Gríma - 15.03.1931, Page 18

Gríma - 15.03.1931, Page 18
16 SKYGGNI SÉItA JÓNS Á ÁLFTAMÝRI mann sinn nema fáar vikur. — Nóttina eftir það er séra Þorlákur drukknaði, dreymdi Sigríði á Ósi, dóttur hans, að hann kæmi á glugga yfir hvílu henn- ar og mælti fram vers þetta: Dauðinn fór djarft að mér, dauðanum enginn ver; dauðinn er súr og sætur, samt er hann víst ágætur þeim, sem í Drottni deyja og dóminum eftir þreyja. Sigríður var gáfuð kona og hagorð. Hennar fékk maður sá, er Hallgrímur hét og var Einarsson, — sagður kominn af Axlar-Birni. Þau bjuggu á Ósi, og var hann hreppstjóri. Þau áttu þrjú börn, Þorlák, Rósu og Guðrúnu. Þorlákur var prestur á Skinna- stöðum (1819—26) og víðar; hann var mikilmenni, en stundum nokkuð svaðalegur við öl. Hann dó fjör- gamall árið 1862. Kona hans var Guðrún Ásmunds- dóttir frá Silfrastöðum. — Rósu Hallgrímsdóttur átti Sveinn Rögnvaldsson á Ásláksstöðum. — Guð- rún giftist Jóni nokkrum Jónssyni. 4. Skyggni séra Jöns a' Álftamýri. (Eftir handr. Hannesar Jónssonar í Hleiðargarði. Sögn Jóns Jónssonar Strandfjelds). Séra Jón Ásgeirsson, sem var prestur á Álftamýri 1839—1862, var talinn fjölkunnugur nokkuð, og það vissu menn fyrir víst, að hann var skyggn. Síðar

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.