Fréttablaðið - 21.03.2020, Side 34

Fréttablaðið - 21.03.2020, Side 34
Við leitum að kröftugum og útsjónarsömum aðila til að móta nýtt starf, taka þátt í uppbyggingu nýrrar þjónustu fyrir viðskiptavini Völku og vera öflug viðbót við lifandi og skemmtilegan vinnustað. Kerfisstjóri þjónustu hefur umsjón með rekstri Linux og Windows hugbúnaðarkerfa hjá viðskipta­ vinum Völku, vali á tölvu­ og netbúnaði fyrir kerfin og skipulagningu uppfærslna. Hann/hún heyrir undir þjónustusvið Völku en vinnur einnig náið með hugbúnaðardeild. KERFISSTJÓRI HÁTÆKNIBÚNAÐAR HELSTU VERKÞÆTTIR: • Skipulagning, uppsetning og viðhald vöktunar og afritunartöku hjá viðskiptavinum • Umsjón með uppfærslum stýrikerfa, stoðkerfa, tækjastýringar og kerfa Völku • Umsjón með öryggismálum búnaðar • Samskipti og ráðgjöf til viðskiptavina Völku • Hönnun og uppsetning netkerfa ásamt vali á búnaði • Fyrirbyggjandi viðhald, stöðugar umbætur og hagræðing • Sjálfvirknivæðing og stöðlun ferla • Villugreining og bestun á lausnum í tækniumhverfi HÆFNISKRÖFUR: • Mikil og farsæl reynsla og menntun sem nýtist í starfi • Farsæl reynsla af kerfisstjórnun í Windows, Linux, Ubuntu • Góð þekking á virkni netbúnaðar og eldveggja • Reynsla af rekstri PHP, MySQL, DNS og DHCP • Kostur að þekkja Ansible, Chef, sýndarvélar og VMware • Góð samskiptafærni og rík þjónustulund • Dugnaður, útsjónarsemi og metnaður • Skipulögð og öguð vinnubrögð Sótt er um starfið á vef Völku: valka.is/jobs Nánari upplýsingar: Leifur Geir Hafsteinsson, mannauðsstjóri Völku Umsóknarfrestur er til og með 29. mars nk. valka.is UM VÖLKU Valka er alþjóðlegt og ört vaxand hátæknifyrirtæki sem hefur þróað, hannað og framleitt vél­ og hugbúnað á heimsmælikvarða fyrir sjálfvirka fiskvinnslu út um allan heim frá stofnun árið 2003. Hjá Völku gegnir hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna lykilhlutverki og við leggjum ríka áherslu á að byggja upp framsækinn, kraftmikinn og samheldinn vinnustað þar sem fólki líður vel. Við leitum sífellt að öflugu fólki með menntun á sviði iðngreina, verkfræði, tölvunarfræði og tæknifræði og hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá okkur. 2019 Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 L AU G A R DAG U R 2 1 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.