Gríma - 15.03.1931, Síða 29

Gríma - 15.03.1931, Síða 29
FRÁ VASK ÚTILEGUM. OG SKEGGJA í STÓRADAL 27 byggð hans þar; skyldi hann verða á brottu þaðan hið skjótasta. Varð Vaskur hinn æfasti og greip vopn sín; börðust þeir síðan og lauk svo þeirra við- skiftum, að Skeggi gekk af honum dauðum. Eftir það reið Skeggi heim og sagði frá tíðindum. Sendi hann húskarla sína vestur í dalinn, gerði upptækt allt bú Vasks, en lét rífa kofa hans til grunna. Er mælt að enn sjáist rústirnar, þar sem bærinn stóð. Flutti Skeggi allt búið heim að Stóradal og sló á það eign sinni. Spurðust nú þessi tíðindi um allar sveitir, og þótti Skeggi hafa unnið hið þarfasta verk, að vega Vask. Hólabiskup frétti og víg þetta og það með, að Skeggi hefði slegið eign sinni á reitur Vasks. Fannst biskupi að fé þetta hefði að réttu átt að renna til biskupsstólsins, þar sem Vaskur var óbótamaður og brotlegur orðinn við heilaga kirkju. Sendi hann því mann á fund Skeggja og bað hann að láta rakna féð; kvaðst að öðrum kosti leggja á reiði sína og bann heilagrar kirkju. Skeggi tók illa erindinu og skeytti engu boðum og hótunum biskups. Varð ó- þokki mikill milli þeirra biskups og hans út af máli þessu og að lokurn fullur fjandskapur. Þegar til lengdar lét, sendi biskup ráðsmann sinn með marga sveina til þess að taka Skeggja af lífi. Komu þeir að Stóijdal um nótt og umkringdu bæinn. Skeggi hafði [ CU fátt húskarla heima fyrir og áræddi því ekki að leggja til bardaga. Tók hann það ráð, að hann faldi sig á milli þils og veggjar í skála frammi í bænum, en biskupsmönnum var leyfð innganga. Leituðu þeir lengi í bænum, en fundu ekki. Námu þeir að lokum staðar í skálanum, þar sem Skuggi var falinn og ráðguðust um, hvað' gera skyldi. Mun einn af svein-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Gríma

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.