Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 55
V ið rákumst á þessa lóð þegar við opnuð-um fasteignavefinn í léttu gríni árið 2015. Við vorum ekkert á þeim stað að geta fjárfest neitt,“ segir Hafsteinn. „En við fundum þessa heilsárslóð rétt við bæjarmörkin á ótrúlegu verði og gersamlega féllum fyrir henni.“ Þau tryggðu sér lóðina og ætlunin var að bíða með framkvæmdir. „Ég er aftur á móti ekki mikið fyrir að bíða svo við f lugum vestur á firði til Kjartans Árnasonar arkitekts, sem býr í sams konar húsi.“ Þau fengu teikningar Kjartans og gerðu smá- vægilegar breytingar, aðallega á gluggum sem voru stækkaðir. „Við eigum svo yndislega vini sem eru þvílíkt f linkir smiðir og hjálpuðu okkur við bygginguna og eru gæðin alveg eftir því.“ Norðurljósin daglegt brauð Hafsteinn segir stóra gluggana veita magnað útsýni. „Að vera þarna er undur allan ársins hring. Norðurljósin eru nánast daglegt brauð, stjörnurnar ótrúlegar, Esjan, Hafrafellið, Úlfarsfellið, stundum Snæfellsjökullinn og Bláfjöllin, í raun er panorama útsýni á þetta allt.“ Lóðin er gróðri vaxin og segir hann mikið um fuglalíf, sérlega vor og sumar. „Himbrimapar kemur árlega, það f lýgur niður á Hafra- vatn á daginn og svo á slaginu tíu á kvöldin heyrir maður í þeim f ljúga til baka upp til Krókatjarna fyrir nóttina. Hrossagaukurinn syngur svo fugla hæst, uglur eru regluleg sjón ásamt spóanum, lóunni, stelknum og kjóinn f lýgur stundum rólega yfir.“ Þessa dagana dvelja þau hjónin ásamt tveimur ungum dætrum sínum á eyjunni La Palma á Spáni þar sem ætlunin er að gera upp hús, hugsað sem vetrarhús. „Þetta er ein af minni Kanaríeyjunum þar sem um 90 prósent efnahagsins gengur út á ávaxtaræktun og lítið er um túrisma. Við komum hingað á eyjahoppi þegar yngri dóttirin var fjögurra vikna gömul.“ Hafsteinn og Agla höfðu áður gert upp hús í Danmörku og þegar gott kaup- tilboð kom í það sáu þau sér leik á borði þegar þau féllu fyrir eyjunni. „Við keyptum hér 6.000 fm lóð, með rústum, sem við erum að gera upp.“ Hugmyndin er að gera húsið upp og leigja það út yfir sumar- tímann en nýta það sjálf á veturna. Á meðan er húsið heima leigt út til ferðamanna en nú þegar þeim Undur allan ársins hring Húsgagnasmiðirnir Guðrún Agla og Haf­ steinn Helgi, fólkið á bak við Happie Furn­ iture, byggðu sér útsýnishús við Hafravatn sem þau leyfa öðrum að njóta yfir veturinn á meðan þau sjálf dvelja við hærra hitastig. Húsgagnasmiðirnir Hafsteinn Helgi og Guðrún Agla byggðu sér heimili við Hafravatn þar sem birtu og útsýnis nýtur sérlega vel út um stóra gluggana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hljóðvistin er góð enda clipsó hljóðdúkur í lofti og teppi á gólfum uppi sem dempar hljóð enn betur. Borðplöturnar og allur viður í húsinu er frá fyrirtæki hjónanna Happie Furniture sem hefur á fimm árum framleitt yfir eitt þúsund borð. Loftglugginn í svefnherberginu veitir einstaka sýn á norðurljósin. fækkar snarlega hafa þau ákveðið að bjóða það nokkra mánuði í senn til þeirra sem það hentar. Prufutíminn búinn Happie Furniture er í fullri starf- semi hér á landi og eru þau Haf- steinn og Agla að eigin sögn með tvo frábæra starfsmenn sem sjá um framleiðsluna á meðan þau dvelja ytra, smiðina Sjamek og Einar. „Eft- irspurnin eftir borðunum okkar hefur ekkert minnkað enda um að ræða vandaða vöru sem endist fólki út ævina. Eik og hnota er stöðugasti gjaldmiðill í heiminum.“ „Segja má að prufutíminn sé búinn, við höfum framleitt yfir eitt þúsund borð á þessum fimm árum sem Happie Furniture hefur verið í starfsemi en við höfum þó ekki viljað mikla yfirbyggingu eða eiginlega verslun, því við viljum geta skellt í lás ef svo fer.“ Nú þegar þau hjónin eru mikið á faraldsfæti fundu þau þó fyrir þörfinni fyrir eins konar sýningarrými sem nú er að verða að veruleika á Skólavörðu- stígnum. „Hönnuðurinn Inga Elín sem hannar undir merkinu Inga Elín Design kom að máli við okkur ásamt syni sínum Kristni, sem er einnig framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, um samstarf sem okkur leist vel á og verða húsgögn okkar til sýnis og sölu í verslun þeirra sem opnuð verður í yndislegu húsnæði á Skólavörðustígnum þann 28. mars næstkomandi.“ Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Fjölskyldan dvelur nú á eyjunni La Palma við Spán þar sem þau eru að gera upp hús til vetrardvalar. +PLÚS 2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.