Fréttablaðið - 21.03.2020, Side 58
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Eiginkona mín,
móðir, amma og langamma,
Anna Guðrún
Guðmundsdóttir
(Dúnna)
lést föstudaginn 13. mars síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram.
Guðmundur Egilsson
Rósamunda Guðmundsdóttir Magnús Ásgeirsson
Halldór Guðmundsson
Egill Örn Guðmundsson Claudia Kowalek
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Hrafnhildur Halldórsdóttir
heimilisfræðikennari,
Sóltúni 2, Reykjavík,
áður Lindarflöt 8, Garðabæ,
sem lést laugardaginn 14. mars sl. verður
jarðsungin frá Garðakirkju þriðjudaginn 24. mars kl. 13.
Nánasta fjölskylda verður við útförina en öðrum sem vilja
fylgja henni er bent á að fá upplýsingar um netstreymi hjá
aðstandendum. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Drafnarhús,
dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun, kt: 490605-0450
banki: 0515-26-44906.
Hildur Jóhannesdóttir Jóakim Hlynur Reynisson
Þorleikur Jóhannesson Helga Melsteð
Halla Margrét Jóhannesdóttir Sólmundur Már Jónsson
Ólafía Ása Jóhannesdóttir Sigurður Garðar Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Erla Guðrún Sigurðardóttir
Fróðengi 11, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
þann 15. mars. Vegna aðstæðna í
samfélaginu fer jarðarförin fram í kyrrþey.
Guðrún Þóra Magnúsdóttir Örn Ísleifsson
Þórður Axel Magnússon Sigríður Grímsdóttir
Guðni Karl Magnússon Guðbjörg A. Benediktsdóttir
Ingibjörg Kr. Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg dóttir okkar,
systir og mágkona,
Anna Björk Þorvarðardóttir
Laugarbraut 8, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þann
16. mars síðastliðinn í faðmi
fjölskyldunnar. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Hollvinasamtök HVE, reikningsnúmer
326-26-005100, kennitala 510214-0560.
Þorvarður B. Magnússon
Linda Örlaugsdóttir
Íris Björg Þorvarðardóttir
Þórður Þórðarson
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Jarþrúður Lilja Daníelsdóttir
Norðurvangi 9, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 18. mars.
Útför fer fram í Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 31. mars kl. 13.00.
Þar sem takmarka þarf fjölda kirkjugesta verður útförinni
streymt á netinu. Minningarathöfn verður haldin þann
29. september og verður auglýst síðar.
Daníel Þór Ólason Þóra Tómasdóttir
Björn Viðar Ólason Hlynur Geir Ólason
Hilda Björk Daníelsdóttir Diego Yacaman Mendez
Sólveig Anna Daníelsdóttir Birkir Freyr Baldursson
Ásta Valgerður Björnsdóttir Erna Diljá Daníelsdóttir
Aníta Björt Birkisdóttir
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Doris Audrey Thordarson
lést aðfaranótt 14. mars á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Útförin fer fram í kyrrþey.
Björn Þórðarson
Janis Carol Walker Paul Morcom
Linda Christine Björnsdóttir
Susan Ann Björnsdóttir Guðlaugur G. Færseth
Jón Yngvi Björnsson María Richter
Helena Björnsdóttir Redding Friðrik Jakobsson
og fjölskyldur þeirra.
Útför elskulegrar mömmu okkar,
Svanhildar Traustadóttur
frá Patreksfirði,
sem lést þann 10. mars hefur farið
fram í kyrrþey að hennar ósk.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustunnar
Heru sem gerði henni kleift að vera heima sem lengst og
líknardeildar LSH fyrir alla umönnun.
Þeim sem vildu minnast mömmu er bent á að láta
Heru og líknardeildina njóta þess.
Trausti og Sif Maggý og Steini
Árni og Ásta Silja og Valli
ömmubörnin og fjölskyldur þeirra.
