Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 38
Trésmiðir
Gifsveggir - Tilboð
Óskum eftir tilboðum í efni
og vinnu við gifsveggi.
Heildarmagn um 1.600 m2.
Áhugasamir hafi sambandi við
Sævar Þorbjörnsson gsm 692 9867
netfang saevar@skjanni.is
Trésmiðir
Kerfisloft – Tilboð
Óskum eftir tilboðum í vinnu við kerfisloft.
Heildarmagn um 2.300 m2.
Áhugasamir hafi sambandi við
Sævar Þorbjörnsson gsm 692 9867
netfang saevar@skjanni.is
Málarar
Málun – Tilboð
Óskum eftir tilboðum í
málningarvinnu innanhúss.
Endurmálun veggja ca. 3.400 m2.
Nýjir veggir ca. 2.900 m2.
Áhugasamir hafi sambandi við
Sævar Þorbjörnsson gsm 692 9867
netfang saevar@skjanni.is
Dalvegur 20-28. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 10. mars 2020 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipu-
lagslaga nr. 123/2010 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina að Dalvegi 20-28. Skipulags-
svæðið sem er um 4.5 ha að stærð afmarkast af lóðamörkum Dalvegar 30 til austurs, Kópavogs-
dal til norðurs, Dalvegi 18 til vesturs og Reykjanesbraut til suðurs. Í breytingunni felst að lögð
verður tengibraut milli Dalvegar og Reykjanesbrautar með afreinar frá og að Reykjanesbraut.
Á tengibraut miðri verður hringtorg sem og á gatnamótum Dalvegar. Lögð verður gata sem tengir
núverandi götu sunnan Dalvegar 18 að Dalvegi 30 og 32. Hluti Dalvegar breikkar og nýr hjólastígur
verður lagður í Kópavogsdal.
Eftirfarandi breytingar verða gerðar á lóðunum að Dalvegi 20-28:
Á lóð nr. 20 við Dalveg breytast lóðamörk og aðkoma að lóð. Lóð stækkar og verður 3.420 m2
eftir breytingu.
Á lóð nr. 22 við Dalveg breytast lóðamörk og aðkoma að lóð. Lóð stækkar og verður 6.376 m2
eftir breytingu.
Á lóð nr. 24 við Dalveg er gert ráð fyrir að fjarlægja núverandi byggingar á lóðinni og reisa í þeirra
stað verslunar- og þjónustuhús á 4 hæðum auk inndreginnar þakhæðar og niðurgrafinnar bíla-
geymslu á tveimur hæðum. Lóðamörk og aðkoma að lóð breytist. Lóð minnkar og verður 6.198 m2
eftir breytingu.
Byggingarreitur sem og heildarflatarmál helst óbreytt frá gildandi deiliskipulagi eða 9,800 m2 auk
bílageymslu sem ráðgerð er 5.000 m2. Krafa er gerð um eitt bílastæði á hverja 35 m2 í atvinnu-
húsnæði.
Á lóð nr. 26 við Dalveg breytast lóðamörk og aðkoma að lóð. Lóð minnkar og verður 4.420 m2 eftir
breytingu.
Á lóð nr. 28 við Dalveg breytast lóðamörk og aðkoma að lóð. Lóð minnkar og verður 3.280 m2 eftir
breytingu.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 dags. 27. febrúar 2020 ásamt greinargerð,
skýringar myndum, skipulagsskilmálum, minnisblaði frá verkfræðistofunni Mannviti dags. 12.
febrúar 2020 og hljóðvistarútreikningur dags. í febrúar 2020. Nánar vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa
borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi
eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 11. maí 2020.
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður útsending (streymi) á heimasíðu Kópavogsbæjar fimmtu-
daginn 26. mars 2020 kl. 17:00 – 18:00 þar sem tillagan verður kynnt. Í kjölfarið verður kynningin
aðgengileg á heimasíðu bæjarins. Hægt er að beina fyrirspurnum til starfsmanna skipulags- og
byggingardeildar um tillöguna á netfangið skipulag@kopavogur.is
Skipulagsstjóri Kópavogs
Auglýsing um breytt
deiliskipulag í Kópavogi.
kopavogur.is
kopavogur.is
kopavogur.is
kopavogur.is
ÚTBOÐ
Malbiksyfirlagnir
í Kópavogi 2020
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í malbiks
yfirlagnir í bæjarfélaginu sumarið 2020.
Í verkinu felst annars vegar heilfræsing á
götum og yfirlögn í kjölfarið og hinsvegar
yfirlögn á núverandi malbik með tilheyrandi
fræsingu á lásum.
Helstu magntölur eru:
Fræsing og yfirlögn
ásamt límingu.................. 13.500 m2
Yfirlögn á eldra malbik
ásamt límingu................... 6.500 m2
Samtals............................ 20.000 m2
Verkinu skal vera að fullu lokið
30. september 2020.
Útboðsgögn verða afhent með tölvupóst frá
og með 24. mars 2020. Beiðni um útboðs
gögn skal senda á tölvupóstfangið
utbod@kopavogur.is. Í tölvupósti skal koma
fram nafn tengiliðs vegna útboðsins, tölvu
póstfang, símanúmer og nafn fyrirtækis.
Tilboði skal skila undirskrifuðu á
utbod@kopavogur.is fyrir
kl. 11:00, 8. apríl 2020.
Sökum aðstæðna í þjóðfélaginu um þessar
mundir verður ekki boðið upp á að opna
tilboðin að viðstöddum bjóðendum en niður
stöður útboðsins verða send á alla bjóðendur
að opnuninni lokinni.
Auglýsing einnig birt á útboðsvef Ríkisskaupa
www.utbodsvefur.is
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 11 L AU G A R DAG U R 2 1 . M A R S 2 0 2 0