Gríma - 15.03.1931, Page 34

Gríma - 15.03.1931, Page 34
32 FRÁ BIRNINGI, GEIRM., HLAÐG. OG STIGANDA manna. Eg heiti Stígandi og er faðir minn prestur á Suðurlandi; á hann auk mín eina dóttur barna, er Hlaðgerður heitir. Svo bar við fyrir hér um bil hálfu öðru ári síðan, að við systkinin vorum tvö ein á ferð frá kirkju; skall á okkur dimm þoka, en við skröf- uðum hátt og vorum kát, eins og ungu fólki er títt. Þá var eg átján ára gamall, en systir mín sextán. Vissum við ekki fyrri til en tveir menn, báðir á brúnum hestum, riðu fram fyrir okkur, gripu um taumana á hestum okkar og stöðvuðu þá. Þá sagði sá, sem hélt hesti systur minnar: »Dreptu strákinn; við ráðum þá betur við stelpukindina’. En þá hróp- aði systir mín: ,Ef þið ætlið að drepa hann bróður minn, þá drepið þið mig líka’. Þegar þeir heyrðu að við vorum systkin, sögðust þeir ekki ætla að drepa mig, ef hún fylgdi þeim mótstöðulaust. Gekk systir mín að þeim kostum, af því að ekki varð hjá því komizt. Svo bundu þeir okkur á hestana, teymdu þá með sér og fóru eins hart og þeir komust. Héldu þeir áfram dagfari og náttfari og höfðum við systkin ekkert hugboð um, hvert við fórum. Að lokum kom- um við í þenna afdal, að hýbýlum útilegumannanna. Þeir eru bræður og búa skammt héðan í rúmgóðum helli, sem þeir hafa hlaðið innan og gert allvistleg- an; búa engir aðrir menn hér í nágrenni, og enga aðkomumenn hef eg séð hér í dalnum nema ykkur. Eg var þegar látinn taka við fjárgeymslu, en systir mín er heima hjá þeim bræðrum og á í vök að verj- ast, því að báðir falast þeir eftir ástum hennar; er það þó einkum eldri bróðirinn, sem vill að hún gangi sér í konu stað, en hún hefur varizt með ýmsum brögðum. En nú mun það ekki duga til lengdar, því að hótað hafa þeir henni pintingum, ef hún láti sér

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.