Móðir mín,
Elín Hjaltadóttir
lést á heimili sínu
í Norwich 16. mars sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Jónsdóttir
Elsku sonur minn, pabbi okkar, afi,
tengdapabbi, bróðir
og sambýlismaður,
Jón Dan Einarsson
húsasmíðameistari,
lést 4. mars á Gran Canaria.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður útför ákveðin síðar.
María Theódóra Jónsdóttir
Tómas Dan Jónsson Anna Sif Björgvinsdóttir
Arnór Dan Tómasson
María Theódóra Jónsdóttir Marinó Ívarsson
systkini og fjölskyldur
Guðrún Kristín Ívarsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðjón Ármann Eyjólfsson
fyrrverandi skólameistari
Stýrimannaskólans í Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum Fossvogi
mánudaginn 16. mars sl.
Útför verður auglýst síðar.
Anika Jóna Ragnarsdóttir
Ragnheiður Ármannsdóttir Leifur Björnsson
Ragnar Ármannsson Kristín Axelsdóttir
Eyjólfur Ármannsson
Kristín Rósa Ármannsdóttir Jón Heiðar Ólafsson
og barnabörn.
Elsku móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðbjörg Lára Axelsdóttir
Mánatúni 2, Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum 26. febrúar sl.
Útför hennar fór fram þann 10. mars.
Aðstandendur færa starfsfólki
Droplaugarstaða þakkir fyrir fallega og góða umönnun.
Elín Skarphéðinsdóttir Steinþór Hreinsson
Erla Inga Skarphéðinsdóttir Helgi V. Helgason
og fjölskyldur.
Viktoría Rán Ólafsdóttir er nýráðin í embætti skrif-stofustjóra Kaldrana-neshrepps á Ströndum. Hún tekur við starfinu af Jenný Jensdóttur sem
sagði því lausu í byrjun árs, eftir 34 ára
starf og er að koma Viktoríu Rán inn í
embættið. „Jenný er hér enn, mér til
stuðnings, en svo mun ég sjá um hefð-
bundið bókhald, utanumhald um laun
og fundargerðir og ýmis störf á skrif-
stofunni sem ekki eru í verkahring
sveitarstjórans.“
Viktoría Rán er frá Svanshóli í Bjarn-
arfirði og því landvön í hreppnum. Hún
var áður kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Strandamanna á Hólmavík sem rak
fjögur útibú. Nú hefur Kaldrananes-
hreppur keypt húsnæði kaupfélagsins á
Drangsnesi og heimamenn ætla að reka
þar verslun.
Þó að sveitarfélagið sé fámennt, eða
með 106 skráða íbúa, að sögn Viktoríu
Ránar, segir hún verkefnin jafnmörg og
hjá stórum sveitarfélögum. „Við rekum
hitaveitu, höfn, meira að segja tvær
hafnir, vigtarskúr, áhaldahús, skóla og
tvær sundlaugar,“ lýsir hún og tekur
fram að Kaldrananeshreppur nái yfir
Drangsnes og Bjarnarfjörð. „Svæðið er
ekki stórt um sig og tiltölulega þægi-
legt þannig. Það eru margir sem eiga
hér sumarhús og dvelja part úr ári, þó
þeir skrifist ekki hér og það hafa verið
byggð hér bæði heilsárs- og sumarhús
undanfarið í meiri mæli en oft áður,
bæði á Drangsnesi og í Bjarnarfirði.
Heita vatnið er jú eftirsóknarvert.“
gun@frettabladid.is
Allt að gerast á Drangsnesi
Viktoría Rán Ólafsdóttir frá Svanshóli er nýtekin við sem skrifstofustjóri Kaldrananes-
hrepps, sem nær yfir Drangsnes og Bjarnarfjörð. Hún hefur í mörg horn að líta.
Viktoría Rán tekur fram að hún hafi
ráðið sig til reynslu í þrjá mánuði.
Það eru margir sem eiga hér
sumarhús og dvelja part úr ári,
þó þeir skrifist ekki hér.
2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT