Fréttablaðið - 21.03.2020, Qupperneq 8
VIÐSKIPTI Fordæmalaus samdráttur
er á umferð nú í marsmánuði og eiga
söluaðilar eldsneytis von á sam-
drætti í eldsneytissölu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni hefur gríðarlegur
samdráttur verið í umferð á höfuð-
borgarsvæðinu. Alls hefur umferðin
dregist saman um rúm 10 prósent
frá því á sama tíma í fyrra, og eru
ekki dæmi um annan eins samdrátt.
Samdrátturinn mælist mestur á
Hafnarfjarðarvegi við Kópavogs-
læk þar sem umferðin hefur dregist
saman um 15,3 prósent. Þá mælist
samdrátturinn um níu prósent á
Reykjanesbraut við Dalveg og sjö
prósent á Vesturlandsvegi ofan
Ártúnsbrekku.
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri
Olís, segir að ekki verði langt að
bíða þess að þessi mikli munur á
umferð endurspeglist í tölum um
sölu á eldsneyti.
„Öll smásala í landinu er að finna
fyrir þessu, nema þá kannski mat-
varan. Það er ekki sama dramatík
í okkar tölum enn sem komið er
og hjá mörgum öðrum,“ segir Jón
Ólafur.
Hann reiknar með að samdráttar
í eldsneytissölu muni gæta um allt
land, en hann verði mestur um
miðjan apríl þegar búist er við að
kórónafaraldurinn verði í hámarki,
eins og spár ganga nú út frá.
Svipaða sögu segir Rakel Björg
Guðmundsdóttir, markaðsstjóri
Atlantsolíu, en segir of snemmt
að segja til um hversu mikill sam-
dráttur verði í sölu eldsneytis.
Hinrik Örn Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs N1,
segir að kórónafaraldurinn hafi
umtalsverð áhrif á ferðavenjur
fólks. Hópferðafyrirtæki hafi gripið
til þess ráðs að afskrá hópbifreiðar
sínar tímabundið og verulegur sam-
dráttur hafi orðið í útleigu bíla hjá
bílaleigum.
„Allt þetta hefur þau áhrif að sala
á bifreiðaeldsneyti hefur dregist
saman undanfarnar vikur,“ segir
Hinrik Örn. Nú sé áherslan öll á að
vernda starfsfólk og viðskiptavini.
– ab
Öll smásala í
landinu er að finna
fyrir þessu, nema þá
kannski matvaran. Það er
ekki sama dramatík í okkar
tölum enn sem komið er og
hjá mörgum
öðrum.
Jón Ólafur
Halldórsson,
forstjóri Olís
Góð regla er að hafa
slökkt á netinu á
vissum tímum, sérstaklega á
kvöldin.
Berglind
Gunnarsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Foreldra-
húss
Net- og Tv
þjónusta
Uppsetning- Viðgerðir- Stillingar
Netbúnaður- Netlagnir
Ljósleiðaratengingar
Loftnet- Gervihnattabúnaður
Dyrasímar- Raflagnir
Netogtv.is
S-8942460
SAMFÉLAG „Vandi unglinga sem eru
í fikti eða neyslu hverfur ekkert á
tímum COVID-19. Þau eru ódrep-
andi í eigin huga og hætta ekkert
að hittast,“ segir Berglind Gunn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri For-
eldrahúss.
Grunnskólastarf í landinu er
skert næstu vikur og jafnvel fram
yfir páska vegna COVID-19 farald-
ursins og í sumum sveitarfélögum
vegna verkfalls. Þá eru framhalds-
skólar lokaðir og kennsla fer fram í
gegnum tölvu.
