Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 28
Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir öflugum starfsmanni með brennandi áhuga á
mannréttindum, til að sinna ráðgjöf, verkefnastjórn og öðrum spennandi verkefnum.
Um fullt starf er að ræða.
RÁÐGJÖF OG VERKEFNASTJÓRN
Starfssvið:
• Ráðgjöf í ýmsum réttindamálum
• Starfsmaður málefnahóps um húsnæðismál
• Túlkun laga og reglugerða
• Kærur, álitsgerðir og umsagnir um
lagafrumvörp
• Verkefnastjórn, skipulagning funda og
viðburða
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Háskólagráða í lögfræði, félagsráðgjöf,
félagsfræði eða önnur menntun sem nýtist
í starfi
• Brennandi áhugi á mannréttinda- og
réttindamálum
• Reynsla og þekking á málefnum fatlaðs fólks og
öryrkja er kostur
• Þekking á stjórnsýslurétti, almannatryggingum
og alþjóðlegum mannréttindasamningum eins
og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðs fólks er æskileg
• Góð íslenskukunnátta og ritfærni
• Færni í ensku og einu Norðurlandamáli er
æskileg
• Skipulagshæfni, vönduð og sjálfstæð
vinnubrögð
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
ÖBÍ er heildarsamtök hagsmuna
og mannréttinda fatlaðs fólks á
Íslandi. Bandalagið samanstendur
af 43 aðildarfélögum fatlaðs fólks,
öryrkja, einstaklinga með langvinna
sjúkdóma og aðstandenda þeirra.
Aðildarfélögin eru hagsmunasamtök
ólíkra fötlunarhópa sem öll
starfa á landsvísu. Samanlagður
félagafjöldi þeirra er um 30 þúsund
manns. Hlutverk ÖBÍ er að vinna
að samfélagslegu réttlæti, bættum
lífsgæðum og kjörum auk þess að
vera stefnumótandi í réttindamálum
hagsmunahópsins. Skrifstofa ÖBÍ
er í aðgengilegu húsnæði í Sigtúni
42, Reykjavík. Nánari upplýsingar á
obi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Fatlað fólk og/eða fólk með skerta
starfsgetu er hvatt til að sækja um.
Mögulegt er að ráða tvo einstaklinga
í starfið og skiptist þá starfshlutfallið
eftir samkomulagi.
Hefur þú áhuga á taka þátt í skipulagningu og mótun lagers?
Lager Héðins heldur utan um almennt vöruhald bæði á rekstrar- og framleiðsluvörum.
Með tilkomu nýrra framleiðsluvara er þörf á endurskipulagningu lagers og leitar Héðinn
að sterkum einstaklingi til að leiða þær breytingar.
LAGERSTJÓRI
Helstu verkefni:
• Dagleg umsjón með birgðahaldi og vöruflæði
lagers
• Móttaka og afhending vöru ásamt skráningu
• Skipulagning og mótun lagers
• Umsjón með umhirðu lagersvæðis
• Innkaup
Hæfniskröfur:
• Skipulagshæfileikar, sjálfstæð og öguð
vinnubrögð
• Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Rík þjónustulund
• Góð tölvufærni
• Reynsla af vöru- og lagerstjórnun er æskileg
• Kostur ef viðkomandi hefur lyftararéttindi
Héðinn hf. er fyrirtæki með nærri 100
ára sögu af þjónustu við sjávarútveg
og iðnað. Hjá Héðni starfa um 100
manns við fjölbreytt störf frá hönnun
að fullbúinni vöru.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára