við
ofvirkri þvagblöðru sem ekki
er andmúskarínlyf 1,2
HVORA LEIÐINA VELUR
ÞÚ TIL MEÐFERÐAR
VIÐ OFVIRKRI
ÞVAGBLÖÐRU?1
BET_2019_0001_IS 05.2019
Heimildir: 1. Wagg A, Nitti VW, Kelleher C. Oral pharmacotherapy for overactive bladder in older patients: mirabegron as a
potential alternative to antimuscarinics. Curr Med Res Opin 2016:32(4):621-638 2. Samantekt á eiginleikum Betmiga 04.2019
BETMIGA™ 25 mg og 50 mg forðatöflur.
Heiti virkra efna: mirabegron. Ábendingar: Meðferð við einkennum, þ.e. bráðaþörf, aukinni tíðni þvagláta og/eða bráðaþvagleka sem geta komið fyrir hjá fullorðnum sjúklingum
með heilkenni ofvirkrar þvagblöðru. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu / virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Verulegur háþrýstingur sem ekki hefur náðst stjórn á og
er skilgreindur sem slagbilsþrýstingur ≥ 180 mm Hg og/eða þanbilsþrýstingur ≥ 110 mm Hg. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnarorð og önnur mikilvæg atriði má
nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Astellas Pharma Europe B.V. Fyrir nánari upplýsingar um lyfið skal hafa samband við umboðsaðila á Íslandi sem er
Vistor hf., sími: 535-7000. Texti SmPC var síðast samþykktur 04.2019.