Gríma - 15.03.1931, Qupperneq 47
HELGA KARLSDÓTTIR
45
lét sér hægt um. Opnuðu þær systur allar kistla sína
í sama mund, og skein eftirvæntingin og forvitnin
af hverju andliti. Upp úr kistlum eldri systranna
spruttu eiturnöðrur, sem stukku upp í andlit þeirra
og bitu þær í nefin, svo að þær hljóðuðu upp; blésu
nef þeirra og andlit upp og urðu þær á stuttri stund
svo ferlegar ásýndum, að festarmenn þeirra fylltust
ótta og viðbjóði, stukku burtu án þess að kveðja og
létu ekki sjá sig framar. En í kistli Helgu var hinn
dýrasti kyrtill, alsettur gimsteinum og perlum, svo
að Ijómaði af skrautinu; auk þess var í honum all-
mikið fé í gulli og silfri. Þegar Helga klæddist kyrtl-
inum, var hún svo fögur ásýndum, að allir féllu í
stafi og þóttust aldrei slíka brúði séð hafa. Var sleg-
ið upp hinni veglegustu veizlu og að því búnu fór
hún heim með manni sínum. — Unnust þau vel og
lengi, urðu hinar mestu gæfumanneskjur og þjóð-
fræg fyrir rausn og góðgerðasemi. En það er af
þeim systrum, Ásu og Signýju, að segja, að þær
voru jafn-ófríðar alla æfi, svo að enginn lifandi
maður vildi líta við þeim. Tóku þær sér það mjög
nærri og versnaði skap þeirra því meir sem þær elt-
ust. Lentu þær í mesta basli og bágindum og hefðu
vafalaust lognast út af vegna skorts og vanþrifa, ef
Helga systir þeirra hefði ekki jafnan bætt úr brýn-
ustu þörfum þeirra.
Lýkur svo sögu þessari.