Berglind segir að það þurfi að
passa að börn og unglingar loki
sig ekki af. „Það getur gerst í þeim
aðstæðum þar sem samskiptin við
unglinginn eru erfið, foreldri þarf
að vinna heima og þarf jafnvel að
sinna yngri börnum, þá getur verið
þægilegt að leyfa unglingnum bara
að hanga í tölvunni eða úti í bæ.“
Slíkt opnar glugga fyrir þá sem
eru í fikti eða neyslu. „Það er svo
auðvelt fyrir þau að neyta efna án
þess að skilja mikið eftir sig þegar
þau eru ein inni í herbergi tímunum
saman,“ segir Berglind. „Góð regla
er að hafa slökkt á netinu á vissum
tímum, sérstaklega á kvöldin.“
Þegar unglingarnir fara út að
hitta vini, þá er mikilvægt að for-
eldrar viti hverja þeir eru að hitta.
„Börn í vanda leita gjarnan til vina
í öðrum hverfum, það er eitthvað
sem þarf að vera á varðbergi fyrir. Á
þessum tímum er mjög gott að ræða
við foreldra vina barnanna og bera
saman bækur sínar.“
Hrefna Sigurjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heimilis og skóla,
sagði við Fréttablaðið fyrr í vikunni
að mikilvægt væri fyrir foreldra að
láta ekki ástandið raska allri dag-
legri rútínu. Passa þurfi að röskunin
á skólastafi verði ekki „eitt stórt
páskafrí“ þar sem sólarhringnum
er snúið á haus.
Berglind tekur undir þetta. „Það
er allt í lagi að spyrja hvernig gangi
með heimanámið. Svo er alltaf regl-
an með að allir séu heima saman að
borða kvöldmat, og jafnvel morgun-
og hádegismat.“
Þá þurfi að fylgjast með að ungl-
ingar breyti ekki venjum sínum um
of. „Gott er að fylgjast með hegðun
þeirra, svefni, þrifnaði, matarvenj-
um og hverja þau eru að hitta. Þetta
eru allt hættumerki. Ef unglingar
eru á f lakki og neita að koma heim,
þá mælum við með að foreldrar
sæki þá einfaldlega. Útivistartím-
inn hefur ekkert breyst þrátt fyrir
veiruna.“
Starfsemi Foreldrahúss liggur
niðri að hluta til, nú er öll áhersla
á að taka símtöl við foreldra barna
í vanda. „Á þessum skrýtna tíma,
þegar fjölskyldan er meira heima
saman, er ágætt að nýta hann til
að auka við jákvæð samskipti við
unglinginn, sé þess nokkur kostur.
Foreldrar geta alltaf leitað til okkar
í síma þessa dagana, eða sent til
okkar tölvupóst, þrátt fyrir COVID-
19.“
arib@frettabladid.is
Passi að börn loki sig ekki af
Skólastarf í landinu er skert vegna COVID-19 faraldursins. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir að
passa þurfi að ungmenni loki sig ekki af. Neysluvandi hverfi ekki, því þau séu ódrepandi í eigin huga.
Brýnt er að hafa skýrar reglur fyrir unglinga um að mæta þurfi heim í kvöldmat á hverjum degi. NORDICPHOTOS/GETTY
Segja að búast megi við
samdrætti í bensínsölu
.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 8. apríl 2020.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhver fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
DÓMSMÁL Maður sem hrækti á
lögreglumann sem kallaðar var út
vegna hávaða, var sakfelldur fyrir
brot gegn valdstjórninni í Lands-
rétti í gær. Maðurinn hafði verið
sýknaður í héraði á þeim grundvelli
að rétt hefði verið að ákæra mann-
inn fyrir ærumeiðingar gagnvart
opinberum starfsmanni í stað vald-
stjórnarbrots.
Landsréttur taldi hins vegar
sannað að maðurinn hefði haft
þann ásetning að hrækja á lögreglu-
manninn og í dómaframkvæmd
hafi verið litið svo á að sú háttsemi
að hrækja á opinberan starfsmann
þegar hann væri að gegna skyldu-
starfi sínu, teldist brot gegn vald-
stjórninni og ekkert væri fram
komið í málinu sem leiða ætti til
annarrar niðurstöðu í málinu.
Var maðurinn dæmdur í fangelsi
í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja
ára. – aá
Fékk skilorð
fyrir að hrækja
Landsréttur taldi að
maðurinn hefði haft þann
ásetning að hrækja á lög-
reglumanninn.
2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð