Gríma - 15.03.1931, Page 52

Gríma - 15.03.1931, Page 52
50 KOLLI OG SVANHVÍT 11. Kolli og Svanhvit. (Handrit Þorsteins M. Jónssonar, eftir sögn Péturs Björg- vins Jónssonar 1902). Einu sinni voru hjón, er bjuggu innarlega í dal einum, langt frá öðrum mannabyggðum. Þau áttu tvö börn. Þau voru vel megandi og höfðu margt vinnufólk. Eitt sinn er barið að dyrum á bæ þeirra, og gengur bóndi fram fyrir. Fyrir dyrum stendur maður, lágur vexti og ískyggilegur. Sá heilsar bónda og beiðist næturgistingar. Bóndi segir hana heimila og spyr komumann að nafni. »Ég heiti Kolli«, svar- ar hann. Síðan fylgir bóndi honum til baðstofu. Lízt fólkinu mjög illa á hinn ókunna mann, en börnin eru hrædd við hann. Nokkru seinna er aftur barið og fer bóndi til dyra. Sér hann stúlku standa fyrir dyrum, fagra ásýndum og góðmannlega. Hún heilsar bónda og beiðist gistingar. Bóndi biður hana vel- komna og spyr að nafni. »Ég heiti Svanhvít«, segir hún. Bóndi fylgir henni inn til baðstofu og lízt öll- um vel á hana, en menn sjá að Kolla bregður undar- lega við, er hann sér hana. Bóndi var vanur að lesa kveldlestur. Þetta kveld, þegar á að fara að lesa, hverfur Kolli og kemur eigi aftur fyr en lestri er lokið. Um morguninn, þá er bóndi kemur á flakk, gengur hann út; honum finnst sem bærinn sé að sökkva. Gengur hann inn og segir fólkinu frá þessu. Var þá Kolii horfinn og þóttust menn vita, að það væri af hans völdum. Var farið að leita hans og sjá

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.