Gríma - 15.03.1931, Qupperneq 25

Gríma - 15.03.1931, Qupperneq 25
GEITABRÚ 23 lengi dags árangurslaust, en sá þær að lokum á klettaeyju úti í Skjálfandafljóti nokkru neðan við Goðafoss. Hafði lagt mjóa ísspöng frá fljótsbakk- anum út í eyna og geiturnar hlaupið yfi'r á henni. Ekki þótti bónda árennilegt að ná geitunum úr eynni, því að bæði voru klettar háir niður að fara að ísspönginni og svo virtist hún sjálf vera miður tryggileg. Hvarf hann þá heim við svo búið og sagði Jóni bróður sínum frá, hvernig komið væri. Af því að Jón var maður djarfur, vildi feginn gera bróður sínum greiða, en var hinsvegar ósárt um líf sitt, úr því sem komið var, bauðst hann til að ná geitunum úr eynni. Varð það úr, að þeir bræður lögðu af stað morguninn eftir; seig Jón í reipi ofan fyrir klettinn, komst klaklaust yfir á ísspönginni og fékk borgið geitunum; voru þær svo dregnar á reipinu upp klettinn. Fór Jón þá að litast um í eynni og sá, að þar var gott til skjóls og nokkrir djúpir hellisskútar, þar sem góð voru fylgsni. Sagði hann við bróður sinn, að réttast væri að setjast að í eynni og leynast þar, því að þar væri sízt hætta á að leitað væri. Féllst bóndi á þá ráðagerð, því að það vissi hann, að grunaður var hann um bjargráð við Jón og að búast mátti við húsleit á Rauðá hvenær sem væri. Nóttina eftir var Jón fluttur í eyna; fékk hann með sér vistir nógar og var búið um hann vandlega í einum hellisskútanum. Á meðan þeir bræður voru við þennan starfa, rann á hláka og komst bóndi nauðulega til lands aftur, enda féll ísbrúin rétt á hæla honum. Þá mælti bóndi: »Það sé ég, að ísbrú þessi hæfir ekki öðrum skepnum en geitum og má hún því Geitabrú kallast«. — Daginn eftir komu leitarmenn margir að Rauðá; rannsökuðu þeir bæ-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Gríma

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.