Fréttablaðið - 21.03.2020, Page 55
V ið rákumst á þessa lóð þegar við opnuð-um fasteignavefinn í léttu gríni árið 2015. Við vorum ekkert á þeim stað að geta
fjárfest neitt,“ segir Hafsteinn. „En
við fundum þessa heilsárslóð rétt
við bæjarmörkin á ótrúlegu verði
og gersamlega féllum fyrir henni.“
Þau tryggðu sér lóðina og ætlunin
var að bíða með framkvæmdir. „Ég
er aftur á móti ekki mikið fyrir að
bíða svo við f lugum vestur á firði til
Kjartans Árnasonar arkitekts, sem
býr í sams konar húsi.“ Þau fengu
teikningar Kjartans og gerðu smá-
vægilegar breytingar, aðallega á
gluggum sem voru stækkaðir. „Við
eigum svo yndislega vini sem eru
þvílíkt f linkir smiðir og hjálpuðu
okkur við bygginguna og eru gæðin
alveg eftir því.“
Norðurljósin daglegt brauð
Hafsteinn segir stóra gluggana
veita magnað útsýni. „Að vera
þarna er undur allan ársins hring.
Norðurljósin eru nánast daglegt
brauð, stjörnurnar ótrúlegar, Esjan,
Hafrafellið, Úlfarsfellið, stundum
Snæfellsjökullinn og Bláfjöllin, í
raun er panorama útsýni á þetta
allt.“
Lóðin er gróðri vaxin og segir
hann mikið um fuglalíf, sérlega vor
og sumar. „Himbrimapar kemur
árlega, það f lýgur niður á Hafra-
vatn á daginn og svo á slaginu tíu
á kvöldin heyrir maður í þeim
f ljúga til baka upp til Krókatjarna
fyrir nóttina. Hrossagaukurinn
syngur svo fugla hæst, uglur eru
regluleg sjón ásamt spóanum,
lóunni, stelknum og kjóinn f lýgur
stundum rólega yfir.“
Þessa dagana dvelja þau hjónin
ásamt tveimur ungum dætrum
sínum á eyjunni La Palma á Spáni
þar sem ætlunin er að gera upp hús,
hugsað sem vetrarhús. „Þetta er ein
af minni Kanaríeyjunum þar sem
um 90 prósent efnahagsins gengur
út á ávaxtaræktun og lítið er um
túrisma. Við komum hingað á
eyjahoppi þegar yngri dóttirin var
fjögurra vikna gömul.“ Hafsteinn
og Agla höfðu áður gert upp hús
í Danmörku og þegar gott kaup-
tilboð kom í það sáu þau sér leik á
borði þegar þau féllu fyrir eyjunni.
„Við keyptum hér 6.000 fm lóð,
með rústum, sem við erum að gera
upp.“ Hugmyndin er að gera húsið
upp og leigja það út yfir sumar-
tímann en nýta það sjálf á veturna.
Á meðan er húsið heima leigt út
til ferðamanna en nú þegar þeim
Undur allan
ársins hring
Húsgagnasmiðirnir Guðrún Agla og Haf
steinn Helgi, fólkið á bak við Happie Furn
iture, byggðu sér útsýnishús við Hafravatn
sem þau leyfa öðrum að njóta yfir veturinn
á meðan þau sjálf dvelja við hærra hitastig.
Húsgagnasmiðirnir Hafsteinn Helgi og Guðrún Agla byggðu sér heimili við Hafravatn þar sem birtu og útsýnis nýtur sérlega vel út um stóra gluggana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hljóðvistin er góð enda clipsó
hljóðdúkur í lofti og teppi á gólfum
uppi sem dempar hljóð enn betur.
Borðplöturnar og allur viður í húsinu er frá fyrirtæki hjónanna Happie
Furniture sem hefur á fimm árum framleitt yfir eitt þúsund borð.
Loftglugginn í svefnherberginu veitir einstaka sýn á norðurljósin.
fækkar snarlega hafa þau ákveðið
að bjóða það nokkra mánuði í senn
til þeirra sem það hentar.
Prufutíminn búinn
Happie Furniture er í fullri starf-
semi hér á landi og eru þau Haf-
steinn og Agla að eigin sögn með
tvo frábæra starfsmenn sem sjá um
framleiðsluna á meðan þau dvelja
ytra, smiðina Sjamek og Einar. „Eft-
irspurnin eftir borðunum okkar
hefur ekkert minnkað enda um að
ræða vandaða vöru sem endist fólki
út ævina. Eik og hnota er stöðugasti
gjaldmiðill í heiminum.“
„Segja má að prufutíminn sé
búinn, við höfum framleitt yfir
eitt þúsund borð á þessum fimm
árum sem Happie Furniture hefur
verið í starfsemi en við höfum þó
ekki viljað mikla yfirbyggingu eða
eiginlega verslun, því við viljum
geta skellt í lás ef svo fer.“ Nú þegar
þau hjónin eru mikið á faraldsfæti
fundu þau þó fyrir þörfinni fyrir
eins konar sýningarrými sem nú er
að verða að veruleika á Skólavörðu-
stígnum. „Hönnuðurinn Inga Elín
sem hannar undir merkinu Inga
Elín Design kom að máli við okkur
ásamt syni sínum Kristni, sem er
einnig framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, um samstarf sem okkur
leist vel á og verða húsgögn okkar
til sýnis og sölu í verslun þeirra sem
opnuð verður í yndislegu húsnæði
á Skólavörðustígnum þann 28.
mars næstkomandi.“
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Fjölskyldan dvelur nú á eyjunni
La Palma við Spán þar sem þau eru
að gera upp hús til vetrardvalar.
+PLÚS
2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð