Fréttablaðið - 21.03.2020, Síða 35
Starf skólastjóra Háaleitisskóla laust til
umsóknar
Reykjanesbær auglýsir starf skólastjóra í Háaleitisskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem
býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða
skólann inn í framtíðina.
Háaleitisskóli er heildstæður 300 barna grunnskóli og eru einkunnarorð skólans menntun og mannrækt.
Í skólanum er unnið eftir hugmyndafræði PBS um heildstæðan stuðning við jákvæða hegðun. Í stefnu
skólans er ennfremur lögð áhersla á að rækta hæfileika sérhvers nemanda svo hann nái að þroskast og
mótast af gildum lýðræðislegs samstarfs sem einkennist af mannhelgi, réttlæti og félagsanda, að hann virði
mismunandi einstaklinga og leyfi einkennum þeirra að njóta sín. Mikilvægt er að skólastjóri sé tilbúinn að
viðhalda góðum skólabrag og hafi ánægju af því að vinna með nemendum, starfsfólki og foreldrum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
• Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi æskileg t.d. á sviði stjórnunar
• Reynsla af skólastjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
• Þekking og færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar
• Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þá
eiginleika í störfum sínum og framkomu. Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2020. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna SÍ.
Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Umsókn fylgi
starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Helgi Arnarson sviðsstjóri Fræðslusviðs, helgi.arnarson@reykjanesbaer.is.
Helstu verkefni
• Veita skólanum faglega forystu
• Móta framtíðarstefnu skólans innan ramma laga og reglugerða, í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla,
nýrrar stefnu sveitarfélagsins til 2030, Í krafti fjölbreytileikans og menntastefnu Reykjanesbæjar
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
• Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins
Hlutverk vistforeldra er að veita börnum móttöku, þar
með talið í bráðatilvikum til að tryggja öryggi barnanna,
greiða vanda þeirra eða til könnunar á aðstæðum þeirra.
Þegar barn er á heimilinu er lögð áhersla á að það
stundi sinn heimaskóla, sæki tómstundir sínar og geti
haldið vinatengslum. Því er kostur ef fjölskyldurnar
búa í Hafnarfirði.
Starfið er fjölbreytt og gefandi og unnið í nánu samstarfi
við starfsmenn barnaverndar. Reynsla af starfi með
börnum sem nýtist við starfið er mikils metin.
Nánari upplýsingar eru á hafnarfjordur.is
Nánari upplýsingar veitir Helena Unnarsdóttir,
deildarstjóri barnaverndar, netfang
helenau@hafnarfjordur.is, sími 585-5500 .
Umsóknir eru sendar á sama netfang.
Umsóknarfrestur
er til 5. apríl 2020
VILTU VEITA BÖRNUM
UMHYGGJU OG ÖRYGGI
Barnavernd Hafnarfjarðar leitar að
tveimur fjölskyldum sem eru tilbúnar að
taka á móti börnum sem vista þarf utan
heimilis í skemmri tíma.
hafnarfjordur.is585 5500
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 1 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R