Gríma - 15.03.1931, Side 50

Gríma - 15.03.1931, Side 50
48 HNÍFAPÖRIN farið af stað til kirkjunnar, var Sigga mjög dauf og grátbólgin, en húsfreyja lék á als oddi og fór að þrífa bæinn. Þegar leið á kvöldið, kallar húsfreyja á nöfnu sína og segir: »Guð hjálpi mér! Vantar mig þá ekki öll hnífapörin mín tólf að tölu. Eg gleymdi þeim, eftir á að hyggja, um daginn uppi í beitar- húsunum. Sæktu þau nú góða nafna. Þú mátt ríða á honum Rauð mínum, og þá verður þú enga stund«. »Nú ertu að senda mig forsendingu«, segir Sigga. »Nei«, segir húsfreyja, »það geri eg aldrei. Pörin eru rétt innan við dyrnar á hyllu, sem er þar. Eg skal leggja á hann Rauð«. Síðan gengur hún út og söðlar Rauð sinn, en Sigga snarast í söðulinn, ríður á húsin, fer inn í dyrnar og þreifar á hyllunni, en finnur ekkert. Snarast hún þá inn í húsið, en þá vill svo undarlega til, að mikilli birtu slær í augu henni og hún missir dyranna, en sér nú að hún er komin í þiljað hús með tólf uppbúnum rúmum. Þar næst sér hún tólf menn koma inn og leiddi hver þeirra stúlku við hlið sér, nema einn, og bar sá langt af hinum. Þeir, sem stúlkurnar leiddu, háttuðu ofan í rúm með stúlkum sínum, en sá tólfti segir við Siggu: »Hátta þú nú hjá mér, Sigríður mín«. Hún anzaði engu. Hann biður hana hins sama aftur. Þá gat hún ekki lengur staðizt freisti'nguna, því að henni leizt vel á manninn. Fleygir hún af sér skón- um, stígur upp í rúmið, leggst fyrir ofan manninn og er þegar steinsofnuð. Þegar Sigga vaknar um morguninn, er rekkjunautur hennar klæddur og býð- ur henni góðan daginn. »Nú getur þú farið heim«, segir hann, »því að Rauður bíður söðlaður«. Hún klæðist skjótt og leiðir hann hana fram í fjárhúsið. Sér þá Sigríður þar aðeins klett að baki sér, sem

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.