Fréttablaðið - 21.03.2020, Síða 2
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Sonur okkar borðar
til dæmis helst ekki
indverskan mat. Hann vill
bara íslenskan mat.
Farzana Usman
Veður
Hæg SV-átt og éljagangur, en
sunnan 15-20 og snjókoma eða
slydda austanlands. Vægt frost, en
hiti 1 til 5 stig austan til. Vaxandi
SV-átt eftir hádegi á morgun, 10-18
annað kvöld, og styttir upp og
kólnar austanlands. SJÁ SÍÐU 32
Fáir á ferli í miðbæ Reykjavíkur
Það var fjarska fámennt á götum miðborgar Reykjavíkur í gær og varla mann að sjá. Fyrir örfáum dögum var þar rennerí af erlendum ferðamönn-
um á leið til eða frá Hallgrímskirkju, en búast má við að þeir hafi f lestir haldið til síns heima, á sama hátt og Íslendingar erlendis hafa stytt ferðalög
sín og haldið heim á leið. Reyndar var veðrið í borginni ekki beinlínis hvetjandi til útivistar, rigning og fremur hvasst. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
REYKJAVÍK Vísbendingar eru um
að foreldrar, sem eru af erlendu
bergi brotnir, séu líklegri til þess
að halda börnum sínum heima á
þeim óvissutímum sem nú ganga
yfir. Að sögn Helga Grímssonar,
sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkur, sýna tölur sviðsins yfir
mætingu nemenda óvírætt fram á
þennan veruleika.
„Foreldrar af erlendum uppruna
virðast í einhverjum tilvikum horfa
til þess hvað er gert í þeirra heima-
landi. Mjög víða um heim er skólum
lokað og þá heldur fólk sig við þau
tilmæli,“ segir Helgi. Hann telur
ólíklegt að skortur á upplýsingum
valdi því að þessi hópur sé líklegri
til þess að halda sig heima. „Allir eru
upplýstir um að skólar séu opnir þó
með takmörkunum sé,“ segir Helgi.
– bþ
Erlendir nemar
oftar heima á
óvissutímum
Mjög víða um heim
er skólum lokað og
þá heldur fólk sig við þau
tilmæli.
Helgi Grímsson,
sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs
Reykjavíkur
sjávarsalti
með
SA M F É L AG „Viðtök ur nar hafa
verið betri en við þorðum að vona.
Þetta eru að sjálfsögðu erfiðir tímar
en við erum bjartsýn. Ef maturinn
er góður og verðið sanngjarnt þá
gengur þetta upp,“ segir Usman
Mehmood. Usman opnaði í vik-
unni indverska veitingastaðinn Taj
Mahal ásamt eiginkonu sinni, Farz-
ana Usman, í miðbæ Reykjavíkur.
Ekki nóg með það, heldur hófu
þau nýlega rekstur hótels og veit-
ingastaðar í grennd við Hveragerði,
gistiheimili í Ármúla og undir-
búa opnun annars veitingastaðar
á Grensásvegi. „Gistibransinn er
hruninn til skamms tíma og því
er það bara í dvala þar til ástandið
lagast,“ segir Usman.
Usman og Farzana eru frá Pakist-
an en eru af indversku bergi brotin.
Þau f luttu hingað til lands fyrir
fjórum árum og líkar lífið vel. „Við
vorum í leit að betra lífi. Viðhorf
okkar eru frjálslynd og samræmast
ekki endilega því sem viðgengst í
heimalandi okkar,“ segir Usman.
Hann rakst á greinar þar sem fram
kom að mannréttindi og tjáningar-
frelsi væru í hávegum höfð á þessari
eyju í norðri og eitt leiddi af öðru.
Aðspurður hvernig tekist hafi til
við að komast inn í íslenskt sam-
félag segir Usman: „Við erum ekk-
ert komin enn inn í íslenskt sam-
félag,“ og skellihlær. Annað gildi
þó um börn þeirra hjóna sem eru í
Laugarnesskóla og orðin altalandi
á íslensku. „Sonur okkar borðar til
dæmis helst ekki indverskan mat.
Hann vill bara íslenskan mat,“
skýtur Farzana inn í.
Þau segjast hafa unnið myrkr-
anna á milli undanfarin ár. „Það
hefur alltaf verið draumur minn að
fara út í eigin rekstur. Faðir minn
var í veitingarekstri og ég lærði
ýmislegt af honum,“ segir Usman.
Til að geta fjárfest í eigin rekstri
segir Usman að þau hjónin hafi
tekið að sér margs konar störf og
sinni sumum enn. „Farzana hefur
verið í þrifum og aðstoðað í eldhúsi
og ég hef starfað í móttöku á hót-
eli auk þess að keyra rútur,“ segir
Usman. Hann keyrir einnig leigu-
bíl hvenær sem hann á lausa stund
og reiknar ekki með að hætta því í
bráð.
„Lífið snýst um vinnuna og við
tökum engin frí. Mér finnst það í
raun eðlilegt að innflytjendur þurfi
að leggja sig meira fram og sanna sig
í nýju samfélagi,“ segir Usman. Að
hans sögn hefur gengið vel að stofna
til viðskiptatengsla hérlendis en
Vinnumálastofnun hefur verið til
mikilla vandræða.
„Það er nánast ómögulegt að fá
indverska kokka á evrópska efna-
hagssvæðinu. Við höfum reynt að
fá frábæra kokka frá Indlandi til
landsins en það gengur mjög treg-
lega,“ segir Usman.
bjornth@frettabladid.is
Opnuðu veitingastað
í miðju COVID-fárinu
„Lífið er vinna,“ segja þau hjónin Usman og Farzana sem opnuðu nýjan
indverskan veitingastað í miðborginni í vikunni. Nýlega hófu þau rekstur
hótels og gistiheimilis og gera ráð fyrir að opna annan veitingastað fljótlega.
Usman og Farzana ásamt yngri bróður Usman, Adnan. Þau opnuðu ind-
verska veitingastaðinn Taj Mahal í Tryggagötu 26 í vikunni.
ALÞINGI Samþykkt var á Alþingi
í gær frumvarp félags- og barna-
málaráðherra um rétt fólks til
atvinnuleysisbóta vegna minnkaðs
starfshlutfalls þegar tímabundinn
samdráttur verður í starfsemi
vinnuveitanda. Frá þessu segir á vef
Stjórnarráðsins.
Þannig verða atvinnuleysisbætur
greiddar samhliða minna starfs-
hlutfalli enda hafi það lækkað um
20 prósent hið minnsta, en verði
ekki fært neðar en í 25 prósent.
Vinnuveitanda er óheimilt að krefj-
ast vinnuframlags umfram lækkaða
starfshlutfallið. Laun vinnuveit-
anda og atvinnuleysisbætur mega
samanlagt ekki nema hærri fjárhæð
en 700 þúsund krónum á mánuði.
Þá verða laun allt að 400 þúsund
krónum á mánuði að fullu tryggð.
Jafnframt eiga námsmenn rétt á
bótum samkvæmt frumvarpinu.
Lögin gilda frá 15. mars til loka maí
næstkomandi. – jþ
Hlutabætur
samþykktar
2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð