Gríma - 15.03.1931, Blaðsíða 24
22
GEITABRÚ
6.
Geitabrú.
(Eftir handriti Baldvins Jónatanssonar).
Eftir það er stóridómur var í lög leiddur hér á
landi, á ofanverðri 16. öld, urðu margir menn sekir
fyrir Jitil afbrot. Flýðu sumir til óbyggða og gerð-
ust útilegumenn og ránsmenn, en aðrir náðust og
voru af lífi teknir. Þá varð ungum bónda í Bárðar-
dal, Jóni að nafni, sú yfirsjón á, að hann féll með
mágkonu sinni og gerði henni barn. Var hann tek-
inn og dæmdur af lífi fyrir þessar sakir, en tókst að
strjúka úr haldi áður en dóminum yrði fullnægt.
Flýði hann til fjalla og hafðist þar við um hríð, en
af því að hann vildi hvorki stela né ræna sér til lífsvið-
urhalds, svarf að honum sultur og sá hann sér eng-
in önnur bjargráð en að leita á náðir bróður síns, er
bjó á Rauðá, yzta bæ í Bárðardal austanverðum, upp
af Goðafossi. Hafði Rauðárbóndinn áður reynzt
bróður sínum vel, tekið að sér konu hans og börn,
er hann var handtekinn og alið önn fyrir þeim. Það
var að haustlagi, er Jón kom að Rauðá og var vel
tekið; kvaðst bóndi raunar ekki geta haldið hann
lengi á laun, því að bráðlega mundi verða leitað hjá
sér og mundi þá verða erfitt að fá honum skotið
undan; lét hann Jón hafast við í jarðhúsi nokkru
og leið svo fram um hríð.
Rauðárbóndinn átti geitfé margt, sem gekk að
mestu sjálfala árlangt, en þó var þess vitjað við og
við. Eitt sinn gekk bóndi til geita sinna á þorranum
og vantaði þá margar þeirra; leitaði hann þeirra